Ljósmæðrablaðið - 01.07.1991, Side 24
staka tilfellum getur þurft að gefa
konum með mjög slæma eða snögg-
versnandi pre-eclampsiu lyfjagjöf í æð
og er þá gefið:
Dihydralazinum — Neprosol dreypi,
sem er blandað NaCl.
Konum með alvarlega pre-ec-
lampsiu og yfirvofandi krampa er gefið
Diazepam í æð. Ljósmæður á Með-
göngudeild verða að vera viðbúnar
slíku hættuástandi, því þó það sé venja
að konurnar séu innlagðar á fæðinga-
gang til gjörgæslu séu þær með mjög
slæm einkenni og/eða mjög veikar,
getur ástand þeirra breyst mjög hratt.
Fræðsla til kvenna með pre-eclampsiu:
Fræðsla til kvenna með pre-eclamp-
siu er mjög nauðsynleg, ekki síst vegna
þess að flestar konur með vægari af-
brigði sjúkdómsins og jafnvel hin verri,
finna ekki til neinna óþæginda. Þær
eiga því oft mjög erfitt með að gera sér
grein fyrir hversu alvarlegt ástandið er.
Ljósmæður á Meðgöngudeild skrif-
uðu bækling fyrir konur með pre-
eclampsiu sem þær fá afhentan þegar
þær leggjast inn og er þá tiltekið í hverju
meðferðin er fólgin og tilgangur henn-
ar. Ljósmæður veita einstaklingshæfða
fræðslu til kvennanna og aðstandenda
hennar því meðferðin er mjög einstak-
lingsmiðuð þar sem engar 2 konur
með pre-eclampsiu eru með eins fram-
vindu. Konur með pre-eclampsiu eru
oft ekki með nein einkenni sem við í
daglegu lífi tengjum við sjúkdóma og
finnst þeim og aðstandendum þeirra
því oft erfitt í fyrstu að skilja af hverju
konan þarf að leggjast á sjúkrahús.
I þeim tilvikum þar sem talin er hætta
á að konan fæði fyrir tímann er henni
og aðstandenda boðið að skoða vöku-
deildina — gjörgæsludeild fyrir nýbura
— og hefur það gefist mjög vel sem lið-
ur í undirbúningi konunnar fyrir fæð-
inguna.
Að lokum
Konur með pre-eclampsiu liggja oft
lengi á deildinni. Þær eiga oft við marg-
vísleg vandamál að stríða og er reynt
að koma eins mikið til móts við það og
aðstæður leyfa hverju sinni. Konurnar
eru eins og áður sagði oft ekki með
hefðbundin sjúkdómseinkenni og eiga
því oft erfitt með að sætta sig við langa
sjúkrahúslegu og að vera teknar úr
sínu daglega umhverfi. Margar eiga lítil
börn heima og hafa áhyggjur af þeim
og heimilinu. Boðið er upp á aðstoð og
þjónustu félagsráðgjafa sem starfar á
Kvennadeildinni og getur oft veitt kon-
unum og fjölskyldum þeirra ómetan-
lega aðstoð.
Reykjavík janúar 1991.
Heimildaskrá:
Reynir T. Geirsson og Jón Þ. Hallgrímsson
1986. P.M. fyrirmæli um meðferð á pre-ec-
lampsiu Kvennadeild Lsp. maí 1986.
Carrey et al. 1980 Obstetrics Illustraded Churc-
hill Livingstone, Edinborg.
Derek Llewellyn-Jones 1986. Fundamentals of
Obstetrics & Gynaecology. Vol. 1 Faber &
Faber, London.
LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ
22