Eining - 01.08.1954, Qupperneq 5

Eining - 01.08.1954, Qupperneq 5
EINING 5 bezta skemmtun. Nýja ávexti og súkku- laði hafði bæjarstjómin í nesti handa gestum sínum. Beztu þakkir okkar allra hlaut hún fyrir gestrisni og ánægjulega stund. Að kvöldi þessa sama dags héldu svo templarar á ísafirði okkur matarveizlu. Eg er útásetningasamurmaður, en eg fullyrði, að þessi veizla var fyrsta flokks og veitendum til stórsóma. Á annað hundrað manns sat veizluna, þar á meðal ýmsir embættismenn og ráða- menn bæjarins, og frúr þeirra. Setið var undir borðum til miðnættis, ýmis- legt var til skemmtunar, söngur, hljóð- færasláttur og svo allmargar borðræð- ur, en yfirleitt voru þær stuttar og ekki þreytandi. Þegar gengið var að borði, settist eg einn míns liðs og beið þess, að einhverjir af hinni öldruðu sveit kæmu og setcust á auðu stólana mér til beggja handa, því að sagt er, að hvað elski sér líkt, en ungur kennari var mér þá svo vel- viljaður að koma með hóp ungmenna og setja umhverfis mig, og kunni eg þeim félagsskap mæta vel, en auðvitað er vafamál, að þeim hafi fundizt hið sama. Þegar staðið var upp frá borðum, hófst dansinn, en þá hvarf eg af því þingi. Kvöldið hafði verið hið ánægju- legasta, og fengu ísfirðingar aðdáun okkar gestanna allra og þakkir fyrir gestrisni og mikla rausn. Næsta morgunn, en þá var sunnu- dagur, ók einn úr bæjarstjórn Isafjarð- ar, Marselíus Bernhardsson skipasmið- ur, með mig upp á Breiðdalsheiði, en eg hafði ákveðið að veita mér þá nautn, að ganga einn niður dalinn að vestan- verðu, en þeim megin fjallsins beið kon- an mín hjá systkinum sínum og venzla- fólki. Þegar niður í Skógarbrekkurnar kom, streymdi mér í fang reyrangan og gróðurilmur, en hér og þar niðuðu silf- urtæru lækjarsprænurnar. Heilsusam- legt var að vera þarna einn á ferð uppi í glaðlofti fjallanna. En lengri ferðasögu má eg ekki flétta inn í þetta spjall um stórstúkuþingið, að þessu sinni. Eftir var að geta þess, að nokkur breyting varð á framkvæmda- nefndinni. Ritaraembætti stórstúkunnar tók við af Jóh. Ogm. Oddssyni Jens Níelsson, kennari, sem undanfarin ár hefur verið vararitari. Gæzlu unglinga- starfsins tók við af frú Þóru Jónsdóttur Gissur Pálsson, rafvirkjameistari. Séra Björn Magnússon, próf., hafði afráðið að gefa ekki kost á sér í stórtemplars- embættið framvegis, en flestir þingfull- trúanna sendu honum skriflega áskorun um að vera í kjöri og er hann því stór- templar áfram. Hinir framkvæmda- nefndarmennirnir eru: Sverrir Jónsson fulltrúi, frú Sigþrúð- ur Pétursdóttir, Jens E. Níelsson kenn- ari, Jón Hafliðason fulltrúi, Gissur Pálsson rafvirkjameistari, Haraldur S. Norðdahl tollvörður, Hannes J. Magnús- Ávarp §11 Dr. Ráehards Beck eftir Harald Leósson Sungið af Karlakór ísafjarðar í Alþýðu- húsinu á ísafirði á afmælisdegi dr. Rich- ards Beck, 9. júní 1954. Kom þú heill yfir sœ nú, er blíðasta blœ hefur blásalur himins af nað sinni veitt. Snemma vestur um sund bar þig víkings lund. Sértu velkominn, fóstra vor ann þér enn heitt. Þegar rödd þín barst heim, bar hún hánorSurs hreim, því að hartaó er íslenzkt og norrœnt Þú varst fulltrúi vor \ þitt orð. áttir þreklund og þor og varst jbjoð vorri sómi á vestrœnni sforð. Og með stórhug og trú reistir bandalags brú milli brœóra hér eystra og vestan oið Því skal þakkir tjá þér, ! höf. því skal heiðra þig hér, og þín heimsókn er oss sem hin dýrasta gjöf. son skólastj., Akureyri; Kristinn Magn- ússon, málaram., Hafnarfirði; Gísli Sig- urgeirsson skrifstofum., Hafnarfirði, og séra Kristinn Stefánsson, fyrrv., stór- templar. * * * * Stórstúkuþingið samþykkti eftir- farandi tillögur 1. 