Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1986, Blaðsíða 17

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1986, Blaðsíða 17
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ 145 1,5% barna með L/S hlutfall yfir 2 fengu RDS. 35% barna með L/S hlutfall á milli 1,5 og 2 fengu RDS. 78% barna með L/S hlutfall fyrir neðan 1,5 fengu RDS. í þessum tilfellum var L/S mælt 72 klst. fyrir fæðingu. b) Heildarstyrkur fosfórlípíða í legvatninu. Hann eykst eftir því sem líður á meðgönguna. Mæling á honum samsvarar vel L/S hlutfallinu. Rannsókn frá ’75 sýndi að engin tilfelli RDS komu upp þar sem styrkur fosfórlípíða var undir 2,8 mg/100 ml. Ef hann var undir 1,5/ mg/100 ml fengu öll börnin RDS. Mæling á L/S hlutfalli reynist þó nákvæmari. c) Styrkur Lechitins. Mæling lechitins sem mat á lungnaþroska tekur lengri tíma en L/S hlutfallið og niðurstöður eru breytilegar eftir legvatnsmagn- inu. d) Styrkur Palmitinsýru. Hann eykst í legvatninu eftir þvi sem liður á meðgönguna en styrkur sterínsýru minnkar Palmitínsýra er talin aðskilja fitusýrur frá fosfórlípíðum. Hlutfall palmitínsýru og sterínsýru P/S er hægt að nota til mats á lungnaþroska. Þau skortir eða eru mjög lág þegar L/S hlutfall er undir 1.0. Hér fara á eftir nokkur óbein próf til mats á lungnaþroska: • Styrkur kreatínins í legvatninu til mats á þroska nýrna og vöðvamyndunar fóstursins. Þetta samsvarar L/S hlutfalli 41%. • Fetography og sónar. Röntgen af epifysum í distal hluta femoris fóstursins gefur til kynna þroska fóstursins. Þetta samsvarar L/S hlutfalli 60-63%. Mæling á biparietal diamet- er með sónar sýnir ekki rétt samband á milli þroska fóstursins og L/S hlutfalli. • Hlutfall norephinephrine/epinephrine. • Styrkur cortisóls i legvatninu. • Virkni thromboplastíns. • Fósturfita. Þegar fósturfita hefur sést í legvatninu hefur L/S hlutfall alltaf verið lágt. • Fitufrumur.

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.