Ljósmæðrablaðið - 01.12.1991, Qupperneq 6
um fyrir sársauka, sjálfsmeðaumkun
og reiði og spyrjum: Hvers vegna barn-
ið mitt?
Tilfinningar
Fyrst er það áfall og vantrú.
Sjúkdómsgreiningin hlýtur að vera
röng. Einhverjum hafa orðið á mistök.
Þetta getur ekki verið. Eg vil ekki trúa
þessu. Áfallið og doðinn, sem af því
leiðir, verndar okkur gagnvart sársauk-
anum. Svo dofnar áfallið og þá koma
upp aðrar tilfinningar.
ÓTTINN
Fyrst er það óttinn við hið óþekkta:
Hvað á eftir að koma fyrir?
Þá er það óttinn við meðferð. Hvað
mun hún leiða af sér?
Óttinn við rannsóknir. Hvað munu
þær leiða í ljós?
Við óttumst líka áhrifin, sem koma
munu fram í fjölskyldunni. Við spyrj-
um: Held ég þetta út, eða fer ég yfir
um? Er maki minn nógu sterk/ur?
Hvaða áhrif mun þetta hafa á hin börn-
in? Óttaviðbrögð, sem snúa að barn-
inu, geta leitt til þess, að: Þú heldur
dauðahaldi í barnið og ert alltaf á
sjúkrahúsinu. Þú ,,festist“ við rúm-
stokk barnsins. Þú ferð að halda, að
enginn annar en þú geti annast um
barnið svo vel sé.
SEKTARKENND
Ef ég hefði bara farið fyrr til læknis-
ins. Ef ég hefði vitað... þá... Sektar-
4 _________________________________
kenndin leitast við að svara hinni
ósvaranlegu spurningu: Hvers vegna?
Sektarkenndin er þörf fyrir stjórn —
að geta endurskapað andartakið, sem
hefði breytt öllu. Hún bendir okkur á
eitthvað, sem við getum beint reiði okk-
ar að. Hún leitar að tilgangi/merkingu
í aðstæðum, sem virðast tilgangslaus-
ar/merkingarlausar. Einu er mikilvægt
að átta sig á: Ef þú hefðir getað komið
í veg fyrir sjúkdóm barnsins þíns, þá
hefðir þú örugglega gert það?
REIÐI
Reiði er tilfinning, sem við upplifum,
þegar við meðtökum eitthvað, sem við
viljum ekki meðtaka. Reiðin er líka til-
finning, sem við finnum, þegar við öðl-
umst ekki það, sem við sækjumst eftir.
Allir, sem annast um veik börn, verða
stundum reiðir.
Læknirinn verður stuttur í spuna og
er alltaf að flýta sér.
Hjúkrunarfræðingurinn verður við-
skotaillur og hvassyrtur. Foreldrar ásaka
maka sinn og garga á hin börnin, oft af
litlu tilefni. Foreldrar ásaka líka lækna
og hjúkrunarfólk fyrir að gera ekki nóg
fyrir þau og barnið. Foreldrar reiðast
Guði og hætta jafnvel að biðja bænir.
Síðan finnur þú fyrir sektarkennd yf-
ir reiðinni, því okkur er kennt að reiðin
sé slæm og syndsamleg og okkur er
kennt að maður eigi ekki að reiðast
Guði.
Það er eðlilegt og rétt að finna fyrir
reiði andspænis sjúkdómi barnsins þíns.
ÞUNGLYNDI
Við upplifum öll tilfinningasveiflur.
Veikindi barnsins þíns magna þessar
sveiflur. Þegar barnið veikist, þá finnur
I_IÓSMÆÐRABLAÐIÐ