Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1928, Blaðsíða 6

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1928, Blaðsíða 6
2 TÍMARIT V. F. I. 1928 Karl Thalbitzer, verkfræðingur. Hann andaðist a‘ð heimili sínu við Slagelse, hinn 5. febr. þ.á., tæplega fimtugur að aldri, eftir stutta legu í lungnabólgu. K. Th. útskrifaðist af fjöl- virkjaskólanum i Khöfn í árs- byrjun 1902, og hyrjaði verk- fræðingastörf hjá Heiðafjelag- inu 1904. Var í þjónustu þess alla ævi síðan, og nú yfirverk- fræðingur í jarðræktardeild fjelagsins. Hjer á landi vann Thalbitzer árið 1906 að mælingum áveitu- svæðanna á Skeiðum og Flóa og gerði síðan frumdrætti að þeim áveitum háðum. Báðar þessar áveitur hafa siðan verið framkvæmdar, með nokkrum hreytingum frá frumdráttum hans, og er Flóaáveitan með stærstu mannvirkjum, sem framkvæmd liafa verið lijer á landi, og langslræsta landhún- aðarmannvirkið. I annað sinn kom Th. hingað litlu síðar, og gerði þá nokkrar viðbótarmæl- ingar, og loks var liann einn meðal hinna 30 dönsku verk- fræðinga, sem hingað komu í kynnisför síðasta sumar. K. Th. var óvenjulega prúð- ur og aðlaðandi i allri fram- göngu, og ágætum mannkost- um búinn. Gat hann sjer mikl- ar vinsældir lijer, sem heima i Danmörku, allra þeirra, er kyntust honum, og er mikil eft- irsjá að fráfalli slíks manns á besta starfsaldri. J. Þ. Gerilsneyðing mjólkur með rafmagni. Það er alkunnugt, að mjólkin er ákaflega mikils- verð fæða, ekki síst börnum; sjest það best af öll- um þeim tilraunum, sem gerðar hafa verið víðs- vegar, til þess að halda mjólk óskemdri, að svo er. Fyrir nokkurum árum var byrjað á tilraunum til þess að drepa gerlana i mjólkinni með rafmagni. Voru þær gerðar i Liverpool, en fvrst komið í fram- kvæmd við mjólkusölu í Ameriku. Tilraunirnar sýndu, að ekki þurfti að leiða raf- magn i mjólkina nema örskamma stund, — brol úr mínútu, — og við það drápust gerlarnir. Það var ekki aðeins upphitunin vegna rafstraumsins, sem þessu olli, lieldur miklu fremur áhrif raf- magnsins á gerlana. Það kom í Ijós, að mjólkin losnaði alveg við berkla og taugaveikisgerla, án þess að breytast svo að fundið yrði, hvort heldur að útliti eða bragði, og án þess að liún liitnaði veru- lega fram úr Pasteurs-hitun. Þegar farið var að nota þetta í Bandaríkjunum, var aðferðin bætt að ýmsu leyti og varð hún við það einfaldari og auðveldari til eftirlits. Eru marg- ir mjólkursalar farnir að nota þessa aðferð þar vestra. Við athuganir, er gerðar voru i stofnun nálægt Boston, aðallega í nóvember—júní í fyrravelur, var mjólkin á hragð eins og flóuð, rjóminn varð jafn- mikill og jafnauðvelt að skilja hann frá, eins og ekkert hefði verið við mjólkina átt. Hún geymdist óskemd mjög lengi. Aðalkosturinn er þó gerilsneyðingin. Um vetur- inn hafði mjólkin tæp 200 þús. gerla í rúmeiningu, áður en hún var gerilsneydd. Með rafmagni læklc- aði þessi tala um 90%. Um sumarið liafði mjólkin 500—600 þús. gerla, og lækkunin varð 97—98,5%, sem telja má viðunandi árangur. (Úr Ljus och Kraft, Göteborg).

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.