Ljósmæðrablaðið

Årgang

Ljósmæðrablaðið - 15.11.2001, Side 27

Ljósmæðrablaðið - 15.11.2001, Side 27
Ljósmæðranám í Danmörku breytist frá 1. sept. 2001 úr 3 ára námi í 3 og 1/2 árs nám og verður annaskipt eða 7 annir. Náminu lýkur með bachelorgráðu. Menntunarkröfur kennara verða auknar í að hafa MPH eða kandidatspróf. Þeir fá 5 ára aðlögunartíma. Umræða um verkfallsrétt ljósmæðra hefur verið nokkur í Danmörku og kemur í ljós að ljósmæður sem vinna við mæðravemd og við sængurlegu geta farið í verkfall en fæðingaþjónusta er undanþegin verkfalli. Þessu er svipað varið í hinum löndunum og varð nokkur umræða um hvernig væri hægt að fara í launabaráttu án þess að hún bitnaði á 3.aðila. í Finnlandi voru samþykkt ný lög fyrir ljósmæðrafélagið og er aðalbreytingin sú að þau gera ráð fyrir að tengsl við stór samtök svipuð BHM hér á landi, verði rofin. Stórt áhyggjuefni í Finnlandi er hversu fáar ljósmæður fá vinnu við mæðravemd og er hún að rnjög rniklu leyti í hendi hjúkrunarfræðinga og lækna. Menntun ljósmæðra er 4 og 1/2 ár og í dag eru útskrifaðar um 200 ljósmæður á ári. Þrátt fyrir það er séð fram á ljósmæðraskort eftir 10 ár og er talsverð umræða um hvemig sé hægt að laða að ljósmæðranema og hversu marga nemendur þarf að taka inn árlega. í Færeyjum fengu ljósmæður umtalsverða launahækkun. Þar varð einnig um það bil 15% aukning á fæðingum á árinu 2000 frá árinu á undan. Þar hefur fæðingastöðum fækkað verulega og þurfa konur nú að fara oft um langan veg til að komast á fæðingardeild. Umræðan á stjómsýsluplaninu er auðvitað um „dýra fæðingastaði”, sem eru þeir litlu og er hár kostnaður talinn réttlæta löng og oft erfið ferðalög kvennanna, að ekki sé minnst á ljarveru frá fjölskyldu og heimili um lengri tíma. Þessa umræðu þekkjum við allvel hér á landi. í Noregi hefur verið markvisst unnið að því að flokka fæðingastaði og að halda úti fæðingaþjónustu í dreifbýli. Þetta hefur verið kynnt áður í grein sem þessari og vísast til hennar hér. Skýrsla Islands var byggð á skýrslu þeirri sem flutt var á aðalfundi félagsins í vor og vísast til hennar. í Noregi var frestað afgreiðslu á nýrri handbók/leiðbeiningum fyrir mæðravernd í landinu þar sem ekki náðist þverfagleg sátt um hana. Sagt var frá því að ríkið væri að yfirtaka rekstur allra sjúkrahúsa og hugsanleg áhrif þess á framtíð fæðingaþjónustunnar rædd. Félagið gekkst fyrir könnun á landsvísu um hvernig lögin um „kommune” ljósmæður hefðu náð fram að ganga. Það kom í ljós að aðeins 19 % bæjar/sveitafélaga hafa 1 stöðugildi fyrir bæjar/sveitarfélags ljósmæður og aðeins 99 af 439 bæjar/sveitarfélögum hafa fylgiþjónustu (þ.e. ljósmóðir fylgi konunni á fæðingarstað) inni í starfslýsingu eða stöðugildi sínu. Félagið hefur gengist fýrir allmörgum endur- menntunamámskeiðum fyrir ljósmæður á árinu, meðal annars um rannsóknaraðferðir og heimspeki. Áframhaldandi umræða er um menntun ljósmæðra í Noregi sem ekki uppfyllir EB staðla ennþá. Málið er enn til umfjöllunar hjá stjórnsýslunni. Sænskar ljósmæður ræða mjög þessa dagana um það hvað barneignarþjónustan inniber. Hvernig er hægt að gera hana meira evidence-based en hún er nú þegar, hvemig er hægt að skipuleggja þjónustuna og hvar á hún að fara ffam. Möguleikar á samfellu í þjónustu hafa vaxið nokkuð með tilkomu þess að opnaðar hafa verið tvær stórar barneignareiningar hvor um sig getur annað um 2000 fæðingum. Þessar einingar munu annast meðgöngu, fæðingar og sængurlegu/heimaþjónustu út frá hugmynda- fræðinni ljósmóðir með konunni. Það hefur sýnt sig að ABC einingarnar hafa verið dýrar í rekstri og því á að reyna þetta form, sem er stærra í sniðum og ekki eingöngu ætlað „low- risk” konum. Talsverðar umræður urðu um þetta og það kom í ljós þar að þessar einingar munu hafa nemendur bæði ljósmæðranema, læknanema og lækna í sérfræðinámi. Einingarnar verða algjörlega undir stjórn ljósmæðra og mun Ulla Waldenström stjórna annarri þeirra. Sænskar ljósmæður hafa verið mjög virkar í að beita sér fyrir samráðsfundum með kvensjúkdóma- og fæðingarlæknum og hafa sett fram sameiginlegar yfirlýsingar oftsinnis. Nú síðast um hvernig verði reynt að draga úr 4° spangarrifum. Nú er umræða þeirra á milli um hvemig sé hægt að bregðast við hækkandi tíðni keisaraskurða. Það kom einnig fram að viðhorfabreyting er að verða frá því að líta á fæðingu sem áhættuferli í að sjá hana sem eðlilegt ferli. í Svíþjóð em eins og í Finnlandi áhyggjuefni að á næstu 10 árum mun verða skortur á ljósmæðrum. Unnið er að áætlun um, aðallega á skólastigi, hvernig eigi að bregðast við þessu. Áhyggjuefni ljósmæðrafélagsins er hvemig hægt verði að tryggja hágæða verklega þjálfun nemenda og hafa áhyggjur af t.d. þjálfun í notkun sogklukku og að taka á móti barni í sitjandastöðu. 1300 ljósmæður frá öllum Möguleikar á samfellu i þjónustu liafa vaxið nokkuð með tilkomu þess að opnaðar hafa verið tvœr stórar bameigna- einingar hvor um sig getur annað um 2000 fœðingum. Þessar einingar munu annast meðgöngu,fœðingarogsœngur- legu/heimaþjónustu út frá hugmynda- frœðinni ijósmóðir með konunni.

x

Ljósmæðrablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.