Vera - 01.11.1986, Side 11

Vera - 01.11.1986, Side 11
FINRRAGE varö til árið 1984 á alþjóðlegri ráðstefnu kvenna sem þá var haldin í Hollandi. Einn umræðuhópanna á ráð- stefnunni hét ,,Dauði konunn- ar“ (,,Death of a Fernale") og Þar ræddu konur úr hópi líf- fræðinga, læknao.fl. um nýjar aðferðir æxlunar- og erfða- tækninnar. Hugmyndin að samtökum er ynnu gegn frek- ari þróun á þessum sviðum faeddist í þessum hópi og sam- tökin ,,Feminist International Network on The New Reprod- uctive Technologies" eða EINNRET urðutil. Stofnfélagar voru 500 frá 12 þjóðlöndum. Þ®ssi samtök héldu síðan ráð- stefnu í Svíþjóð 1985 og þar var nafni samtakanna breytt í FINNRAGE til að undirstrika frekar markmið þeirra, en nafnið er skammstöfun fyrir: Alþjóðleg samtök kvenfrelsis- kvenna gegn æxlunar- og erfðatækni. (Feminist Internat- '°nal Network of Resistance fo Reproductive and Genetic ^ngineering). Á Svíþjóðarráð- stefnunni var gengið frá skipu- la9i samtakanna og samin stefn uyfirlýsing. ■ ,Stríð á hendur konum'1 Fulltrúar frá eftirtöldum óndum skrifuðu undir yfirlýs- joguna: Ástralía, Bangaldesh, rasilía, Kanada, Danmörk, Fngland, Frakkland, írland, Israel, Japan, Holland, Noreg- ur, Svíþjóð, Sviss, Bandaríkin og Vestur-Þýskaland. Yfirlýs- ingin hefst á þeim orðum að einstæður eiginleiki kvenna til að bera líf, fæða og annast það sé frá þeim tekinn með nýmæl- um æxlunartækninnar, að ver- ið sé að nota kvenlíkama eins og hvert annað hráefni til tæknilegrar framleiðslu. Þetta, segir í yfirlýsingunni, líkist því að striði sé lýst á hendur kon- um og náttúrunni. ,,/Exlunar- og erfðatæknin er ný tilraun til að taka yfirráðarétt kvenna yfir eigin líkamafráþeim.“ Þáseg- ir að tækni af þessu tagi geti aldrei leyst vanda, sem eigi sér félagslegar og efnahagslegar rætur og að það komi engum kúguðum hópum til góða að breyta gangi líffræðinnar. . . ,,Það á enginn rétt á barni líkt og um eign sé að ræða. Hvorki ófrjóar konur né frjóar, lesbíur né aðrar geta farið fram á leyfi frá ríkisvaldinu eða læknastétt til þess aðeignast barn.“ Sam- tökin hvetja allar konur til að koma i veg fyrir að líkamar kvenna verði notaðir af körlum í ágóðaskyni, til læknisfræði- legra tilrauna eða tilrauna í þágu vísinda almennt. „Lífinu fylgir alltaf áhætta. Líf er ekki hægt aö kerfisbinda eða full- komna. Að lifa krefst hugrekk- is. Við munum ekki hopa. Við munum ríghalda i samábyrgð okkarfyrir lífinu" segiráeinum stað í yfirlýsingu FINNRAGE. Flokkun kvenna eftir notagildi þeirra í yfirlýsingunni kemur fram sú skoðun, að erfða- og æxlun- artæknin verði notuð til að stýra frjósemi kvenna; að kon- ur verði flokkaðar eftir nota- gildi: „Nytsamar konur í iðn- væddu ríkjunum sem ættu að eignast börn og „gagnlausar konur í vanþróuðu ríkjunum, sem alls ekki ættu að eignast börn.“ Samtökin telja að þessi flokkun sé þegar komin á skrið með óendanlegri aðstoð við ófrjóar konur vesturlanda ann- ars vegar og ófrjósemisað- gerðum í stórum stil á konum i vanþróuðu ríkjunum hins veg- ar. Þá segir: „Við erum and- snúnar kynbætandi mann- fjöldastýringu og einkum og sér í lagi erum við andsnúnar framleiðslu „fullkominna barna." Samtökin fordæma allar ríkisstjórnir sem leyfa rannsóknir á fóstrum í þágu erfða og æxlunartækninnar. Og þau hvetja konur til að ná aftur í sínar hendur þekking- unni á og um leiö valdinu yfir meðgöngu og fæðingu. Yfir- lýsingunni lýkur á þessum orð- um: „Við leitum annars konar vísinda og tækni. Vísinda sem virða konur og lífið á jörðunni. Við hvetjum konur og karla til að slíta í sundur tengslin á milli tækni og gróðahyggju. Við hvetjum konur og karla til að slíta í sundur tengslin á milli vísindanna og iðnhyggjunnar og til þess að taka höndum saman við okkur um það að þróa samband þekkingar og lífsins sjálfs.“ Miðlun upplýsinga Markmiðum sínum hyggjast samtökin ná með því að efla upplýsingastreymi til kvenna um það sem er að gerast á sviði æxlunar- og erfðatækni, m.a. með útgáfu mánðarlegs fréttabréfs. Á næsta ári er gert ráð fyrir ráðstefnu annað hvort á írlandi eða Costa Rica, þar verður athyglinni beint að ófrjósemi og reynslu kvenna af læknum en yfirskrift ráðstefn- unnar er: Alþjóðlegur rann- sóknaréttur vegna læknis- fræðilegra og annarra vísinda- legra afbrota gegn konum.“ Þær sem hafa áhuga á að kynnast þessum samtökum nánar, geta skrifað til þessa heimilisfangs: Renata Duelli Klein P.O. Box 583 LONDON NW3 1RQ ENGLAND Nokkurt efni frá FINNRAGE er til staðar í Kvennahúsinu í Hótel Vík. Ms 11

x

Vera

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.