Ljósmæðrablaðið - 01.12.1991, Qupperneq 17
■
HILDUR KRISTJÁNSDÖTTIR, ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur:
Stjórnarfundur
Nordisk jordmorforbund
samtaka ljósmæðra á Norðurlöndum
Árlegur stjórnarfundur NJF var hald-
inn í Stokkhólmi dagana 10. og 11.
maí 1991. Á dagskrá fundarins voru
20 mál sem biðu afgreiðslu og því nóg
að gera. Fundurinn var haldinn í salar-
kynnum sænska ljósmæðrafélagsins,
sem þær deila með sænska hjúkrunar-
félaginu. Þetta er í fallegu húsi sem ver-
ið er að lagfæra og betrumbæta. Við
vorum ákaflega heppnar með veður
(eða óheppnar), því sólrikt var og
hlýtt. Unnin voru venjubundin fundar-
störf og fluttar skýrslur stjórna ljós-
mæðrafélaga landanna. Þessar
skýrslur liggja frammi á skrifstofu félags-
ins eins og venjulega og eru félags-
menn hvattir til að kynna sér þær. Hér
mun verða birt stutt ágrip af því helsta
sem kom fram á fundinum til glöggv-
unar.
I tengslum við fundinn var okkur
boðið að skoða ABC-deildina við Karo-
linska sjúkrahúsið í Stokkhólmi og var
það mjög áhugavert. Fundurinn var
fjölmennur og áttu öll löndin 2 fulltrúa
á honum, nema Færeyjar, en þaðan
kom enginn í þetta sinn. Þær eru mjög
illa staddar fjárhagslega, en ætla að
stefna að því að reyna að senda einn
fulltrúa annaðhvert ár. Til umræðu
kom á fundinum að styrkja ljósmæðra-
félögin á Islandi og í Færeyjum fjárhags-
lega svo tryggt væri að þau gætu alltaf
sent einn fulltrúa. Um væri þá að
ræða að greiða mismun á meðalkostn-
aði hinna landanna þriggja við fundar-
sóknina. Þetta hlaut góðar undirtektir
allra og verður rætt betur.
SKÝRSLUR LANDANNA
Danmörk
Danska ljósmæðrablaðið varð 100
ára í október 1990. Af því tilefni var fé-
lagið með ýmsar uppákomur sem tók-
ust vel. Breytingar hafa orðið á
samningsrétti danskra ljósmæðra og
sjá svæðadeildir nú um samninga fyrir
ljósmæður á sínu svæði.
Danskar ljósmæður vinna nú að því
að einstaklingshæfa þjónustu sína í
mæðravernd, þannig að tryggt verði
að hver kona hitti því sem næst alltaf
sömu ljósmóður í hverri skoðun. Þessu
fyrirkomulagi hefur enn ekki verið hrint
í framkvæmd, þar sem semja þarf við
ríki og bæ og það getur orðið erfitt,
vegna þess að þetta leiðir óhjákvæmi-
lega til aukins fjölda ljósmæðra á
heilsugæslustöðvunum.
_____________________________ 15
LJÓSMÆÐR ABLAÐIÐ