Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1991, Síða 12

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1991, Síða 12
Jilly hafði í fórum sínum allar nýjar bækur, sem snertu starf ljósmæðra og eru seldar á vegum bókaþjónustu MID- IRS (Book Service). Mikið gagn var af því að kynnast fjölbreyttri starfsemi MIDIRS. Einnig vakti erindið fólk til umhugsunar um það að ekki sé nægi- legt að komast að ágætum rannsóknar- niðurstöðum, heldur þyrftu þær að verða hagnýttar til að sanna gildi sitt í starfi ljósmæðra. Eftirfarandi erindi fjölluðu um ýmis atriði í starfi Ijósmæðra á Norður- löndum: 1. Ulla Waldenström, Svíþjóð, fjall- aði um valkosti við fæðingaþjónustu (Alternative Birth Centre = ABC ward). Hún sýndi myndband um fæð- ingu á fæðingaheimili (ABC ward), sem hún rekur. Ulla metur þjónustuna á ABC-fæðingaheimili með mats- rannsókn. 2. Vibke Weirum Knudsen sagði frá könnun, sem hún ásamt öðrum gerðu í Danmörku á mæðravernd. I niður- stöðum þeirra er mælt með því að eft- irlit (supervision) í mæðravernd verði bætt meðal þeirra starfsstétta, sem sinna því, þ.e. Ijósmæðra, heimilis- og fæðingarlækna. 3. Tellervo Kopare kynnti rannsókn á „upplifun sársauka við fæðingu11 hjá konum í Finnmörk í Norður-Noregi. Það hefur verið vitað lengi að konur á þessum slóðum þurfa mun minna magn af verkjalyfjum við fæðingar en kynsystur þeirra á suðlægari slóðum. Því var það verðugt rannsóknarverk- efni að kanna samband á milli menn- ingar og sársaukaupplifunar. í erindinu kom fram að sársauki sé „hugsað fyrirbæri". Sem dæmi um það hugsaði 10 __________________________________ ein Samakona í hennar úrtaki sér að sársaukinn sé langt, langt í burtu, hugs- anlega 4—5 km. 4. Marga Thome kynnti rannsókn á líðan íslenskra kvenna tveimur til sex mánuðum eftir fæðingu. I erindinu kom fram að sjúkdómsgreiningar á geð- rænum breytingum eftir fæðingu gæfu ekki einar og sér raunhæfa mynd til að skilja þá þætti, sem geta valdið konum vanlíðan nokkrum mánuðum eftir fæð- ingu. Mikilvægt sé að skilja álagið, sem vekur streitu-, kvíða- og þunglyndisvið- brögð hjá konum. I umræðum um þetta erindi kom fram að ljósmæðrum fannst að þær hafi víða misst úr hönd- um sér eftirlitið með konum eftir fæð- ingu, sérstaklega eftir 6-vikna tímabilið þegar sængurlegunni lýkur, en hinni sálfélagslegu aðlögun eftir barnsburð er alls ekki lokið. 5. Eli Heiberg Endresen, sjúkraþjálf- ari og mannfræðingur, sagði frá rann- sókn, sem hún og aðrir hafa gert á stöðu ófrískra kvenna á vinnumarkaði í Noregi. Það virðist orðin list í lífi nú- tímakvenna að finna sér tíma fyrir þungun vegna tímaleysis sem útivinn- an skapar. Algengt er að konur útvegi sér veikindavottorð til að finna nauð- synlegan tíma til að aðlagast þungun- inni. Skýrslur 1 og 3 af þeim rannsóknum eru til útláns á bókasafni Námsbrautar í hjúkrunarfræði í Eirbergi. Hópstarfið Tilgangur hópstarfsins var að veita Ijósmæðrum leiðbeiningu í lestri rann- sókna í von um að þær mundu í fram- tíðinni oft lesa og meta rannsóknar- greinar. Dreift var til allra ljósrituðum LJÓSMÆÐRABLAÐIÐ

x

Ljósmæðrablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.