Handbók bænda - 01.01.1923, Blaðsíða 19
veriö notaöur eingöngu), sem svarar: ioo pund af
Chilisaltpjetri (eöa Noregssaltpjetri), ioo pund af
37% kalíáburöi, og 200 pund af 20% súperfosfati,
á dagsláttu.
Ein vissasta leiðin til vitneskju um, hvað mikið
þarf aö bera á af tilbúnum áburöi, er að gera áburð-
artilraunir á þeim jarðvegi, hvar nota á tilbúinn
áburð síöar.
Áburöartilraunum má haga á marga vegu. Eigi
þær aö vera margbrotnar og yfirgripsmiklar, kosta
þær bæði mikinn undirbúning og mikla fyrirhöfn.
Hjer skulu að eins nefndar hinar einföldustu.
Bletturinn, þar sem tilraunirnar eiga að gerast,
veröur aö vera:
1) Vel jafn,
2) hallalaus eða því sem næst,
3) Þar sem vatn getur ekki náð að ílæða yfir,
4) í skjóli fyrir sterkum stormi,
5) varinn fyrir ágangi,
6) kvaðratlagaður og rjetthyrndur.
Sje tilraunabletturinn 11 fáðmar á hlið, og hon-
um skift í 9 smáreiti, sem hver er 3 faömar á hlið,
geta veriö faðms breiðar spildur utan við reit-
ina og á milli þeirra.