Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.01.1916, Blaðsíða 6

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.01.1916, Blaðsíða 6
2 víkur, og mun sá fyrirleslur birtast í næsta hefti þessa tímarits. Á fundinum voru 8 fjelagsmenn. 27. fundur var haldinn á vitamálaskrifstofunni miðvikudaginn 15. desember 1915. Til 3. umræðu var frumvarp til reglna um sölu og prófun Port- lands-sements. Var frumvarpið samþykt með nokkr- um breytingum, og eru reglurnar þannig samþyktar prenlaðar hjer aftar. Því næst ílutti Th. Krabbe erindi um »Islands Fyr« og mun það birtasl í næsta liefti. Á fundinum voru 9 fjelagsmenn. 2. Reglur um gerðavdóm Verkfræðingafélags íslands. Samþyktar á fjelagsfundi 12. marz 1915. Verkfræðingafjelag íslands tekur að sjer að skipa gerðardóma til að leggja fullnaðarúrskurð á ágrein- ing manna í tekniskum málum, með þeim skilyrð- um, er hjer segir: 1. gr. Beiðni um skipun gerðardóms má senda stjórn Verkfræðingafjelagsins, þegar ágreiningur rís út af samningi um vinnu, efnisframlög eða að öðru leyli um teknisk mál. Nú er ákveðið í samningi, að ágreining, sem rísa kunni út af honum milli aðila, skuli útkljá með gerðardómi eftir fyrirmælum þeim, sem hjer eru sett, og nægir þá, að annar málsaðili beiðist gerðardómsins. Ef samningur aftur á móti ber það ekki með sjer, að gerðardóms Verkfræð- ingaíjelagsins skuli leitað, eða ef samningur er eng- inn, en báðir málsaðilar vilja hlíta gerðardómi Verk- fræðingafjelagsins, skulu þeir báðir senda fjelags- stjórninni beiðni um skipun dómsins og jafnframt yfirljrsingu um. að þeir játist undir allar þær reglur, er hjer eru settar. 2. gr. Beiðni sje jafnan skrifieg og greini glögglega, um hvað ágreiningurinn er. Beiðninni skal fylgja samningur sá, sem deilan er sprottin af, og aðrar þær upplýsingar, sem gera fjelagsstjórninni fært að nefna þá menn í dóminn, er hún hyggur hæfasta til að fjalla um málið. 3. gr. Gerðardóminn skipa þrír menn. Einn þeirra skal vera lögfræðingur, fastráðinn af fjelagsstjórn- inni, og situr hann jafnan í dómnum, er ekki mæla sjerstakar ástæður i móti; hann er forseti dómsins, og stjórnar störfum hans. Hinir tveir sjeu verk- fróðir, og velur fjelagsstjórnin þá í hvert skifti eftir málavöxtum. Þegar þeir, er kjörnir voru, hafa lýst yfir því, að þeir sjeu fúsir á að gera um málið, er bæði málsaðilum og dómsforseta tilkynt, hverjir gerðarmenn sjeu. Fallist annarhvor málsaðila ekki á skipun dómsins, skat hann innan hæfilegs frests, er fjelagsstjórnin ákveður í hvert skifti og ekki sje skemri en fjórir sólarliringar, senda stjórninni rök- studd mótmæli. Úrskurðar stjórnin, hvort mótmælin skui tekin til greina að nokkru eða öllu, og hagar þá skipun dómsins eftir því. Tekur dómurinn þá þegar til starfa, en jafnskjótt og fresturinn er á enda, ef engin mólmæli eru þá fram komin. Ef ein- hver gerðarmanna gengur frá í miðjum klíðum, gera hinir tveir um málið, en fjelagsstjórnin nefnir til oddamann, ef þarf. 4. gr. Ef ágreiningurinn er aðeins um smávægileg at- riði, getur fjelagsstjórnin, með samþykki beggja málsaðila, kosið einn verkfróðan mann til að skera úr málinu í stað þess að skipa þriggja manna dóm. Skal dómurinn, að svo miklu leyli sem þvi verður við komið, fylgja sömu reglum sem venjulegir gerðardómar, og skal hann, eflir þörfum, leita að- stoðar og ráða hins fastráðna lögfræðings. 5. gr. Þegar gerðardómurinn heíir tekið til starfa og kynt sjer málið, eins og það liggur fyrir í þeim skjölum, sem beiðninni fylgdu, gefur liann báðum málsaðilum tækifæri til að skýra málið og leggja fram allar frekari upplýsingar, sem á þarf að halda. Nota má skriílega eða munnlega málfærslu eða hvoratveggja. Hvor málsaðili um sig á rjett á, að kynna sjer það, er hinn málsaðilinn liefir borið fram, og fá útskrift úr gerðabókinni um málið. 6. gr. Málsaðilar eiga heimting á, að öllum frumritum, uppdráttum og þesskonar sje skilað aftur að mál- inu loknu, en þó eigi fyr en málskostnaður er gieiddur. Alt annað, sem lagt hefur verið fram í málinu, sjerstaklega allar skýrslur og mállýsingar, verður eign Verkfræðingafjelagsins. Af öllum skjöl- um, sem skilað er aftur, getur stjórn fjelagsins heimtað eftirrit, er gerðardómurinn staðfestir 7. gr. Gerðardómnum er heimilt að leila sátta, hvort sem málið er langt eða skamt komið, ef ástæða þykir til. 8. gr. Gerðardómnum er lieimilt sjálfum að leita upp- lýsinga og gera rannsóknir í málinu. Heimta iná,

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.