Vera - 01.11.1986, Síða 26

Vera - 01.11.1986, Síða 26
. Eins og öllum er kunnugt voru í vor sam- þykktar breytingar á lögum um Húsnæðisstofn- un ríkisins sem fólu í sér gjörbreytingu á út- lánareglum til þeirra sem eru að eignast eigið húsnæði. Lagafrumvarpið var samið að frum- kvæði aðila vinnumarkaðarins og var byggt á samkomulagi um húsnæðismál sem undirritað var í tengslum við gerð kjarasamninganna í lok febrúar s.l. Frumvarpið var samið á skömmum tíma og var afgreitt sem lög frá Alþingi í vor eftir hraðferð í gegnum þingið. Mjög skammur tími gafst því til að kynna sér hvað þarna var á ferð- inni og gera sér grein fyrir því sem að var. Kvennalistakonur sáu þó strax að ýmislegt var við frumvarpið að athuga og komu með breytingartillögur og athugasemdir við það. Ljóst er, að mörg göt eru á lögunum eins og þau eru núna og verður strax að taka til hönd- unum ef stórir hópar fólks eiga ekki alveg að vera útilokaðir frá húsnæðislánakerfinu. Þó verður fyrst og fremst að hafa í huga að nýju lögin taka einungis mið af því að fólk eigi sitt íbúðarhúsnæði sjálft. Ekki er miðað við það að fólk hafi þar um neitt að velja, frekar en áður. Kvennalistinn og húsnæðismálin Við umfjöllun Alþingis á lögunum kom fram í nefndar- áliti félagsmálanefndar neöri deildar að samkomulag hefði orðið um þaö aö Milliþinganefnd í húsnæðismál- um skyldi halda áfram störfum eftir að þingi lyki og ,,skila tillögum til ríkisstjórnarinnar nægilega snemma til þess að hægt verði að leggja frv. fram á haustþing- inu“. Það sem m.a. var talið þurfa að athuga var fjár- mögnun húsnæðislánakerfisins til frambúðar, leigu- húsnæði, húsnæðissamvinnufélög, kaupleiguíbúðir, áhrif nýja kerfisins á félagslegar íbúðabyggingar, íbúðir fyrir aldraða og öryrkja svo eitthvað sé nefnt. Kvenna- listakonur töldu nauðsynlegt að taka á öllum þessum málum og var það forsenda fyrir því að þingkonurnar settu sig ekki á móti frumvarpinu á þinginu í vor. Einnig benti Kvennalistinn á að fjármögnun kerfisins væri langt frá því að vera trygg og stefnir í algjört óefni ef ekkert verður að gert. í Milliþinganefndinni eru 5 full- trúar stjórnarflokkanna og 3 fulltrúar stjórnarandstöðu. Þrátt fyrir skuldbindandi samþykkt félagsmálanefndar Alþingis liggja enn ekki fyrir tillögur sem gætu orðið grunnur að lagabreytingum. Fulltrúar stjórnarflokk- anna virðast ekki hafa það vegarnesti frá stjórnvöldum að vænta megi raunverulegs árangurs og hafa aðeins örfáir fundir verið boðaðir í nefndinni í sumar. Einstakir nefndarmenn virðast heldur alls ekki hafa áhuga á að takast á við það verkefni sem Milliþinganefndinni var falið af Alþingi í vor. Mörg ákvæði hinna nýju laga eru einnig mjög óhag- stæð, t.d. þeim sem vinna óreglulega eða hafa tekið sér frí frá launuðum störfum. Má nefna sem dæmi að kona, sem er búin að borga í lífeyrissjóð í mörg ár en fer svo í nám í tvö til þrjú ár hefur engan lánarétt nema hún hafi borgað í lífeyrissjóð á meðan á náminu stóð. Ekki er hægt að ná réttindum með því að vinna í námsleyfum eins og áður var hægt í lífeyrissjóðunum. Þar með eru námsmenn sem e.t.v. voru komnir með fullan lánsrétt í lífeyrissjóði útilokaðir frá láni, nema þeir borgi samfellt í lífeyrissjóð eftir að námi lýkur. Að vísu geta námsmenn borgað I lífeyrissjóð og geta þeir þá fengið lán hjá lána- sjóðnum fyrir þessum lífeyrissjóðsgreiðslum. Ekki nærri allir námsmenn hafa borgað I lífeyrissjóð af náms- lánum sínum hingað til og margir taka alls ekki lán, svo að þetta kemur sér illa fyrir marga. Það er alltaf vafamál hvort á að vera að lappa uppá kerfi eins og þetta húsnæðislánakerfi sem hefur svo ; marga galla að best væri að byrja alveg frá grunni. Stefnumörkun I húsnæðismálum hefur verið mjög óljós á undanförnum árum. Ekki hefurstefna núverandi ríkisstjórnar heldur verið neitt til að hrópa húrra fyrir. Hún greip fegins hendi tillögur aðila vinnumarkaðarins um ,,lausn“ á þeim málum án þess að gera sér nokkra grein fyrir að hverju er stefnt með tillögunum. — Ráðamenn virðast ekki hafa gert sér grein fyrir hvenær allir sem vilja geti fengið 70% af kaupverði

x

Vera

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vera
https://timarit.is/publication/858

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.