Vera - 01.11.1986, Blaðsíða 30

Vera - 01.11.1986, Blaðsíða 30
Virkjun jaröhitans á Nesjavöllum 1 Hi ^ . W * 9 9 . í:"-' •: ‘ ' . Mf 0 f Föstudaginn 17. 10. s.l. var samþykkt í stjórn veitustofnana eftirfarandi tillaga, ættuð frá hitaveitustjóra, sem Páll Gíslason formaður stjórnar bar upp: Stjórn veitustofnana samþykkir að hefja nú þegar framkvæmdir við virkjun jarðhitans á Nesjavöllum fyrir Hitaveitu Reykjavíkur og verði 1. áfangi virkjunar a.m.k. 100 MW. Með viðbót minni: Áður en hafist verður handa við 2. áfanga virkjunarinnar verði aflþörf endurmetin og virkjunarhraða breytt skv. því mati. Og hvað með það?? Ekki hefur verið skortur á heitu vatni í Reykjavík síð- ustu árin enda hafa veturnir verið fremur mildir en búast má við að á næstu árum verði skortur ef ekkert er að gert. Kemur þar tvennt til: Talið er að hitaveitusvæðið hér í Reykjavik og í Mos- fellssveit hafi verið ofnýtt síðustu misseri þannig að í óefni stefni því hættan á svokallaðri kulda og efnameng- un vex eftir því sem meira er dælt upp og menn telja sig jafnvel merkja slíka mengun á Elliðaárssvæði (lækkun kaldavatns yfirborðs í grennd) og á Laugarnessvæði má búast við seltumengun sem er t.d. til staðar á Seltj- arnarnesi og getur valdið m.a. tæringu í lögnum fyrir utan að salt vatn bragðast ekki eins og ósalt. Ekki er full- komlega vitað hvaða heildaráhrif langvarandi píning á svæðinu hafi en fullvíst má telja að þau áhrif séu ekki góð. — Því er hluti þarfarinnar að létta undir með núver- andi jarðhitasvæðum og gert er ráð fyrir að taka öll 100 MW frá Nesjavöllum í notkun strax en það afl má nota allt árið og fáist því u.þ.b. 800—900 GW stundir af varmaorku árlega frá 1. áfanga Nesjavalla. Heildar- orkuþörf er nú u.þ.b. 2700 GW stundir á ári sem full- nægt er með núverandi jarðhitasvæðum og kyndistöð á toppálagstímum. Nesjavellir munu því minnka álag á núverandi svæöum um u.þ.b. 30% fyrst en svo má bú- ast við aukinni orkuþörf vegna m.a. fólksfjölgunar og þá er komið að síðari ástæðu aukinnar aflþarfar næstu ár- in. I öllum sþám sem kynntar hafa verið um fólksfjölgun í Reykjavík og hve rúmt húsnæði má reikna á hvern ein- stakan er gert ráð fyrir aukningu. Þörfin fyrir heitt vatn fer eftir heildarrúmmáli byggðar á svæðinu, íbúðarhúsa og atvinnuhúsnæðis því við gerum ráð fyrir að ekki verði breyting á því hvað fólk vilji hafa heitt inni hjá sér. — í öllum spám er fólgin óvissa eins og gefur að skilja en yfirleitt eru þær byggðar á reynslu undangenginna ára. í umræðunni um virkjun Nesjavalla undanfarin misseri, sérstaklega í fjölmiðlum fyrir síðustu borgarstjórnar- kosningar hafa Alþýðubandalagsmenn og hitaveitu- stjóri deilt um þetta atriði en báðir hafa tölur frá skipu- lagsstofu höfuðborgarsvæðisins svo merkilegt sem það er. Hitaveitustjóri gerir ráð fyrir að mestar líkur séu á þvi að rúmmálsaukning húsnæðis verði 3,2% árið 1986 og minnki í 2,3% um aldamót sem gerir að meðal- tali 2,9%. Á grundvelli þessara talna gerir hann ráð fyrir 20MW (160—180 GW sundir í orku) á ári í aflaukningu hjá H.R. þ.e. hann gerir ráð fyrir að 2. og 3. áfangi virkj- unarinnar á Nesjavöllum verði teknir í notkun 1995 og ► 2000. Gott svæöi Vatnsnotkunfrá 1961—1985 hefurverið að meðaltali 1,74 m3 á m3 húsnæðis á ári, en hefur frekar minnkaö hin síðari ár í 1,57 1985. Húsnæði hefur að meðaltali aukist um 1,03 millj. m3 s.l. 10 ár þannig að aukin þörf fyrir vatn hefur að meðaltali verið 1,80 millj. m3 á ári sem samsvarar u.þ.b. 54 GW stundum á ári. Allar spár eru i þá veru að aukning aflþarfar verði hægari næstu ár því má setja 50 GW stundir sem hámarkstölu og ef ég nota hana aö fullu næstu 5 ár fæst aukning um 250 GW stundir sem er minna en 30% af því sem hitaveitustjóri vill meina. Samkvæmt mínum tölum (hámarkstölur) ætti 100 MW virkjun á Nesjavöllum að verða fullnýtt fremur á 10—15 árum en 5 árum eins og hitaveitustjóri gerir ráð fyrir, ef gert er ráð fyrir fullri eðlilegri nýtingu á núverandi jaröhitasvæöum H.R. Þess vegna lagöi ég fram fyrrnefnda viöbótartillögu um endurskoðun virkj- unarhraöa áður en hafist verði handa við 2. áganga virkjunarinnar. Þess má geta og ekki að ástæðulausu, að allar rann- sóknir benda til þess að jarðhitasvæðið á Nesjavöllum sé gott til virkjunar og telja vísindamenn að vel hafi verið staðið að rannsóknum þar þegar á heildina er litið. Yfir- ^ litsskýrsla um vinnslugetu svæðisins hefur verið birt og bendir á að svæðið muni bera a.m.k. 300 MW aflstöð, til 30 ára. Kostnaður Nú þegar hefur verið varið 800 milljónum í rannsóknir og boranir á Nesjavöllum aðallega á s.l. 2—3 árum en fyrst var farið að bora á Nesjavöllum um 1960. Gert er ráð fyrir aö stofnkostnaður 1. áfanga (100 MW) verði í heild 2.600 milljónir króna. Þannig að á vantar 1.800 J

x

Vera

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vera
https://timarit.is/publication/858

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.