Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1986, Blaðsíða 16

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1986, Blaðsíða 16
144 LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ dipalmitocyl-lecithin og 10% phosphatidylglycerol. Eitt til viðbót- ar er sphingomyelin. Lecithin lungnanna er öðruvísi en lechitin annars staðar í líkam- anum, t. d. lifur, þar sem báðar fitusýrukeðjurnar eru á mettuðu formi. Rannsóknir á lechitini sýna að lechitin lungnanna hefur meiri yfirborðsvirkni en lechitin með styttri eða lengri fitusýru- keðjur og þar sem önnur eða báðar eru ómettaðar. Lamellar bodies, þar sem geymslan fer fram, frá teg. II hafa fundist í botnfalli legvatnssýna og innihalda svipaða samsetningu fosfórlípíða og er í surfactant lungnanna. Tvö fosfórlípíð í leg- vatni hafa fundist frá 18. v.: sphingomyelin og lechitin. Styrkur þeirra er svipaður fram til 34. v. Styrkur sphingomyelins helst áfram lágur og lítið breytilegur út meðgönguna en skyndileg aukning er á styrk lechitins við 35. viku (mynd 31). Nánar verður fjallað um hlutfall þessara fosfórlípíða síðar. Hér fara á eftir nokkrar aðferðir til mats á lungnaþroska: • Yfirborðsspennu legvatnsins er hægt að mæla beint. Hefur það sýnt sig að vera góður mælikvarði á RDS, sérlega ásamt með öðrum rannsóknum s. s. L/S hlutfalli. • Skautun flúrgeisla er tengt seigju legvatnslípíða en seigja og yfirborðsspenna eru nátengd. Breytingar á skautun flúrgeisla endurspegla breytingu á yfirborðsspennu. • Hristipróf. 5 legvatnssýni mismunandi þynnt eru blönduð jafnmiklu magni af 95% ethanoli til að útiloka önnur yfir- borðsvirk efni. Sýnin eru hrist í 15 sek. og látin standa í 15 min. Þau eru síðan skoðuð m. t. t. loftbóla. Séu engar loft- bólur til staðar er niðurstaðan neikvæð. Aðrar niðurstöður eru mismunandi mikið jákvæðar eftir því hve mörg sýni inni- halda loftbólur. • Við nánari rannsókn á þessum loftbólum er hægt að sjá nánar hvort þær innihalda surfactant sérstaklega i falskt jákvæðu hristprófi. a) Lechitin/sphingomyelin hlutfall. Þetta er algegnasta rannsóknin til mats á lungnaþroska, þar sem flestallir eru sammála um að sé hlutfall L/S meira en 2:1 er ólíklegt að RDS komi upp. Nýlegar tölur um gildi þessara rann- sókna sýndu eftirfarandi:

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.