Eining - 01.08.1954, Qupperneq 1

Eining - 01.08.1954, Qupperneq 1
12. árg. Reykjavík, ágúst—september 1954. 8.-9. tbl. W& JT • 1 • / Bagmdi 1 „En æskumenn eiga nú svo bágt, á svo sérkennilegan hátt, að allir koma ekki auga á þau bágindi“. Þannig komst skólastjórinn á Flat- eyri, Sveinn Gunnlaugsson að orði í ávarpi, er hann flutti af andagift og hjartahita á stórstúkuþinginu á ísa- firði. Hann hafði óskað þess, að fá að koma með hóp ungmenna úr barna- og unglingastúkum inn á stórstúkuþingið, svo að þau gætu séð heimilisbraginn þar. Þetta var auðvitað sjálfsagt, og var því haldinn opinn stórstúkufundur til móttöku þessum kærkomnu gestum. — Avarpi skólastjórans fylgdi mjög hress- andi andblær, og bað ritstjóri Eining- ar hann því um ávarpið til birtingar í blaðinu, og fer það hér á eftir: Háttvirti stórtemplar, kæru systur og bræður. Við, sem höfum unnið mikið að kennslu barna og unglinga, og alllengi unnið unglingareglunni það gagn, sem okkur hefur verið unnt og aðstæður hafa leyft, erum máske glöggskyggnari en allur almenningur á það, hvar skórinn kreppir að í högum og hugum æsku- manna. Mikið er talað og ritað um, hve sorg- lega og hrapalega margt æskufólk hafi nú ratað á ýmsar óhappaleiðir. Um leið og við heyrum og lesum slíkt, dylst okk- ur ekki: að ekki eitthvað, heldur allt, sem unnt er, verður að gera hér til úr- bóta. Eg met Regluna svo mikils og trúi svo á getu hennar, að eg tel hana standa fremst í þeirri viðleitni, sem á sér það að markmiði að ala einstaklinga og þjóðir upp samkvæmt hugsjón hins hreina lífernis, sem er markmið hvers mannsbarns, — hvers guðsbarns. En æskan á nú svo bágt á svo sér- kennilegan hátt, að allir koma ekki auga á þau bágindi. velsæld in eina verður alltaf: hin útrétta bróður- og kærleikshönd. Bræður og systur. — Nú veit ég að þið skiljið af hverju hún var sprottin málaleitunin um, að æskan mætti sækja hér ykkar fund í dag. Bágindi nútíma æskunnar eru fólgin í því, sem almennt lítur út fyrir að vera: velgengni, velmegun og velsæld. En nú skal með örfáum orðum rök- styðja þetta. Áður var æskan kreppt af einangrun. Nú er hún í voða vegna of mikillrar nálægðar og of náinnar snertingar við hinn stóra heim. Áður átti æskan oft bágt vegna þess að hana skorti: mat, klæði, ljós, skemmt- anir. Nú eru bágindin fólgin í ofgnótt og óhófi matar, klæða og skemmtana. Æskan átti áður bágt vegna erfiðra aðstæðna til menntunar, og margt mannsefnið varð ,,úti“ — einmitt vegna þess. En nú á æskan bágt, af því að leiðirnar að lind- um menntanna eru svo auðveldar, og jafnvel ligg- ur við að sumir séu neydd- ir á þær leiðir. Áður átti æskan sjaldan eyris ráð til brýnustu nauð- synja. Nú er æskan stödd í voða vegna ofmikilla pen- ingaráða og allt mat verð- mæta að verða henni ókunnugt. Eitthvað á þessa leið er nú statt. — Nútímaæskan á bágt. En alla daga var og verður bezta björgin, þeim, sem bágt eiga — af hverjum toga, sem bág- indin eru spunnin—björg- Æskan þarf að eiga kærleiksríka bræður og systur meira en í orði, það er svo takmarkað gagn að því, ef það er ekki líka á borði. Bróðernið og systurþelið þarf að koma svo fram að æskan finni það í handtakinu, sjái það í svipnum og ljóma augnanna, og heyri það í orðum og ávarpi. Bræður og systur. — Mörg ykkar er- uð þjóðkunn sem merkisberar góðs mál- efnis. Vegna þess óskaði ég að þessi hópur æskufólks mætti sjá ykkur og heyra ykkur, kynnast ykkur persónu- lega, þótt ekki væri nema aðeins ör- stutta stund. Viðhafnarbúningur íslenzkra kvenna skartar jafnt yngismeyj- um sem viröulegum frúm. — Unga stúlkan, sem ber búning- inn að þessu sinni, heitir Anna Sigfúsdóttir. — Hún er nú gift kona og er með manni sínum, er stundar nám í Bandaríkj- unum.

x

Eining

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.