Ljósmæðrablaðið - 15.11.2001, Qupperneq 35
Ársskýrsla stjórnar
LMFÍ EOW
Haldnir voru átta stjórnarfundir árinu, þar af
einn starfsdagur. Almennir félagsfundir voru
þrír. Þær breytingar urðu á stjóm að Guðlaug
Einarsdóttir gekk í stjórnina en Rósa
Bragadóttir vék úr henni. Ennfremur sagði
Margrét Hallgrímsson af sér stjórnarstörfum
vegna breytinga vinnuhögum sínum.
Fjöldi starfandi ljósmæðra er nú 228,
kjarafélagar LMFÍ erul79 en fagfélagar eru
58. Anægjulegt er að fylgjast með því að sífellt
Qölgar ljósmæðrum sem kjósa að vera innan
LMFÍ jafnvel þó að ljósmæðrastarfið sé ekki
þeirra aðalstarf.
Breytingar urðu á ljómæðraráði, en það skipa
nú Hildur Kristjánsdóttir fyrir hönd LMFÍ og
Helga Gottfreðsdóttir fyrir hönd Háskóla
íslands en Vilborg Ingólfsdóttir fyrir hönd
Heilbrigisráðuneytisins en hún er jafnframt
formaður ráðsins.
Lítið hefur þokast samningaátt kjaramálum.
Lítill vilji virðist vera af hálfu SNR til að semja
og ekki virðist vera vilji til að ljósmæður fái
þær launahækkanir sem sambærilegar stéttir
hafa verið að fá að undanförnu. Haldinn var
félagsfundur um kjaramálin þann 17.apríl sl.
Þar mættu einungis um 20 ljósmæður og vonast
er til að fundurinn ræði aðeins um kjaramálin
á eftir og gefi kjaranefndinni línur um hvað
félagsmenn vilja gera í málunum.
Stjórn LFMÍ ákvað í vetur að starfshlutfall
starfsmanna skyldi aukið upp í 100%.
Formaður hefur verið fast skrifstofunni frá
klukkan 13-17 alla fimmtudaga. Margrét
Bjarnadóttir starfsmaður skrifstofunnar er eftir
sem áður þar við eftir hádegi mánudögum.
Þær breytingar urðu um áramótin að öllu
sjálfstætt starfandi heilbrigisstarfsfólki var gert
skylt að tryggja sig s.k. sjúklingatryggingu.
Ljósmæður í heimafæðingum og
heimaþjónustu urðu því að tryggja sig aukalega,
burt séð frá fyrri tryggingum.
Benda má á að ný lög um fæðingaorlof gengu
í gildi um áramót. Með þeim hafa feður nú
rétt á mánaðar fæðingaorlofi sem er bundið
þeim. Ánægjulegt er að feður hafa tekið þessu
tækifæri feginshendi og nú þegar nýtir yfir
helmingur þeirra sér þennan rétt.
Ljósmæðrablaðið á 80 ára afmæli á næsta ári,
árið 2002. Eitt tölublað kom út á árinu.
Ritstjóraskipti urðu um áramót þegar gerður
var þjónustusamningur við Ólafíu M.
Guðmundsdóttur ljósmóður. Starfssamningurinn
kveður á um að út komi blað í apríl og október.
Tveir NJF fundir voru á starfsárinu, aðalfundur
s.l. haust og var þar kjörinn nýr formaður sem
kemur írá Finnlandi að þessu sinni. Fulltrúar
LMFÍ á þeim fúndi voru Ástþóra Kristinsdóttir
og Hildur Kristjánsdóttir. Seinni fundurinn
var aukafundur þar sem spáð var og spekúlerað
um stöðu NJF og hvort samtökin skyldu vera
fyrir ljósmæður eingöngu eða einnig fyrir
ljósmæðradeildir innan hjúkrunarfélaga. Var
Hildur Kristjánsdóttir fulltrúi LMFÍ þar.
Næsta Norðurlandaþing ljósmæðra verður
haldið hér á landi árið 2004.
I ráðstefnunefiid eru formaður LMFI Ástþóra
Kristinsdóttir, Hildur Kristjánsdóttir, Hrefna
Einarsdóttir, Margrét Hallgrímsson, formaður
fræðslunefndar LMFÍ og Sigfríður Inga
Karlsdóttir. Þema ráðstefnunnar hefur ekki
verið ákveðið og fer það væntanlega eftir þeim
abströktum sem berast. Allar tillögur eru vel
þegnar. Ráðstefnan verður haldin öðru hvoru
megin við hvítasunnuhelgina. Nefndin óskar
eftir áhugasömum ljómæðrum til starfa fyrir
ráðstefnuna.
Stjórnin samþykkti að hækka gjald fagfélaga
á fræðslu sem haldin er á vegum félagsins.
Var ákveðið að hrinda því í framkvæmd eftir
að stjórnin hafði fjallað um efnið mörgum
sinnum og einnig hefur verið Qallað um þetta
tvisvar aðalfundum félagsins og einum
félagsfundi. Var almenn sátt um að svona
skyldi þetta vera. Athygli er vakin á því að
kjarafélagar greiða félagsgjöld á milli 30-
40.000 kr. á ári miðað við fullt starf en
fagfélagar greiða einungis 3.500 kr.
Styrkur úr starfsmenntunarsjóði LMFÍ hefur
nú hækkað í 30 þúsund krónur fyrir kjarafélaga
annað hvert ár.
Búið er að gera breytingar á lögum og reglum
LMFÍ, þærfylgjameðíúndargögnumoghafa