Ljósmæðrablaðið - 01.12.1991, Page 10
Faðir og móðir eru einmana og finn-
ast þau hafa verið svikin. Ef þetta var
fyrsta barn, þá kemur spurningin: Er
ég foreldri áfram úr því að ég missti
barnið? Er ég faðir? Er ég móðir, úr því
að barnið dó?
Fæðing barns er mjög sterk tilfinn-
ingaleg reynsla. Ffvað er hægt að gera
við þessar tilfinningar, hvaða farveg
geta þær fengið, ef barnið deyr?
Missir eldri barna
Þegar eldri börn deyja, sem oft er af
slysförum, þá má búast við svipuðum
tilfinningum og áður eru nefndar. Þó
er eitt, sem kemur mikið inn í þá
mynd, en það er reiðin út í þann, sem
varð valdur að slysinu, blóraböggull-
inn. Jafnframt þessu eru eldri börn
öðru vísi hluti af fjölskyldunni en þau
yngri. Tíminn, sem foreldrar hafa átt
með þeim hefur markað sameiginlega
reynslu, sameiginlegan þroska. Þau
eru orðin félagar okkar, við eigum sam-
eiginlegar minningar, atburði, sem
hafa tengt okkur saman.
Unglingar, sem svipta sig lífi, láta eft-
ir sig foreldra, sem margir hverjir búa yf-
ir miklum sjálfsásökunum: Hvar brást
ég?
Og þegar við erum orðin gömul og
börnin okkar miðaldra, þá eru þau
samt börnin okkar og þau eiga ekki að
deyja á undan okkur. Barnsmissir er
líka sár, þótt maður sé á eftirlaunaaldri
og barnið manns miðaldra.
skorðum og mótar sá veruleiki alla
framtíð. Við förum í gegnum hið hefð-
bundna kveðjandi ferli: Kistulagning-út-
för-greftrun. Hvernig kveðjum við?
Ljúkum við nokkurn tíma við að
kveðja?
Minningardagar koma og fara: af-
mæli, jól, dánardægur. Munir barn-
anna eru í umhverfi okkar: dót, rúm,
herbergi, myndir, minningar. Hvað
verður um allt þetta?
Fjölskyldusaga okkar er saga gleði
og sorgar. Mississaga okkar getur gefið
okkur vísbendingar um okkur sjálf,
mótandi reynslu okkar og fjölskyldu
okkar. Alla ævi erum við að missa.
Ognin um annan missi vofir sífellt yfir.
En við verðum að halda áfram að lifa...
Heimildarskrá:
Arlene Applebaum — ,,Empty Arms“ Sherokee
Ilse 1982.
Joy Johnson, S.M. Johnson, Billy Williams —
,,Why Mine?" Centering Corporation 1981.
Joy Johnson, S.M. Johnson — „Children Die
Too“. Centering Corporation 1984.
Lokaorð
Enginn verður nokkru sinni samur
eftir að missa barn. Öll tilveran fer úr
8 ______________________________
I_IÓSMÆÐR ABLAÐIÐ