Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1986, Blaðsíða 33

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1986, Blaðsíða 33
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ 161 Námsferð Ljósmæðranema til Hollands I júní 1986 I júní síðastliðinn var farið í námsferð á vegum Ljósmæðra- skóla íslands með nýútskrifaðar ljósmæður til Hollands. Reynir T. Geirsson læknir og sérfræðingur á'Kvennadeild Landspitalans hafði veg og vanda að því að skipuleggja þá ferð, og færum við honum þakkir okkar fyrir það. Farið var í heimsókn til Erasmus Hospítal í Rotterdam, þar tóku á móti okkur prófessor H. S. Vallenburg og Mrs. A. Lems ljósmóðir, formaður hollenska ljós- mæðrafélagsins, sem bæði héldu fyrir okkur fyrirlestra, en Mrs. A. Lems starfar eingöngu við fæðingarhjálp í heimahúsum. Síðan heimsóttum við State University Hospital í Groningen. Þar tók á móti okkur G. Visser sem er fæðingarlæknir en hann sá um skipulagningu á dagskrá fyrir okkur þar ásamt Mariel van Diem ljósmóður og Aukje de Vres ljósmóður, sem bæði var í formi fyrirlestra og kynningu á fæðingar- og sængurkvennadeild sjúkrahússins. Einnig gafst fjórum hinna nýútskrifaðra ljósmæðra tækifæri á að fara með ljósmæðrum í heimahús í vitjanir. Guðrún J. Bald- vinsdóttir ljósmóðir skrifaði siðan grein um störf ljósmæðra í Hollandi fyrir Ljósmæðrablaðið sem fylgir hér með. Ljósmæður í Hollandi Greinargerð um starf og réttindi hollenskra Ijósmœðra í Hollandi tilheyra fjórar stéttir svokallaðri læknastétt þ. e. læknar, tannlæknar, lyfjafræðingar og ljósmæður. Þessar stéttir sverja allar Hippokratesar-eið og hafa leyfi til að starfa sjálf- stætt. Á hollensku er nafn ljósmæðra vroedvrouw sem þýðir vitur kona. Ljósmæðrafélag er starfrækt þar. Ljósmæðranám tekur þrjú ár og þurfa umsækjendur að hafa tekið próf sem er samsvarandi stúdentsprófi. Námið skiptist þannig að þriðjungur er bóklegt nám en tveir þriðju hlutar verk- legt. Til að ljúka námi þarf neminn að taka á móti 40 börnum.

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.