Eining - 01.08.1967, Side 1
25. árg.
Reykjavík ágúst—september 1967
8.-9. tbl.
Alorræna góíitemplaranámskeiitjð i Færeyjum
Ólafur Þ. Kristjánsson stórtemplar segir frá.
Mörgum er sjálfsagt í minni Nor-
ræna Góðtemplaranámskeiðið, sem háð
var í Reykjavík og á Akureyri sumarið
1964, ýmist af því að þeir komu þar á
samkomur eða af umtali. Hafa svipuð
námskeið verið haldin árlega að jafnaði
undanfarið. 1 fyrra féll námskeiðið þó
niður, vegna þess hve margir bindindis-
menn sóttu hástúkuþingið í Lausanne
og ungtemplaramótið í Reykjavík.
Nú í sumar var Góðtemplaranám-
skeiðið haldið í Færeyjum. Hófst það
miðvikudaginn 26. júlí, en því lauk
föstudaginn 4. ágúst, og stóð þannig í
10 daga. Mátti mótið heita vel sótt: um
eitt hundrað útlendingar og allmargt
Færeyinga, en margir þeirra sátu ekki
námskeiðið stöðugt vegna vinnu sinnar,
en voru að jafnaði með á kvöldfundum.
Islendingar voru þarna 17, á ýmsum
aldri. Voru flestir úr Reykjavík, en
nokkrir úr Hafnarfirði, Keflavík og
Akureyri. Fararstjóri var Kjartan Ól-
afsson, stórritari.
Samkomustaðurinn.
Námskeiðið var haldið í Mennta-
skólahúsinu í Höydölum, skammt fyrir
utan Þórshöfn; er svo sem 20—25 mín-
útna gangur þaðan niður í miðbæinn.
Hús þetta var áður brjóstveikrahæli, og
eru heimavistir í gömlu húsunum, en
skólinn sjálfur er nýlega byggður,
myndarlegt hús og rúmgott, og er þó
verið að auka við bygginguna. Bjuggu
námskeiðsgestir í heimavistunum og fór
vel um þá, en samkomur allar voru
haldnar í skólahúsinu, einkum í sam-
komusal skólans, sem var stór og við-
kunnanlegur.
Menntaskólinn stendur í hvammi und-
ir brattri brekku, þar sem ræktaður
hefur verið þéttur skógur. Er staðurinn
kyrrlátur og vel fallinn til hvíldar eða
vinnu. Er skammt til sjávar og ströndin
klettótt, en ekki langt undan landi blas-
ir Nolsey við, þar sem skáldið og um-
bótamaðurinn Nolseyjar-Páll átti heima
fyrir meira en hálfri öld.
Setning mótsins.
Setning mótsins fór fram með hátíð-
legum hætti. Fyrst lék Hornaflokkur
Þórshafnar nokkur lög. Síðan flutti
stórtemplar Færeyja, Harry S. Johan-
sen, ræðu og bauð menn velkomna. Síð-
an var færeyski þjóðsöngurinn „Tú al-
fagra land mítt“ sunginn. Að því loknu
flutti Peter Mohr Dam, lögmaður, setn-
ingarræðu og mæltist skörulega. — Lög-
Menntaskóli Færeyja.
Frá Kirkjubæ, lvinu forna biskupssetri.