Eining - 01.06.1958, Side 4
4
EINING
/
Hvað á að gera við
Svo heitir grein í janúar hefti Read-
er’s Digest 1958.
Vandamál þjóðanna eru mörg og illa
tekst að koma á jöfnuði í einu og öðru,
þrátt fyrir alla íhlutun sósíalismans.
Sums staðar er of lítil atvinna, en of
mikið af blessuðu kvenfólkinu. Frum-
stæðir eyjaskeggjar í suðurhöfum voru
áður fyrr ekki í miklum vandræðum með
slíkt. Ef illa aflaðist hjá þeim í manna-
veiðunum, þá átu þeir kvenfólk sitt. Við,
þessar hálfsiðuðu þjóðir, tímum nú ekki
að éta svo góðar dúfur.
I Bandaríkjunum eru nú, samkvæmt
áðurnefndri ritgerð, hálf önnur milljón
kvenna fram yfir karlmenn. Þetta er ekki
glæsilegtmeðalþjóðar á menningarstigi,
sem ekki leyfir fjölkvæni, nema svolítið
leynibrugg, eins og í áfengismálunum.
Hinir reikningshæfu þar vestra gera
ráð fyrir að árið 1975 verði umfram
kvenfólkið í Bandaríkjunum orðið
3,600,000. Aumingjarnir! Það er von að
þetta valdi nokkrum áhyggjum. En svo
skrifa sumar konur í Ameríku um það,
að nú verði þær að hjálpa mönnum sín-
um til að lifa. Þeir hrynja nefnilega nið-
ur á bezta aldri. Þeir eru alltaf á harða-
spretti eftir dollarnum, því að ekki að-
eins þurfa þeir dollara til sígarettukaupa
og annars, heldur þurfa konurnar og
krakkarnir töluvert, því að allar vilja
þær eiga dýrustu kápuna, fallegasta bíl-
inn, glæsilegustu íbúðina, fallegustu hús-
gögnin, öll nýtízku áhöldin, sjónvarp og
svo allt hitt, en allt kostar þetta dollara.
Við þetta bætast svo allar skemmtanirn-
ar.
Við þessar vægðarlausu dollaraveið-
ar eiginmannanna bætist svo sú byrði,
að þeir eiga að sinna heimilisstörfum,
skipta um á hvítvoðungnum, hræra í
grautarpottinum, þvo matarílátin,
þurrka ryk af glingri og húsgögnum, og
margt og margt. Þeir eru svo sem ekki
neinir herrar á heimilinu lengur. Þeir
eru aðdráttarmenn, sendlar, heimilis-
þjónar og barnfóstrar. Þeim finnst því
ekki mikið um tign sína. Á þá sækir of-
þreyta, of hár blóðþrýstingur og svo
minnimáttarkennd. Þeir fara að kvíða
því, samkvæmt sálfræðilegri glögg-
skyggni sérfræðingsins, sem skrifar
Digest-greinina, að þeir verði óhæfir eða
lítthæfir til þess að gegna skyldunni við
konu sína, sem ef til vill er lítið þreytt,
vel alin og á bezta aldri og vill hafa
ofurlítið „kelerí“. Og hamingjan góða!
ef sú hræðilega hugsun nær tökum á
vesalings karlmanninum, að hann verði
ekki kvenmannsfær, þá er svo sem
skiljanlegt að honum sé blátt áfram
dauðinn vís.
umizamkvenfólldð?
En þegar nú öllu spaugi er slept, er
þarna töluverð alvara á ferðinni. Eigin-
menn kvennanna í Ameríku hrynja nið-
ur á bezta aldri. Sem stendur eru
7,700,000 — sjö milljónir og sjö
hundruð þúsund ekkjur í Bandaríkjun-
um og margar þeirra á bezta aldri.
Margt miðar nú að því að stytta líf
karlmannsins en lengja líf konunnar.
Til dæmis hefur á 20 árum dauðsföll-
um kvenna af völdum barnsfæðinga
fækkað úr 65 af hverjum 10,000 lifandi-
fæddra bama niður í 4. Flestar konur
hafa einnig tileinkað sér takmörkun
barneigna og eru því ekki ofreyndar af
slíku.
Næstum allir sjúkdómar drepa fleiri
karlmann en konur, svo að ekki sé nú
minnst á styrjaldirnar. Dauðsföll af
völdum krabbameins er um 6% fleiri
meðal karlmanna en kvenna. Meira en
tvisvar sinnum fleiri karlar en konur
deyja úr hjarta- nýrna- og æðasjúkdóm-
um. Þannig deyja á ári um 100,000
íleiri karlmenn úr þessum sjúkdómum
en konur, og eru þetta flestir miðaldra
menn. Dauðsföll karlmanna úr krans-
æðasjúkdómum eru 75% fleiri en
kvenna.
