Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1991, Blaðsíða 9

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1991, Blaðsíða 9
arreitur fyrir þá foreldra, sem fara í gegnum sorgarviðbrögð vegna fóstur- láts, en engin viðbrögð hafa borist enn- þá frá Kirkjugörðunum. FÓSTUREYÐING Samfélagslega skiljum við það svo, að fóstureyðing sé óvelkomin með- ganga. Eða hvað? Hvers vegna koma fram tilfinningaleg viðbrögð hjá þess- um konum og jafnvel mönnunum þeirra jafnvel löngu síðar? Hvaða stuðn- ing vantar hjá okkur? Utanlegsfóstur Þessi missir felur oft í sér vandamál, sem tengjast þungunum í framtíðinni. Missirinn er þá bæði tengdur núinu og framtíðinni. Fæðing sett af stað A meðgöngu geta þær aðstæður komið upp, að barnið sé svo fatlað eða vanskapað, að það geti ekki lifað síðari hluta meðgöngunnar, eða fæðinguna öðru vísi en sem mjög skertur einstak- l'ngur, oftast með mjög takmarkaða hæfileika til vitsmunastarfsemi. En þarna má samt búast við sorgarvið- brögðum og jafnframt er stuðningur og skilningur samfélagsins á þessum að- stæðum oft af skornum skammti. Andvana fæðing Frá u.þ.b. 22. viku til 40. viku með- Söngu. Á síðasta ári voru skráðar 21 andvana fæðing á Landspítalanum, samtals 24 börn. Þarna er veittur þó nokkur stuðningur á sjúkrahúsi nú orð- ið. Nafngjöf tíðkast í flestum tilfellum, þótt ekki sé skírt. Flest eru þessi börn nú jarðsett í eigin kistu. Missir á vökudeild Oftast er um að ræða fyrirbura. Þarna er veittur stuðningur við foreldra og jafnvel systkini. Skemmri skírn er al- geng við þessar aðstæður. Myndir eru teknar og foreldrum fylgt eftir af starfsfólki. Vöggudauði 2—4 börn á ári deyja vöggudauða hér á landi að meðaltali. Mismunandi eftir landshlutum og aðstæðum hversu mikill stuðningur er veittur. Þar sem þarna er um að ræða dauða utan sjúkra- húss, þá þarf rannsóknarlögregla að koma á vettvang. Við þessar aðstæður eru sjálfsásakanir foreldra mjög al- gengar. Algengar tilfinningar foreldra við dauða barns Áfall — tilfinningar dofna — allt er sem í þoku. Reiði. Við spyrjum: Hvers vegna? Reiði beinist oft að Guði. Dapurleiki — grátur — söknuður. Þunglyndi — tómleiki. Sektarkennd — ef — þörf fyrir svör. Ljósmæðrablaðið

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.