Ljósmæðrablaðið - 01.07.1991, Blaðsíða 8
ingarlækni og ennfremur frönsku
fæðinguna hjá dr. Leouboyer sem
mætti mikilli andstöðu í upphafi en
ljósmæður hafa tileinkað sér ýmsa þætti
hennar.
Hulda hefur ritað greinar í fjölmörg
tímarit og haldið fræðslufundi hjá félög-
um og stofnunum og verið á þingum
Sambands Norrænna ljósmæðra
1965—1968 og 1974—1977, í stjórn
sambandsins 1977—1983. Fulltrúi
LMFÍ á alþjóðaþingi ljósmæðra 1972 í
Washington og 1978 Tel Aviv. Fulltrúi
félagsins hjá BSRB 1962 og hjá
S.H.S. 1969-1990.
Hulda hefur rekið verslun frá árinu
1966 þar sem hún hefur lagt áherslu á
heilsuvörur fyrir mæður og börn. Einn-
ig hefur allt sem snýr að líkamsrækt og
heilbrigði, vakið áhuga hennar, hún
starfaði mikið í Náttúrulækningarfélagi
íslands og var formaður Náttúrulækn-
ingafélags Reykjavíkur frá 1974—
1978. Stofnfélagi ferðaklúbbsins Föru-
nautur í Reykjavík 1965.
Hefur starfað í samtökunum lífsvon,
stofnuð 1985. Þessi samtök berjast
gegn fóstureyðingum og hefur Hulda
verið formaður þar til nú í vor.
Sat á alþingi fyrir Borgaraflokkinn
haustið 1990, meðal annars vann hún
að frumvarpi um breytingar á núver-
andi löggjöf um fóstureyðingar.
Hulda á eina dóttur, Söndru Mar
Huldudóttur fædda 08.05. 1976.
Rannveig Pálsdóttir, Ása Halldórsdóttir, Esther Sigurðardóttir, Hjördís Sigursteinsdóttir, Helga
Birgisdóttir.
I—IÓSMÆÐRABLAÐIÐ
6