Hvernig líst ykkur á, konur góðar!
Ráðlegast mun vera, þegar öllu gamni
er sleppt, og ef þið viljið hafa eitthvert
gagn og gaman af karlmönnum í fram-
tíðinni, að hjálpa þeim þá til að lifa.
Rétt mun að geta þess, svo að eng-
inn haldi að grein sú, sem hér var vitn-
að til, sé einhver markleysa, er rituð af
sérfræðingi, sem unnið hefur mjög eft-
irsótt verðlaun fyrir ritverk um hormóna
og er nú að rannsaka vald Elli kerling-
ar og skrifa um það. Maðurinn heitir
Selig Greenberg.
-------ooOoo------
Afreksmaður bindindismóla
heiðraður.
Drottning Englands hetur heiðrað mann í
Ástralíu, sem heitir W. H. Green, og er hin
nýja nafnhót lians Offieer of the disling-
uished order of the britisli empire. Heiður
þenna hefur drottningin veitt honum fyrir
afrek á sviði bindindismála. Meðal annars
hefur þessi maður verið einna atkvæðamest-
ur við að lcoma upp í landinu fjórum stór-
um nýtízku hótelum, sem ekki liafa um hönd
neinar áfengisveitingar. Eitt þeirra er 9 eða
10 hæða hótelið í Canberra, er kostaði það,
sem samsvara myndi um 15 milljónum ísl.
króna. — Eining hefur áður sagt frá afrek-
um þessa inanns og samherja hans, og sanna
framkvæmdir þeirra, að ekki er nauðsyn-
legt að framfleyta nýtízku ferðamannahótel-
um á áfengisveitingum. Slíkt er aðeins grilla,
sem áfengisunnendur hafa húið til.
Fm ungmenna-
félögunum
Ritstjóraskipti hafa orðið á Skinfaxa,
tímariti Ungmennafélags Islands, og hef-
ur tekið við ritstjórninni, Guðm. G.
Hagalín, rithöfundur. Honum virðast
engin takmörk sett í afköstum á ritvell-
inum og má búast við að eitthvað Iýsi
af Skinfaxa í höndum hans.
I fyrsta hefti þessa árgangs er þáttur, f
sem heitir Af vettvangi starfsins. Er þar
gerð grein fyrir ýmissi starfsemi félag-
anna. Um bindindismál segir þetta:
„Ástandið í þeim málum virðist fara
batnandi. í skýrslu UMS Kjalarnesþings
segir: „Ástandið í bindindismálum er
með ágætum á sambandssvæðinu. Öll
félögin leggja mikla áherzlu á algert
bindindi á samkomum sínum.“ Stjórn
sambands Borgarfjarðar skýrir svo frá,
að síðan héraðslögregla var stofnuð,
hafi ástand á skemmtunum í héraðinu
mjög breyzt til batnaðar. Síðasta þing
sambandsins samþykkti áskorun um að
fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla um al-
gert vínbann í landinu. „Ástand í bind-
indismálum allgott,“ segir í skýrslu
Vestfjarða. Stjórn sambands Skagafjarð-
ar segir svo: „Á árinu var stofnað sam-
band áfengisvarnafélaga í Skagafirði.
Þess vegna voru nokkrir fundir haldnir (
í héraðinu um þau mál, og átti ung-
mennasambandið allmikinn þátt í þessu,
auk þess sem formaður sambandsins
mætti á nokkrum fundum ásamt erind-
reka landssambandsins, Axel Jónssyni."
í skýrslu sambands Eyjafjarðar er sagt:
„Ástandið í bindindismálum er sæmilegt
og bindindismálin rædd alltaf öðru
hvoru innan ungmennafélaganna.“
Stjórn sambands Suðurþingeyinga segir:
„Mjög sæmilegar horfur.“ Loks segir ,
í skýrslu HS. Skarphéðins: „Á héraðs-
þingi eru bindindismálin rædd og gerð-
ar samþykktir í því efni. Ástandið í þess-
um málum virðist betra eftir því sem
fjær dregur þorpum og kaupstöðum.“
Gott er að heyra þessar fréttir frá
ungmennafélögunum. Ef þau leggjast
öll fast á sveif með öðrum samtökum
bindindismanna í landinu, ættu þau
sameiginlegu átök að geta orðið sigur-
vænleg. En ömurlegt er til þess að vita,
að óregla skuli vera þar mest, sem skil- '
yrði til menningar ættu að vera bezt, og
óreglan þar mest áberandi, sem æðstu
menntastofnanir landsins eru og forusta
alls menningarstarfs.
Gerum íslenzku þjóðina aftur fyrir-
mynd annarra þjóða í algeru bindindi.