Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.01.1916, Page 7

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.01.1916, Page 7
3 að málsaðilar sjállii mæti fyrir dóminum, ef það er ekki óhæíilegum vandkvæðum bundið. Einnig má heimta, að aðilarnir geri sitt ítrasla til, að aðrir, sem liafa liaft afskifti af málinu, gefi dómnum skýrslu. Að jafnaði má ekki meina máisaðilum að mæta fyrlr dómnum með verkfróða eða lögfróða ráðunauta sjer við hlið, en þó getur dómurinn kvatt þá eina fyrir sig, þegar honum þykir við þurfa. 9. gr. Gerðurdómurinn notar gerðabók, sem stjórn fje- lagsins löggildir. Bókunina annast ritari, sem dóm- urinn tilnefnir og sje hann veujulega einn gerðar- manna. Skulu gerðarmenn (og ritari) undirskrifa gerðabókina i hver fundariok. Einnig skulu þeir, sem mæll hafa á fundi, rita nöfn sín undir fundar- gerðina, en telji þeir eitthvað rangt bókað, eiga þeir rjett á að bóka alhugasemd um það. 10. gr. Nú telur dómurinn málið nægilega upplýst eða álítur, að málsaðilar hafi liaft nægan tíma til að færa fram gögn sín, og skal þá málið tekið til úr skurðar. Ef dómurinn siðan, en áður en gerðin er uppkveðin, kemst að þeirri niðurstöðu, að einhverj- ar upplýsingar vanti, sem hann telur nauðsynlegar, skal málið tekið til meðferðar að nýju og upplýs- inganna leitað, ef lil vill með aðsloð aðila. Að svo búnu skal jafnan gefa báðum aðilum kost á, að kynna sjer málið, eins og þá er komið, og lýsa skoðun sinni og afstöðu. 11. gr. Nú mætir ekki annar inálsaðili fyrir dómnum, eða stuðlar ekki á annan hált að því, að skýra málið eða greiða, og verður þá málið útkljáð eftir þeim upplýsingum, sem hinn aðilinn hefur lagt frain, og þeim sein dómurinn hefur sjálfur aflað sjer. 12. gr. Dómurinn skal fara eftir samningum aðila, ahnennum lögum og landsvenju. Gerðina skal kveða upp eins íljótt og unt er, og ekki seinna en fjórum vikum eftir að inálið er tekið til úr- skurðar. Með gerðinni skal leggja úrskurð á hvert einstakt ágreiningsatriði; einnig skal það ákveðið, hverjir greiða skuli koslnað þann, sem gerðardóm- urinn liefur haft í för með sjer. Stjórninni er heimilt að láta prenta gerðina i límariti fjelagsins, annaðhvort í heild sinni eða að nokkru leyti; þó skal halda nöfnum hlutaðeigenda leyndum, ef þess er óskað eða hentara þykir. 13. gr. Ef gerðarmenn koma sjer ekki sainan, sker meiri hluti úr. Nú fæst ekki meiri hluti með úr- skurði á máli eða einstöku atriði, og skal þá senda öll málsskjölin, ásamt skriflegu álili hvers einslaks gerðarmanns, til stjórnarinnar, og tilnefnir liún þá oddamann; sker hann úr þeim atriðum, sem ekki hefur fengist meiri hluti um, með því að hallast að einhverju því álili, er fyrir liggur, um hvert þeirra. 14. gr. Málsaðilar eru að öllu leyti bundnir við gerð- ina og verður henni ekki skotið undir neinn annan dóm. Aðstoðar dómstólanna má leita til að fá ákvæðum gerðarinnar framgengt, ef ekki fæsl að öðrum kosti. 15. gr. Sljórn fjelagsins getur, ef ástæða þykir til, heimlað tryggingu málsaðila fyrir kostnaði við gerð ardóminn, og sje í þessu tilliti farið eftir tillögum gerðarmanna. Að málinu loknu sendir gerðardóm- urinn stjórninni reikning til úrskurðar yíir allan kostnað, þar með þóknun handa gerðarinönnum. Til greiðslu reikningsins á fjelagsstjórnin aðgang að báðum aðilum jafnt, eða öðrum fyrir báða, liversu sem kostnaðinum í gerðinni er skift á milli þeirra. Sá aðilinn, sem þannig kann að greiða meira en honum ber, á þá aðgang að hinum. 3. Regluv Verkfræðingafjelags íslanils um sölu og prófun I’ortland-seinents. Sampyktar á fundi fjelagsins 15. deseniber 1915. Porllandsemenl er steinlímstegund sem harðnar í vatni. Aðalefni semenlsins eru nokkrar kalk- og leir- tegundir, er úr þeim gerð blöndun, sem brend er að gjalli og því næst möluð injög smátt. Heimilt er að blanda sementið, eftir að það er brent, ýmsum öðrum efnum til þess að flýta fyrir eða seinka storknun en ekki mega þau nema meir en 3% af þyngd sementsins. I. Portlandsement skal selja i heiltunnum, háiftunniim eða pokum. Tunnurnar skulu vera sterkar og þjettar. Sje ekki öðruvísi ákveðið, skal þyngdin vera þessi: heiltunna: 180 kg brúttó, 170 kg nettó hálftunna: 90 — — 83 — — Pokarnir skulu veca sterkir, þjettir og óskemdir;

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.