Ljósmæðrablaðið - 01.12.1991, Blaðsíða 13
rannsóknargreinum, sem voru síðan
ræddar í hópi. Rannsóknirnar voru að-
ferðafræðilega misvel unnar og mark-
miðið í umræðum var að finna út, í
hverju kostir og takmörk hverrar rann-
sóknar fólust. Flestar ljósmæður í
hópnum höfðu ekki áður lesið rann-
sóknargrein og gátu ekki metið hana
einar með tilliti til aðferðafræðinnar.
Vegna mikillar faglegrar þekkingar
þeirra á efninu var hinsvegar hægt að
koma fróðlegri umræðu af stað. Marga
leiðbeindi einum hóp og var það hlut-
verk leiðbeinanda að leiða umræðuna
út frá aðferðafræðilegum viðmiðun-
um. Það er hennar mat að hópumræð-
an hafi verið mjög gefandi fyrir alla
hópfélaga. íslenskar ljósmæður gætu
farið svipaða leið til að auka læsi á
rannsóknum, t.d. með því að koma á
laggirnar leshring um rannsóknir ljós-
mæðra. Þær gætu valið sér ljósmóður
með aðferðafræðilega þekkingu að
leiðbeinanda. Einnig gætu íslenskar
ljósmæður nýtt sér þjónustu Endur-
menntunardeildar Fiáskóla íslands og
beðið um endurmenntun í rannsóknar-
aðferðum. M.a. gæti,.lesefnisleití tölvu
°S læsi á rannsóknir" verið viðfangs-
efni slíks námskeiðs.
Lokaorð
Ráðstefnan um „rannsóknir og ljós-
mæður“ var að mörgu leyti fróðleg og
hvetjandi. Ekki síst vegur þungt sú vin-
átta, sem starfssystkini frá Norðurlönd-
LJÖSMÆÐR ABLAÐIÐ ___________________
unum sýndu og það opna andrúmsloft
er einkenndi umræðurnar. Vinargjöf
frá norskum Ijósmæðrum er bókin
,,Sækið Ijósmóðurina". (G. Soraa,
1984), sem er öllum aðgengileg á bóka-
safni Kvennadeildar Landsspítalans.
Að lokinni þessari ráðstefnu skiptir
þó mestu máli, að íslenskar ljósmæður
meðtaki þá vakningu sem hefur orðið
varðandi mikilvægi rannsókna í starfi
ljósmæðra á Norðurlöndunum og á
Bretlandseyjum og hafi í framhaldi af
því frumkvæði hér heima til að kynna
sér rannsóknir á sínu sviði.
Heimildir:
Ebba Wergeland, Kitty Strand, Eli Heiberg Endre-
sen (1991). Rapport Nr. 1, GRAVIDITET
OG ARBEID, Gravid í Norge Ved Inngangen
Til Nittiárene, Univ. i Oslo.
Eli Heiberg Endresen (1991). Rapport Nr. 3,
GRAVIDITET OG ARBEID, Stormarkedet
som Arbeidsplass, Univ. i Oslo. Á bókasafni
Námsbrautar í hjúkrunarfræði, Eirbergi.
Finn Borlum Kristensen, K V Andersen, A M Ny-
boz Andersen, H Kjærgaard Nielsen, V Weir-
um Knudsen, N Hermann, Forebyggende
Helbredsundersogelser af gravide kvinder i
Danmark, UGESKR LÆGER, 151/49, 4.
Dec. 1989, VIDENSKAB OG PRAKSIS;
3308-3311.
Gerd Soraa (1984). Hent Jordmora (Sækið Ijós-
móðurina), Gyldendal Norsk Forlag. Á bóka-
safni kvennadeildar Landspítalans.
MIDIRS Midwifery Digest, No. 1, 2, 3. Á bóka-
safni kvennadeildar Landspítalans.
1 1