Ljósmæðrablaðið - 15.11.2001, Side 3
Ritstjóraspj
Þegar haustið læðist að þá byijar þessi venjulegi
erill með ótal tilboðum um námskeið til bættrar
heilsu, meiri þekkingar og betra lífs.
Félagasamtök taka til við að undirbúa
vetarstarfið og er LMFÍ þar engin
undantekning. Ritstjóri hefur fregnað að
íræðsluneíndin sé með metnaðarfulla starfsemi
í undirbúningi íyrir veturinn og er þegar þetta
er ritað búin að senda út dagskrá að fyrsta
fundi vetrarins sem fjalla á um efni sem allar
ljósmæður geta þurft að glíma við í sínu starfi
hver svo sem starfsvettvangurinn er.
Ritstjóri og ritnefnd hafa einnig ástæðu til að
fagna, sem og allar ljósmæður, því í fyrsta
sinn er nú birt ritrýnd grein í ljósmæðrablaðinu
en það er grein Helgu Gottfreðsdóttur um
viðhorf kvenna og ljósmæðra til
mæðraskoðunnar. En um það efni fjallaði
mastersritgerð Helgu. Ritstjóm ákvað einnig
að birta grein Auðar Bjamadóttur sem hún að
okkar beiðni vann upp úr íyrirlestri sem hún
flutti um sama efni á fundi hjá áhugafélagi
um heimafæðingar. Víða er hægt að leita
fanga um fræðslu og gefur það fræðslunni
meiri lit að blanda saman hefðbundnu og
óhefðbundnu efni. Fræðsla er nú í boði í
svo ijölbreyttu formi að maður má hafa sig
allan við að fylgjast með. Haldin eru
námskeið, fræðslufundir nær og ijær, að ekki
all
sé talað um framhaldsnám sem er öllum opið
sem vilja leggja það á sig. í litlu félagsblaði
er ekki hægt að gera þessu tæmandi skil en við
reynum að koma því að sem berst til okkar og
því sem við rekumst á í leit okkar að efni.
Blaðið sem nú er komið út stækkaði um
helming miðað við það sem lagt var upp með,
því ekki er hægt að neita þegar gott efni berst.
Það er stefina okkar að birta það sem berst til
okkar svo fremi það berist í tíma því það er
alltaf hægt að bæta við síðum ef tíminn er
nægur. Það er sérstaklega ánægjulegt að
finna og sjá hvað ljósmæður eru áhugasamar
að skrifa og senda efni til okkar og hvet ég
ykkur sem eigið efni í fórum ykkar að senda
okkur það sem fyrst því gott efni er alltaf vel
þegið og betra ef það berst tímanlega.
Efnisyfirlit
Viðurkenning á Háskólahátíð 2
Ritstjóraspjall Ólafía M. Guðmundsdóttir ljósmóðir 3
Formannshugleiðingar Ástþóra Kristinsdóttir ljósmóðir 4
Hvað felst í mæðravemd ?
Viðhorf kvemta og
ljósmæðra. Helga Gottíreðsdóttir ljósmóðir 5
Mikilvægt að standa með
viðhorfum sínum - viðtal
við Kirsten Rosendahl
ljósmóður á Fjóni. Helga Harðardóttir ljósmóðir 16
Jóga á meðgöngu Auður Bjamadóttir jógakennari 22
Norðurlandasamstarf Hildur Kristjánsdóttir ljósmóðir 26
Stiklur úr dönsku blöðunum Katrín Edda Magnúsdóttir ljósmóðir 29
Parvovíms Hildur Harðardóttir læknir 31
Ársskýrsla LMFÍ 2001 - Stjóm og nefndir LMFÍ 2001 - 2002 35
Nýútskrifaðar ljósmæður 38
Fréttir ífá LMFÍ 38
Ráðstefhur 38
Ljósmæðrablaðið
gefið út af
Ljósmæðrafélagi Islands
Hamraborg 1 200 Kópavogi
Sími: 564 6099 fax 564 6098
Netfang: lmfi@prim.is
Heimasíða: www.ljosmaedrafelag.is
Ritstjóri
Ólafla M. Guðmundsdóttir
ljósmóðir
Sími: 564 4254/861 4254
Netfang: olafinnur@centrum.is
Ritnefnd
Jenný Inga Eiðsdóttir
Sími: 561 0336
Ingibjörg Th. Hreiðarsdóttir
Sími: 567 0841
Halla Hersteinsdóttir
Sími: 695 8785
Katrín Edda Magnúsdóttir
Sími: 561 1636
Myndir
Kristinn Ingvarsson
Jón Svavarsson
Ólafía M. Guðmundsdóttir
Helga Harðardóttir
Þórdís Ágústdóttir
og fleiri.
Auglýsingar
Ólafla M. Guðmundsdóttir
Uppsetning er í höndum ritstjóra.
Prentun og umbrot Skemmuprent.
Upplag 500 eintök.
Ljósmæðrablaðið er opinbert tímarit
Ljósmæðrafélags íslands og er öllum
ljósmæðrum frjálst að senda efni í
blaðið. Greinar sem birtast í blaðinu
eru alfarið á ábyrgð greinahöfúnda og
endurspeglar ekki endileg viðhorf
ritstjóra, ritnefndar eða Ljósmæðra
félagsins. Ritnefnd áskilur sér þó
rétt til að endursenda greinar til
lagfæringar ef málfari eða írágangi er
ábótavant og hafna alfarið birtingu
greina sem eru illa unnar eða
málefnum ljósmæðra óviðkomandi.
Skilafrestur í aprílblað er febrúarlok
og íyrir októberblað ágústlok og skulu
greinahöfimdar skila efni annaðhvort
á disklingi eða senda það á netfang
ritstjóra - olafinnur@centrum.is
Forsíðumynd er af sumarbústað
LMFÍ Kjarrhúsi í Biskupstungum.