Eining - 01.06.1958, Qupperneq 7

Eining - 01.06.1958, Qupperneq 7
V EINING 7 Æskulýðsheimilis templara á Akur- eyri veturinn 1957—1958. Starfsemi Æskulýðsheimilisins hófst að þessu sinni í Varðborg þann 14. október. Þá voru leikstofurnar opnaðar og lesstofan litlu síðar. Bókasafnið og lesstofan voru á efstu hæð hússins og meira aðgreindar frá leikstofunum en áður var. Gafst þetta vel. Leikstofurnar voru búnar sömu tækj- um og áður. Þar er knattborð, borðtenn- is, bob, töfl, kúluspil o. fl. Heimilið var. opið á briðjudögum og föstudögum kl. 5—7 fyrir börn úr 5. og 6. bekkjum barnaskólanna og kl. 8—10 fyrir ungl- inga. Aðgangur ókeypis. Aðsókn var mjög góð fram til ára- móta, en þegar líður á vetur, laðar snjór og lengri dagar til meiri útivistar og fækkar þá gestum á æskulýðsheimil- inu nokkuð. Gestir voru frá 14 til 63 á kvöldi, en oftast milli 30 og 40. Alls sóttu 1900 gestir æskulýðsheimilið. Aðsókn ungl- inganna var mun meiri en síðastliðið ár, og sýnir það, að þeir, sem venja kom- ur sínar í Varðborg á barnaskólaaldri , halda þvi gjarnan áfram. Námskeið voru sem hér segir: I október og nóvember námskeið í meðferð olíulita. Kennari var Einar Helgason. Þátttakendur voru 14. I des. var námskeið í föndri. Kennari var Jens Sumarliðason. Þátttakendur 11. I sama mánuði námskeið í hnútum og splæsing- um. Kennari var Finnur Daníelsson, skipstjóri. Þátttakendur voru 24. I jan. > og febrúar var námskeið í plast- og tága- vinnu. Kennari var Sigríður Skaftadótt- ir. Þátttakendur voru 14. I marz og apríl var námskeið í meðferð olíulita. Kenn- ari var Einar Helgason. Þátttakendur 11. Þátttakendur í námskeiðunum voru alls 75. Fleiri námskeið voru auglýst Lesflokkur úr stúk- unni Brynju á Akur- eyri. T.h. Steingrím- ur Ingvarsson, Árni Kárason. T. v. Jón Rögnvaldsson, Skúli Sigurðsson og Baldur Bragason. Á mynd- inni vantar Sverri Runólfsson. en féllu niður vegna ónógrar þátttöku. Eftir flugmódel-námskeiðið á s.l. vetri var stofnaður félagsskapur, er nefnir sig Modelklubb Akureyrar. I honum eru nær eingöngu drengir, sem hafa verið á námskeiðum í Varðborg. Félagsskap- ur þessi fékk ókeypis aðgang að einu herbergi í Varðborg tvö til þrjú kvöld í viku í vetur og vann þar eftir geðþótta. Starfseminni í Varðborg lauk 1. apríl, að undanteknu málaranámskeiðinu, sem áður er getið, og stóð til 15. apríl. Framkvæmdastjóri heimilisins var Tryggvi Þorsteinsson, yfirkennari. Sam- vinna við umsjónarfólk hússins var hin ágætasta og umgengi gestanna góð. Um- sjónarmaður hússins var Indriði Ulfs- son, kennari. Bókasafnið. Bókasafnið var opnað þann 22. okt. og starfrækt til 1. apríl. Safnið var opið tvo daga í viku. Nú hafði bókasafnið verið flutt upp á þriðju hæð og hafði þar til afnota tvö herbergi í norðurenda. Annað þeirra var notað fyrir lesstofu. Alls voru skráð 850 börn, sem fengu lánaðar bækur á þessum tíma, en auk þess lágu frammi ýmis blöð, einkum barnablöð og íþróttablöð. Flest komu 56 börn á einum degi á lesstofuna. Bezt var aðsókn að safninu í nóvember og yfirleitt var betri aðsókn að bókasafn- inu fyrir áramót, sem mun meðal annars stafa af því, að safnið eignaðist talsvert af nýjum barnabókum í haust. Fjögur útgáfufélög sendu safninu bækur: Bóka- útgáfa Æskunnar, Bókaútgáfa P. O. B., Bókaútgáfan Fróði og Bókaútgáfan Leiftur. Auk þess voru safninu send ýmis tímarit svo sem Nýjar kvöldvökur, Heima er bezt, Vorið o. fl. Af barna- bókum, sem mest voru lesnar, má eink- um nefna bækur Ármanns Kr. Einars- sonar og ýmsar nýjar bækur, sem ekki er hægt að telja upp. Hjá stúlkunum eru þær alltaf vinsælar Dóru-bækurnar og Oddu-bækurnar. I bókasafninu eru um 1600—1700 bindi. Bókavörður var eins og áður Bjarni Halldórsson, skrifstofustjóri. Lesflokkur. I vetur starfaði lesflokkur úr st. Brynju nr. 99 í heimilinu. Voru það 6 námsmenn úr M. A. Fengu þeir bækur hjá æskulýðsheimilinu og höfðu fundi sína í lestofunni. Formaður lesflokksins var Steingrímur Ingvarsson. Vonandi er þetta vísir að meiri svipaðri starfsemi. í stjórn Æskulýðsheimilisins voru eftirfarandi menn: Eiríkur Sigurðsson, Hannes J. Magnússon, Stefán Ág. Krits- jánsson, Jón Kristinsson og Guðmundur Mikaelsson. Óglœsileg uppskera. í sænsku blaði, sein heitir Folkets vál, er sagt, að nú séu fimm milljónir áfengissjúkl- inga (ofdrykkjumanna) í Bandaríkjunum. Þetta, og hjartasjúkdómar og krahbamein, sé mesta heilbrigðisvandamál þjóðarinnar. Árlega sé vinnutap sökum áfengisneyzlu metið á 400 milljónir dollara, 700 þúsund- um dollara sé árlega varið til vísindalegra rannsókna á áfengisbölinu, og er það einn fimmti þess, sem landbúnaðarráðuneytið ver til rannsókna á gin- og klaufnasjúkdómi. Námskeið í tágvinnu. Kennari Sigríður Skaftadóttir.

x

Eining

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eining
https://timarit.is/publication/833

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.