Ljósmæðrablaðið - 01.12.1991, Síða 26
meðferð án lyfja, snemmheimferð ofl..
Konan ákveður hvaða stuðningsaðila
hún vill hafa viðstadda fæðinguna.
Þetta kynningarsamtal konunnar og
ljósmóður tekur venjulega 1—IV2 klst.
Þær konur sem velja að fara snemma
heim eiga kost á að koma í ljósmæðra-
móttöku á deildina með barnið. Þessi
ljósmæðramóttaka fer fram milli kl. 13
og 15 alla daga vikunnar, og gefst kon-
unum einnig kostur á að hitta barna-
lækni og kvensjúkdómalækni þá ef
þær óska. Um það bil 20% þeirra
kvenna sem leita til sjúkrahússins til að
fæða velja ABC-eininguna og sama
hlutfall velur snemmheimferð sem er
að meðaltali 40—50 tímum eftir fæð-
ingu. En snemmheimferð er skilgreind
sem heimferð 6—72 klst. eftir fæð-
ingu. Barnalæknar skoða öll börn fyrir
heimferð.
Þegar konan kemur inn til fæðingar
er tekið hjartsláttarrit barnsins í 15—25
mín. og aftur eftir u.þ.b. 6 klst. ef allt er
eðlilegt. Ljósmæðurnar nota Syntocin-
on dreypi ef þurfa þykir, kalla til barna-
lækni ef um t.d. grænt legvatn er að
ræða, sprengja belgi skv. mati. Þær
nota ekki epidural deyfingar, paracerv-
ical blokk, né nein verkjalyf önnur en
hláturgas. Verkjameðferð felst í vatns-
bólu sprautum, nuddi, freyðibaði/
nuddpotti, hláturgasi og slökun. Alla-
jafna er ekki sogað úr vitum barnsins
við fæðinguna og barnið er ekki vigtað
eða skoðað fyrr en 5—6 tímum eftir
fæðinguna í fyrsta lagi.
Komi einhver vandamál upp í fæð-
ingunni, eða það er mat ljósmæðranna
að gjörgæslu sé þörf, eða deyfinga,
eru konurnar sendar á fæðingagang
sjúkrahússins og ljósmóðirin fylgir
þeim þangað og annast þær þar sé
þess nokkur kostur. Þær koma síðan
aftur á þessa deild til að liggja sængur-
leguna og sama ljósmóðirin annst þær
áfram. Þemað er samfella í þjónustu til
kvennanna.
Reykjavík, júní 1991.
Ljósmœður
í desember kemur út handbók ljósmæðra Fylgja fyrir árið ’92. Annar
litur verður á kápu bókarinnar og einnig hefur verið bætt í hana fróð-
leiksefni. Þeir sem áhuga hafa á að bætast í áskrifendahópinn og
fá hana senda heim eru vinsamlegast beðnir um að tilkynna sig hjá
L.M.F.I. (símsvari). Bókin verður einnig seld á skrifstofunni og
mun kosta um 700 krónur. Upplag er takmarkað við 200 bækur.
Kveðja,
Helga Birgisdóttir, ritstjóri Fylgju
24------------------------------------------------I—IÓSMÆÐRABLAÐIÐ