54. þing Stórstúku íslands þakkar þeim alþm. og öðrum, sem sinn ríka þátt áttu í því á síðasta Alþingi, að endanleg afgreiðsla áfengislaganna varð þó ekki verri en raun ber vitni. Um leið og þetta er metið að verðleikum, von- ar þingið, að þeir hinir sömu menn vinni áfram að umbótum á hinni mikil- vægu löggjöf, en þess er mikil þörf. 2. Stórstúkuþingið hefur fullgildar sannanir fyrir því, hversu hin borgfirzka héraðslögregla hefur haft gagngerð áhrif til bóta í bættri skemmtanamenn- ingu héraðsins í heild. Um leið og þing- ið þakkar þetta giftudrjúga spor, til að hefta áfengi og ómenningu á samkom- um, skorar það á önnur héruð landsins og sýslufélög að taka upp þenna sama hátt, sem gefizt hefur svo vel sem raun ber vitni. 3. Enn einu sinni skorar Stórstúku- þingið á stjórn landsins, sveitar- og bæj- arstjórnir, að hafa aldrei áfengisveiting- ar í veizlum sínum eða samkomum. 4. Stórstúkuþingið skorar á ríkis- stjórnina, að gera ráðstafanir í þá átt, að Áfengisverzlun ríkisins afhendi ekki birgðir af áfengi til einstaklinga né ann- arra, þegar líkur eru til þess, að þau áfengiskaup séu í sambandi við leyni- vínsölu. 5. Stórstúkuþingið leyfir sér, að skora á dómsmálastjórnina, að taka eftirfar- andi atriði til greina, við samningu reglugerðar, um sölu áfengis á veitinga- húsum, er sett verður samkv. áfengis- lögunum. Að vínveitingar samkv. 12. gr. séu að minnsta kosti ekki leyfðar nema 5 —6 daga vikunnar eins og víða tíðkazt í nágrannalöndum vorum. Að sérstakur eftirlitsmaður sé ráð- inn við hvert vínveitingahús, og þeir séu algerir bindindismenn. Að ríkt sé fylgt eftir þeim ákvæðum áfengislaganna, að ekki sé selt eða veitt áfengi ,,yngri mönnum en 21 árs“. 6. Stórstúkuþingið samþykkir að leggja aðaláherzlu á útbreiðslustarf innan Unglingareglunnar á þessu ári. 7. Stórstúkuþingið samþykkir að beina því til framkvæmdanefndarinnar að halda uppi sem öflugastri sókn og vörn í blöðum og tímaritum fyrir starfi og stefnu Reglunnar. Jafnframt þakk- ar Stórstúkuþingið læknum og öðrum þeim, sem skrifað hafa í blöð og tímarit til stuðnings bindindisbaráttunni í land- inu. 8. Stórstúkuþingið skorar á útvarps- ráð: a) að veita Góðtemplarareglunni tíma í útvarpinu til erindaflutnings um bindindismál og skaðsemi áfengis. — b) Reglan fái komið að í útvarpinu fræðslu og skemmtiþáttum í kvöldvöku- formi, t. d. einu sinni í mánuði. Þingið lýsti og ánægju sinni yfir stofnun hins nýja félags fyrrverandi áfengissjúklinga, en slík félög starfa nú í ýmsum löndum, og er þekktast þeirra Alcoholic Anonymous (A. A.) í Amer- íku. Skoraði þingið á Góðtemplararegl- una að styðja viðleitni þessa nýstofnaða félags hér á landi. P. S.

x

Eining

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.