Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.01.1916, Page 14

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.01.1916, Page 14
10 skyldi þvi að eins bæla, að biýna nauðsyn bæri til. Aðalpóstvegir skyldu vera a in. k. 6 álna breiðir, og balli ekki meiri en 3—4 þml. á alin (1 : 8 til 1 : 6). Jafnframt var nú ákveðið, bverjir skyldu vera aðalpóstvegirnir, og voru þeir þessir: 1. Frá Reykjavík til ísafjarðar. 2. —-----------til Akureyrar. 3. — Akureyri til Seyðisfjarðar. 4. — Reykjavík tii Preslsbakka. 5. — Prestsbakka til Eskifjarðar. IJað þótli orka nokkurs tvímælis, hvort ákvæðin um gerð aðalpóstveganna væru þannig, að skylt væri að gera þá akfæra, og ekki fullnægja þeir kröfum þeim, sein nú eru gerðar til akvega. En að tilætlun llutningsmanna liafi verið að gera þá ak- færa, það er valálaust. Framsögumaður, Þórar- inn Röðvarsson, segir meðal annars, er liann leggur lögin fram: »IJað sem vantar hér, eru méginreglur fyrir vegagerðinni.........Pær meginreglur, sem sjálfsagt er að fylgja við vegagerðir, eru þær, að bæta fyrst og fremst alla aðalpóstvegi, og hafa þá, eins og vegi yfir höfuð, svo breiða, að ekið verði vögnum el'tir þeim........Það er sjer í lagi eitt, sem hafa verður l'yrir augum, þegar vegir eru gerðir, og það er, að hægt verði að hafa þá á sínum tíina fyrir vagnvegi. IJelta hafa menn ekki haft fyrir augum bjer á landi, og vegurinn, sem liggur hjer upp úr höfuðstaðnum sjálfum er eigi svo gerður, að unt sje að nota hann fyrir vagnveg. IJað væri sannar- lega æskilegt, ef Reykvikingar vildu sem fljótasl breyta honum i vagnveg, öðrum lil eftirdæmis og fyrirmyndar. Jeg hef sjájfur lesið, og veit líka, að flestum li. þingdm. muni vera það kunnugl, að fyrir 3 þúsundum ára síðan óku menn í vögnum, en sá, sem hefur alist upp á þessu landi, og al.drei sjeð önnur lönd, veit varla hvað það er að aka í vagni«. Pessi lög slóðu ekki lengi. Þegar á Alþ. 1891 var borið upp frv. til nýrra vegalaga, og var flutn- ingsmaður Jens Pálsson. Fyrir honum vakti ekki aðeins að gera nýja skipun á vegagerðunum, heldur yfir höfuð að koma samgönguinálum lands- ins í fast horf. Hann fann það að lögunum frá 1887, að þau lögðu aila áhersluna á aðalpóslveg- ina, en hann vildi láta leggja þar vegi fyrst, sem flutningaþörfm væri mest, án tillits til, hvar póstar væru látnir fara. Og samgöngukerfi það, sem bann vildi koma á fót, var þannig, að gufuskip skyldi lialda uppi ferðum umhverfis landið, milli Reykja- vikur og kauptúnanna úli um landið, og frá kaup- túnunum skyldi svo gera akvegi upp um bygðirnar, stofnbrautir, sem hann nefndi aðalflutningabrautir eða flutningabrautir, á kostnað landssjóðs, og svo skyldi gera akfæra sýsluvegi eftir þörfum í áfram- haldi þeirra og út frá þeim. Nokkrar deilur urðu um það á þinginu 1891, hvort þessi tilhögun væri rjett ráðin; en jeg hygg, að dómur allra manna muni nú vera á einn veg um það, að þetla var sú henlugasta lilhögun á innanlandssamgöngum, sem unt var að stinga upp á, og landinu þá var ekki ofvaxið að ráðast í. Frv. þetta var felt í efri deild. Jens Pálsson vann ótrauður að því, að vinna þessari hugsun sinni fylgi, bæði á þinginu, og í blaðagreinum og ritlingi milli þinga. Á næsta þingi, 1893, bar hann saman samskonar frv. upp aftur, ásamt með Boga Th. Melsted, og nú hafði sá maðurinn aðhjdst stefnu frumvarpsins, sem mest munaði um, M a g n ú s S t e p h e n s e n landshöfðingi. Frv. gekk greiðlega í gegnum neðri deild, og í efri deild hepnaðist M a g n ú s i S t e p - h e n s e n að bjarga því með alkvæðum hinna kon- ungkjörnu þingmanna. Lögin bættu flutningabraut- unuin við sem nýjum vegallokki, auk þeirra eldri, og skyldi landssjóður kosta byggingu þeirra, og þær svo gerðar, að vel sjeu akfærar hlöðnum vögnum á sumruin. Aftur á móti krefjast lögin þess ekki, að aðalpóstvegirnir, sem nú heila þjóðvegir, sjeu gerðir akfærir, en sýsluvegir, sem liggja út frá flutn- ingabraulum, eða eru framhald af þeim, skuli gerast akfærir þar sem því verður við komið. Loks eru árið 1907 selt vegalög þau, er nú gilda, og hafa þó verið gerðar á þeim smábreytingar síðan. Flokkuninni frá 1894 er haldið óbreyttri, en gert ráð fyrir, að einkum þeir kaflar þjóðveganna, sem standa í sambandi við flutningabrautir eða kauptún, verði einnig gerðir akfærir, ákvæði sett um viðhald vega, og önnur atriði, er minni þjrð- ingu liafa. 2. Stjórn vegamálanna. Hin verslegu stjórnarvöld landsins liafa frá upp- liafi og til þessa dags haft stjórn vegamálanna í sinni liendi, án þess að nein sjerstök stjórnarvöld liafi- verið til, sem liafi átt að sinna vegamálum eingöngu eða sjerstaklega. Alt fram að 1884 munu liin innlendu stjórnarvöld hafa verið alveg án verk- lega mentaðra aðsloðarmanna; en stjórnarráðin í Kaupmannaliöfn hafa einstöku sinnum leitað álits verkfræðinga um einstök atriði. En árið 1884 var fyrsl fenginn útlendur verkfræðingur til laudsins til þess að segja fyrir um vegagerðir, og var það Norð- maðurinn Hovdenak, síðar amtsingeniör í Roms- dals Amt og Statsraad í Noregi. Hann dvaldi lijer sumarið 1884 og kom aftur eitt eða tvö sumur nokkru síðar, og hafði með sjer norskan verkstjóra, og kendi hann mönnum vegagerðir. Árið 1893 er ráðinn verkfræðingur í þjónustu landsins lil þess að veita forstöðu framlrvætnd vegagerða landssjóðs, og var það Sigurður fhoroddsen, núverandi

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.