Okkar á milli - 01.10.1987, Side 11
TVEIR KJÖRGRIPIR:
Grænland og gömul steinhús
Hér bjóðum við saman tvo kjörgripi, sem
óhætt er að mæla með; litlar en fallegar
bækur, rækilega myndskreyttar og þýddar
af þjóðkunnum mönnum, sem nú eru látn-
ir.
Lítil menningarsaga
Grænlensk dagbókarblöð eftir Thomas
Frederiksen segir frá daglegu lífi græn-
lensks veiðimanns í stuttu máli og óvenju
skemmtilegum vatnslitamyndum. Hjálmar
Ólafsson þýddi bókina og hún var gefin út í
samvinnu við Gyldendal í Kaupmanna-
höfn. Þetta er lítil atvinnu- og menningar-
saga þjóðar, sem á í vök að verjast vegna
miskunnarlausrar tækni nútímans, sem
ruglar eðlilega hrynjandi náttúrunnar.
Elstu hús landsins
Á seinni hluta átjándu aldar voru fyrstu
steinhúsin reist á íslandi, veglegar bygg-
ingar, sem enn standa og eru nú elstu hús
landsins. í bókinni Steinhúsin gömlu á Is-
landi skýra arkitektarnir Helge Finsen og
Esbjörn Hiort frá byggingarsögu embættis-
Nesi við Seltjörn, Stjórnarráðshússins í Reykjavík, Hóladómkirkju og kirknanna í Nr.: 1569
Viðey, Vestmannaeyjum og á Bessastöð- um. Dr. Kristján Eldjárn þýddi þessa merku Ekki fáanleg: Okkar verð: 1.400 kr.
bók á íslensku.
Ein afmörgum skemmtilegum vatnslitamyndum
eftir Grænlendinginn Thomas Frederiksen.
11