Ljósmæðrablaðið - 01.12.1986, Blaðsíða 39
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
167
Fréttatilkynning um stofnun
Kynfræðafélags íslands
Stofnað var í Reykjavík, þann 9. desember 1985 Kynfræðafélag
íslands. Undirbúningsnefnd hafði þá starfað um nokkurn tíma,
eftir að fjöldi fólks hafði lýst áhuga fyrir stofnun slíks félags.
Á stofnfundinn komu rúmlega tuttugu manns úr ýmsum áttum,
sálfræðingar, félagsráðgjafar, læknar, hjúkrunarfræðingar,
kennarar o. fl. Á fundinum var greinargerð undirbúningsnefndar
lesin, samþykkt lög fyrir félagið og tvær tillögur til bráðabirgða,
sem tengjast lögunum, samþykkt árgjald fyrir starfsárið
1985-1986 og kjörið í stjórn félagsins.
Stjórnin hefur nú skipt með sér verkum, en Nanna K. Sigurðar-
dóttir félagsráðgjafi var kjörinn formaður. Aðrir í stjórn eru:
Sigtryggur Jónsson sálfræðingur, ritari, María Guðmundsdóttir
hjúkrunarfræðingur, gjaldkeri og Kjartan Magnússon krabba-
meinslæknir og Hope Knútsson iðjuþjálfi, meðstjórnendur.
Félagið er ætlað fagfólki, sem hefur menntun á sviði heil-
brigðis-, félags- eða sálarfræða, svo og öðrum, sem fást við kyn-
fræði í starfi sínu.
Markmið þess er að efla fræðigreinina kynfræði (sexologi) á
íslandi og stuðla að samstarfi fagfólks, sem fæst við meðferð,
kennslu eða rannsóknir á sviði kynfræða.
Þar sem starfsgrundvöllur félagsins er ákaflega breiður, er
ætlunin sú að innan félagsins starfi sérstakir vinnu- eða áhuga-
mannahópar um sérstök verkefni eins og t. d. meðferð kynlifs-
vandamála, fræðistörf, kennslu o. s. frv.
Aðalfundur félagsins verður haldinn í maí nk., en þeir sem
ganga í félagið fyrir þann tíma teljast stofnfélagar. Umsókn um
aðild að félaginu berist stjórn félagsins á þar til gerðum
umsóknareyðublöðum, en þau er hægt að fá hjá stjórnarmönn-
um. Pósthólf félagsins er 1771 — 121 Reykjavík.
Félagið er aðili að Nordisk Forening for Klinisk Sexologi
(NACS). Lög félagsins fylgja hér með.