Vera - 01.11.1986, Page 15
Ljósmynd: Svala Sigurleifsdóttir
ANNA
dr. phil. h.c. fyrsti kvenheiðursdoktorinn
frá Háskóla íslands.
Þaö er siður háskóla aö veita heiðursdoktorsnafnbætur á
tyllidögum og þegar Háskóli íslands hélt upp á 75 ára afmæli
sitt á dögunum voru tuttugu karlar og konur kölluö til að gera
honum þaö til sæmdarauka að þiggja heiöursdoktorsnafnbót,
og var þaö mikið mannval, bæöi innlendra og erlendra fræöi-
manna. Konurnar voru aö vísu bara tvær, þær Margrét II.
Danadrottning, sem veittur var titillinn fyrir farsælar lyktir
handritamálsins, og hefur margur þjóðhöfðinginn meö minni
verðleika en hún þegiö doktorsnafnbætur. Hin konan var
Anna Siguröardóttir, fræðimaður og stofnandi kvennasögu-
safnsins, sem hlýtur þessa nafnbót fyrst íslenskra kvenna.
Ályktunarorö heimspekideildar fyrir veitingunni voru þessi:
,,Anna Sigurðardóttir er fæddað Hvítárbakka íBorgarfirði ár-
ið 1908. Hún er að mestu leyti sjálfmenntuð og vann einkum við
heimilisstörf uns hún stofnaði Kvennasögusafn íslands og
gerðistforstöðumaðurþess árið 1975. Hún hefur unnið mikið að
kvenréttindamálum, bæði hér á landi og á alþjóðavettvangi, og
meðal annars setið í stjórn Kvenréttindafélags íslands.
Anna hefurskrifað fjölda geina um félagsmál og fræðileg efni
og nýlega hefur hún sent frá sér tvö mikil rit sem ástæða er til
að nefna sérstaklega. Hið fyrra nefnist ,,Úr veröld kvenna —
barnsburður“ og kom í öðru bindi ritsins Ljósmæður á íslandi
1984. Hið siðara er bókin Vinna kvenna á íslandi í 1100 ár sem
Kvennasögusafnið gaf út 1985. Þetta eru þörf og merk safnrit
sem eiga eftir að koma öðrum höfundum að ómetanlegu gagni.
Með útgáfu þeirra hefur Anna gerst brautryðjandi kvennasögu-
rannsókna á íslandi.
Merkasta framlag Önnu til fræðanna er þó sennilega stofnun
og starfræksla Kvennasögusafns íslands. Hún setti það á fót 1.
janúar 1975, ásamt tveimur konur öðrum, og lagði undir það
ibúð sína. Síðan hefurhún annastsafnið, launalaust, og erjafn-
an til taks að veita nemendum og fræðimönnum hvers konar
leiðbeiningar á fræðasviði sínu.
Af þessum sökum telur Háskóli íslands sér það sæmdarauki
að heiðra Önnu Sigurðardóttur með titlinum doctor philosoph-
iae honoris causa. Sé það góðu heilli gert og vitað."
Þaö var stór stund fyrir allar konur í fullsetnum sal Háskól-
ans þegar dr. Anna tók viö heiðursbréfi sínu úr hendi forseta
heimspekideildar. Þaö er ekki einungis viöurkenning fyrir frá-
bært eljustarf hennar sjálfrar heldur fyrir alla sem hafa unnið
aö kvennasögu hér á landi.
Þótt dr. Anna sé aö nálgast áttrætt lætur hún engan bilbug
ásér finna. Hún erað vinnaaö riti um nunnuklaustur á íslandi,
og flutti hún skemmtilegt erindi um það efni á vegum Háskól-
ans fimm dögum eftir aö hún haföi öðlast borgararétt i honum.
VERA þakkar þér fyrir brautryðjenda starf á sviði íslenskra
kvennarannsókna og óskar þér til hamingju meö verðskuld-
aöa viðurkenningu, dr. Anna! ga
SVART/HVÍT LJÓSMYNDAÞJÓNUSTA
STÆKKUM EFTIR NÝJUM OG GÖMLUM
MYNDUM EÐA FILMUM
SENDUM í PÓSTKRÖFU.
Auðbrekku 14
P.O. Box 301
200 Kópavogur
Sími 91-46919
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVÍKURBORG
Fóstrur/Aðstoðarfólk
óskast
Hefiröu áhuga á börnum og uppeldisstarfi?
Viltu leyfa skipulagshæfileikum þínum aö njóta sín?
Dagvist barna í Reykjavik óskar aö ráöa fóstrur og aöra
með hliðstæða menntun til starfaf.o.m. 1. nóv. nk. viö
Foldaborg sem er nýr 3ja deilda leikskóli í Grafarvogi.
Viljiröu vera meö frá upphafi aö móta og byggja upp nýj-
an leikskóla í nýju hverfi, haföu þá samband við Ingi-
björgu Sigurþórsdóttur forstöðumann eöa Fanney
Jónsdóttur umsjónarfóstru sem veita allar nánari
upplýsingar i síma 27277 daglega.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 98, 6. hæð á sér-
stökum eyðublöðum sem þar fást.
15