Ljósmæðrablaðið - 01.12.1991, Síða 19
útskrifaðar ljósmæður hafa skilað sér
illa til ljósmæðrastarfa á síðustu árum.
Samhliða þessari vinnu er unnið að til-
lögum um framhalds- og endurmennt-
un ljósmæðra í Noregi.
Fyrir liggur kennsluáætlun um 1 árs
framhaldsnám fyrir ljósmæður í sónar-
skoðunum. Þessari áætlun hefur enn
ekki verið hrundið í framkvæmd og
mótmæla ljósmæður henni ákaft, þar
sem þær telja að þarna sé verið að
mismuna læknum og ljósmæðrum, en
ekki er gert ráð fyrir að læknar þurfi að
sækja samskonar nám til að geta stund-
að sónarskoðanir.
Norska ljósmæðrafélagið rannsakar
nú í samvinnu við félag kvensjúkdóma-
lækna, samvinnu og ábyrgðarskiptingu
ljósmæðra og lækna og er niðurstaðna
að vænta í lok ársins.
Einnig kanna þær viðhorf héraðs-
stjórna til ljósmæðraþjónustu í héraði.
Unnið er að endurskoðun á siðaregl-
um ljósmæðra og þemahefti um Ijós-
móðurina í framtíðinni. Vinna við
staðla ljósmæðra er langt á veg komin.
Alþjóðaþing Ijósmæðra 1996 mun
verða haldið í Noregi og er undirbún-
ingsvinna þegar hafin.
Svíþjóð
Sænskar ljósmæður hafa miklar
^hyggjur af námi sínu, þar sem fyrirséð
er að þær munu lenda í vandræðum
vegna inngöngunnar í EB. Námið hjá
Þeim er í dag 50 vikur eða 1V4 ár eftir
Þjúkrun, en það uppfyllir ekki EB staðl-
ana. Þær skoða því mikið aðrar leiðir,
eins og t.d. þá norsku. í Svíþjóð er nið-
urskurður fjár til heilbrigðismála og hef-
Ur hjúkrunarfræðingm verið sagt upp
störfum. Mikil umræða er um sparnað
1—iósmæðrablaðið ___________________
í heilbrigðiskerfinu. Þetta hefur í för
með sér mikla umræðu um gæðastjórn-
un og hafa ljósmæður hafið skráningu
á öllum sínum störfum og eru þær
mjög meðvitaðar um fræðsluþörf sína
um fjármál í tengslum við heil-
brigðismál.
Mikil aukning fæðinga hefur einnig
komið inn í þessa umræðu og eins það
að nú mega konur fæða þar sem þær
vilja, þ.e. eru ekki bundnar af heima-
bæ sínum. Því hefur hafist mikil áróð-
ursherferð sjúkrahúsanna, sem
keppast um að bjóða allskyns þjónustu
í tengslum við fæðinguna, sem dæmi
má nefna að eitt sjúkrahús auglýsti að
það byði upp á kampavín að fæðingu
lokinni! Ljósmæður hafa af því miklar
áhyggjur að oft og tíðum og oftast er
ekkert talað um fagleg gæði þjónust-
unnar í þessu sambandi. Þær segja að f
ljósmæðraþjónustunni í dag sitji ein-
staklingurinn ekki í fyrirrúmi og störf
ljósmæðra séu orðin alltof stöðluð.
Einnig að með auknum fjölda fæð-
inga, hafi þjónusta þeirra dregist sam-
an hvað varðar foreldrafræðslu og
mæðravernd. Þær hafa einnig áhyggj-
ur af því hver eigi að annast konurnar
heima, en snemmútskriftir sængur-
kvenna færast nú í vöxt, án þess að
þjónusta sé tryggð eftir að heim er
komið.
I Svíþjóð hefur heimafæðingum
fjölgað mjög, eins og á hinum Norður-
löndunum. Þær hafa fengið lög um
heimafæðingar, en þau eru mjög
óskýr, og því miður eru konur þar í
landi sem taka á móti börnum í heima-
húsum án þess að vera menntaðar ljós-
mæður. Þær vinna nú að því að fá
þessu breytt og að skilyrði fyrir því að
__________________________________ 1 7