Ljósmæðrablaðið - 01.12.1986, Síða 36
164
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
Sjúkrasamlag
Ljósmóðir — Samlag borgar
Alm. læknir — Konan borgar
Sérfræðingur — Konan borgar
Einkatrygging
Ljósmóðir
Alm. læknir
Sérfræöingur
Borgar ákveóna
upphæð
Einkatrygging borgar ákveðna upphæð sem dugar næstum sem
laun handa ljósmóðurinni en nægir ekki fyrir almennan lækni eða
sérfræðing. Mismuninn þarf þá konan að borga.
Annað sem gerir ljósmæðrum kleift að starfa eru svokallaðir
fæðingarliðar (maternity aid). National Cross Organization
(NCO) er ríkisstutt einkasamlag sem sér um heilsuvernd. Sam-
lagið kennir þessum fæðingarliðum. Þær stunda 4 mánaða nám
(fæðingarfræði, anatomi / physiologi, næringarfræði, umönnun
nýbura, hússtjórn og matseld). Fæðingarliðar verða að aðstoða
við 12 fæðingar áður en þeir ljúka námi. Starf þeirra er sem sagt
að aðstoða ljósmóður við fæðinguna, hjálpa konunni í sængur-
legu í 8-10 daga og sjá um heimilishald. Þær vinna undir eftirliti
ljósmóður og gefa þeim rapport. NCO borgar þeim kaup.
Þegar konan fæðir heima fær hún leigð tæki hjá NCO til þess
að auðvelda ljósmóðurinni fæðinguna. Það eru m. a. klossar sem
settir eru undir rúmið til að hækka það. Annars er ljósmóðirin
með öll áhöld til fæðingarinnar í ljósmæðratösku sem svipar til
acut-tösku. í henni eru vatnsheld lök, sterilir hanskar, sótthreins-
andi sápa, hlustpípa, fæðingarpakki (2 skæri, 3 piangar, áhöld til
sauma, kompressur) naflastrengsklemma, sog, klóra o. s. frv.
Flestar þeirra hafa auk lyfja sem þær mega gefa, phenergan,
pethidin og diazepam til að hafa til taks sé þess þörf. Ljós-
mæðurnar sótthreinsa verkfærin sín sjálfar.
Þær ljósmæður sem starfa á stofnunum í Hollandi vinna vakta-
vinnu. Þær starfa á fæðingardeildum ásamt fæðingarlæknum,
hjúkrunarfræðingum, fæðingarliðum og öðru starfsfólki. Þar
vakir sérmenntaður hjúkrunarfræðingur yfir konunni í fæðingu.
Ljósmóðir fylgist með framgangi fæðingarinnar, fæðingarritum
og skoðar konuna vaginalt meðan hjúkrunarfræðingurinn annast
hana. Monitor er aðeins notaður í 70 - 80% tilvika. Ljósmóðirin
kemur síðan og tekur á móti barninu. Fæðingarhjúkrun er sér-
menntun sem tekur eitt ár. Þær konur sem fæða á kennslustofn-
unum fá uppihald og aðhlynningu frítt. Þá fylgist ljósmóðir