Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1991, Side 32

Ljósmæðrablaðið - 01.12.1991, Side 32
Ráðstefna ljósmæðra 15. og 16 október 1991 Ljósmæður sem starfa á fæðingar- gangi Landsspítalans héldu ráðstefnu í BSRB-húsinu dagana 15. og 16. októ- ber sl. Ráðstefnuna sátu um 40 ljós- mæður báða dagana. Ljósmæðurnar unnu saman tvær og þrjár í hóp að verkefnum um ýmis störf ljósmæðra á fæðingadeildinni og gerðu grein fyrir niðurstöðu á ráðstefnunni. Akveðið var að birta hluta úrlausna í Ljós- mæðrablaðinu öðrum ljósmæðrum til fróðleiks og skemmtunar. Hér á eftir fylgir niðurstaða um fimm verkefni sem unnin voru af eftirtöldum ljósmæðrum á fæðingadeild 23A: Birna Gerður Jónsdóttir (BGJ) Bóthildur Steinþórsdóttir (BS) Elísabet Ólafsdóttir (EÓ) Gróa Margrét Jónsdóttir (GMJ) Hulda Þórarinsdóttir (HÞ) Margrét Bjarnadóttir (MB) Sonja Guðjónsdóttir (SG) MB/HÞ/SG Belgjarof Þegar belgjarof á sér stað, þarf að hafa eftirfarandi atriði í huga. 1. Búið er að segja konunni í mæðraskoðun hvað gera skuli, ef belgjarof verður heima. Sérkennileg 30__________________________________ lykt er af legvatni og oft kemur smá gusa fyrst. Þó getur seitlað smátt og smátt. Leggjast fyrir og hafa samband við fæðingadeild. 2. Konan kemur í sjúkrabíl á fæð- ingadeild ef: * Konan er gengin skemur en 35—36 vikur. ’ Barn er í afbrigðilegri stöðu, sitjandi eða skálegu. * Legvatn er blóðlitað eða grænleitt. * Kollur sagður óskorðaður. Þetta er vegna aukinnar hættu á framfalli á naflastreng. (Sjúkrabíll kost- ar kr. 2.000, innan stór-Reykjavíkur- svæðis í ágúst 1991). Konan kemur í einkabíl ef óvíst er um belgjarof. Ljósmóðir metur þetta hverju sinni eftir símviðtali við verðandi foreldri. 3. Við komu á deildina: Ef ekki er víst að belgjarof hafi átt sér stað, er prófað með þar til gerðum pinna (amnicator), sem stungið er upp í leghálsinn. Hann litast svartur ef leg- vatn rennur. (Ath! Ekki má þvo kon- unni með hibitan-kremi eða chlorhexid- ini, því þá getur komið falskt jákvætt próf). Um leið er metið ástand legháls og staða fyrirsæts fósturhluta. ___________________ I—IÓSMÆÐRABLAÐIÐ

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.