Vera - 01.11.1986, Blaðsíða 18
Þegar (sland byggöist var silfur helsti gjaldmiöill Noröurlanda
en á 11. öld fór að tíðkast að nota vaðmál og kvikfé í stað peninga.
Síðan á 14. öld hefurfiskur verið mikilvægur í verðreikningum og
lengi helsti gjaldmiðillinn. Reyndar tíðkaðist allt til 1964 að birta
í Stjórnartíðindum verðlagsskrá byggða á landaurum þ.á.m. fisk-
um.
Það er líka táknrænt að fiskar og önnur sjávardýr skreyta alla
mynt okkar og á sjálfri krónunni er þorskur. Nú heyrum við einnig
að fiskkvótar séu orönir gjaldmiðill útgerðarmanna og erum við
þá komin hringinn frá 14. öld.
Allt er þetta eðlilegt og skýrist af mikilvægi fisks i öllum okkar
þjóðarbúskap en búskapurinn er æði sveiflukenndur og oft
ótraustur. Ýmisteraflahrotaeðaördeyða, manneklaeðaatvinnu-
leysi, fiskskortur á mörkuðum eða birgðir hlaðast upp. Atvinnulíf-
ið byggist á vertíðum og er því að mörgu leyti á stigi veiðimennsku
en ekki iðnaðarþjóðfélags.
Fram undir síöustu aldamót var skreið mikilvægust í útflutningi
landsmanna en saltfiskur ráðandi fram yfir miðja þessa öld, síðan
hafa f rystar fiskafurðir gefið mestar tekjur, en saltfiskf ramleiðslan
haldist jöfn og mikil.
Vel er þekkt að svonefndur líftími vöru, þ.e. mesta vinsælda-
skeið, er sífellt að styttast, framboð matvæla í hinum iðnvædda
heimi er alltaf aö aukast, vörur koma og fara, þeir sem ekki stunda
sífellda vöruþrón dragast aftur úr.
Eru þá ekki dagar hefðbundinnar fiskvinnslu á enda? Hvað tek-
urvið? Ferskfiskútflutningurog vinnslaerlendis? Verksmiðjuskip
og vinnslaásjó? Verðafrystihúsinstarfandi eftir 10ár? Verður þá
atvinnu að hafa í fiskvinnslu í landi?
Ég held, að óhjákvæmilega verði miklar breytingar í fiskiðnaði
og viðhorfum til hans næstu árin. Þær breytingar munu hafa áhrif
á afkomu fyrirtækjanna og atvinnulífið í landinu.
Margt bendir til að hefðbundin vinnsla þ.e. frysting í blokkir og
flakapakkningar og hefðbundin saltfiskverkun muni hopa fyrir
mun fjölbreyttari vinnslu, en á sama tíma muni sérhæfingin auk-
ast, því að sérhæfing eykur framleiðni og fjölbreyttari og fyllri
vinnsla eykur verðmæti afurðanna.
Sérhæfingin getur verið fólgin í miðlun fisks milli nærliggjandi
vinnslustöðva, þær skiptast á fisktegundum t.d. með því að fiski
í kæligámum verður ekið eða siglt milli hafna. Sumar tegundir má
frysta skömmu eftir veiði t.d. kolategundir, skötu og rækju,
18