Ljósmæðrablaðið - 15.11.2001, Qupperneq 33
Eftirlit á meðgöngu og
meðferð.
Ef ný parvosýking móður er staðfest
þarf að fylgjast með fóstrinu vikulega með
ómskoðun, í 8-10 vikur, í leit að merkjum um
fósturbjúg. Mesta hættan fyrir fóstrið er 3-6
vikum eftir sýkingu móður, en dvínar svo með
tímanum.(8) Einnig má nota blóðflæðismælingu
(Doppler) í miðhjarnaslagæð (middle cerebral
artery, MCA) og mæla hámarks systólískt
útslag á sama hátt og lýst hefur verið hjá
fóstrum með rhesus næmingu. Ef
hámarksútslag í MCA er yfir 95% ile eru
auknar líkur á blóðleysi fósturs og þar með
hætta á myndun fósturbjúgs.(9)
Blóðflæðismælingin getur þannig gefið
vísbendingu um sýkingu áður en fósturbjúgur
kemur ífam. Ef fósturbjúgur myndast er hægt
að gefa fóstrinu blóð, annað hvort í kviðarhol
(peritoneal transfusion) eða í æð (intravascular
transfusion). Slíkar aðgerðir eru vandasamar
og ekki framkvæmdar nema á fáum stöðum í
heiminum. Frá íslandi konur verið sendar til
Skotlands ef gefa þarf fóstri blóð vegna rhesus
næmingar en engin kona hefur farið utan vegna
fósturblóðleysis af völdum parvósýkingar.
Horfur fósturs.
Eftir að fósturbjúgur hefur myndast
eru horfur slæmar, aðeins 15-30% lifa án
meðferðar. Rodis og félagar könnuðu meðal
Bandarískra sérfræðilækna í
fæðingarlæknisfræði (Society of Perinatal
Obstetricians) árið 1997 hvaða meðferð þeir
beittu við Parvósýkingu á meðgöngu.(io) Af
þeim 539 tilfellum af parvósýkingu með
fósturbjúg sem tilkynnt voru dó þriðjungur
fóstra í móðurkviði, hjá þriðjungi gekk
bjúgurinn til baka án meðferðar og hjá þriðjungi
gekk bjúgur til baka í kjölfar blóðgjafar. Af
þeim fóstrum sem fengu blóðgjöf dóu 6%.
Ekki er ljóst hvort fóstrin dóu vegna
aðgerðarinnar eða hvort þau voru of langt leidd
og varð þess vegna ekki bjargað. Af þeim sem
fengu blóðgjöf var lifun 83,5%. Eitt prósent
kvenna fór í fóstureyðingu eftir að fósturbjúgur
hafði myndast, allar innan við 21 vikna
meðgöngu, en meðalmeðgöngulengd við
greiningu var á bilinu 16-32 vikur. Ef fóstrið
lifir eru langtímahorfur góðar en þroski
miðtaugakerfis var sambærilegur við börn
kvenna sem höfðu merki um gamla
parvósýkingu.(i i) Hins vegar vantar upplýsingar
um langtímahorfúr fósturs eftir blóðgjöf
á meðgöngu. Ef litið er á rhesus sjúkdóm, sem
er sambærilegur við parvósýkingu með tilliti
til blóðleysis, þar sem fósturblóðgjöf er gerð
vegna blóðleysis, þá eru horfur góðar.(i2)
Fjarvistir frá vinnu.
Á meðan mótefnamæling fer fram er
mælt með að halda sig frá mögulegum
smitberum. Því ættu þungaðir leikskólakennarar
og jafnvel grunnskólakennarar, að vera heima
þangað til niðurstaða fæst. Efvemdandi móteíni
em til staðar getur konan farið aftur í vinnu en
ef hún hefur ekki verndandi mótefni þá mæla
sumir með að konan sé heima þangað til
faraldurinn er genginn yfir. Ef engin mótefni
em til staðar þarf að endurtaka mótefnamælingu
eftir 2-3 vikur til að fá fúllvissu um að nýtt smit
hafi ekki orðið. Sýking er þó ekki útilokuð þó
svo konan sé heima, hún gæti til dæmis hafa
orðið útsett án sinnar vitundar fyrr á
meðgöngunni eða í gegnum fullorðna. Það er
því erfitt að setja algildar reglur og þar sem hér
getur verið um margra vikna fjarvistir frá vinnu
að ræða er best er að meta hvert tilfelli fyrir
sig.
Tafla 2. Nokkrar staðreyndir um parvóveiru B19
sýkingu í þungun
*Erlendis er allt að helmingur kvenna með verndandi mót-
efni. íslenskar tölur eru ekki til.
50%
*Þriðjungur fóstra sýkist í kjölfar sýkingar móður
30%
*Tíðni fósturláta á 1. þriðjungi meðgöngu
10%
*Sýkt fóstur og fós turbjúgur
3%
*Smithætta ef smitberi á heimili
50%
*Smithætta ef smitberi í skóla eða nágrenni
20-50%
Niðurlag.
Parvóveirusýking hjá þungaðri konu
getur valdið sýkingu hjá allt að þriðjungi fóstra
með þeim afleiðingum að alvarlegur
fósturbjúgur myndast.. Án meðferðar deyr allt
að 70% fóstra í móðurkviði en yfir 80% lifa
eftir blóðgjöf. Á íslandi er ekki vitað hve stór
hluti þjóðarinnar hefúr mótefúi gegn parvóveiru
B 19 né hve stór hluti þungaðra kvenna smitaðist
í síðasta faraldri.
Ef verndandi
mótefni eru til staðar
getur konan farið aftur
í vinnu en efhún hefur
ekki verndandi mótefni
þá mœla sumir með
aðkonan sé heima
þangað til faraldurinn
er genginn yfir.
Ljósmæðrablaðið n
nóv 2001