Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.11.1937, Qupperneq 3

Freyr - 01.11.1937, Qupperneq 3
Grímur Thorarensen 1862 — 1936 Einn liinn tilkomumezta bónda á Suður- lan.di á fyrstu áratugum 20. aldarinnar, má eflaust telja Grím Tliorarensen í Kirkjubte á Rangárvöllum. Hann var stórbóndi í fleiri en einni merkingu. Hann var stór maður vexti; hár og herðabreiður; karLmenni að burð um og svipmikill. Bú hafði hann stærra en flestir eða aliir sýslungar hans, um 800 sauð- f jár og margt kúa og hrossa. ílann var hestá- maður mikill, átti góða reiðhesta og fór mik- inn þar sem hann var á ferð, hafði þá nóg til skiftanna, svo að ekki þurfti aS sitja lengi á þeim sama. Á heimili hans var stórbónda- bragur, margt hjúa, rausn hin mesta á öllum sviðum og gestrisni frábær. Átti húsfreyjan þar ekki síSur hlut að. Jörð sína liýsti hann stórmannlega, bæði að íbúðar- og fénaðarhús- um og 'bætti hana á ýimsan hátt. Jörðin Ivirkjubær er bújörð góð og víðlend, en engj- ar eru þar langt frá bæ og seinunnar. Var því erfitt aS afla þar nógra heyja handa svo stóru búi sem Grímur hafði, en aldrei.lá þar nærri heyskorti og voru fyrningar oft miklar, enda var heyskapurinn sóttur af miklu kappi og beitiland notað út í æsar. Grímur í Kirkju- bæ, svo vár hann venjulega nefndur, hafði siði hinna gömlu, góðu búmanna með fyrirhyggju á öllum sviðum, hirðusemi og nýtni, enda bar búskapurinn sig vel hjá honum, þótt miklu væri kostað til vinnu. Gr. Th. var hreppstjóri og hreppsnefndar- oddviti því nær allan þann tíma, sem hann bjó í Kirkjubæ. Hélt hann þar fast í taumana og stýröi svo vel, að af bar, og báru sveitungar hans til hans fágætt traust. Að landsmálum gaf G. Th. sig lítið og' var óframgjarn, en fastur var liann fyrir og lét ekki aðra vefja sér um fingur. Hann var drengur hinn bezti, fremur seintekinn, en því vinfastari og skemmtilegri, sem menn kynnt- ust honum betur. Gr. Th. var fæddur á Móeiðarhvoli 20. sept. 1862. Foreldrar hans voru Skúli læknir Thor- arensen og Rágnheiður Þorsteinsdóttir, ITelga- sonar prests í Reykholti. Grímur missti föð- ur sinn ungur og ólzt svo upp hjá móður sinni á Móeiðarhvoli, þar til hún lét af búskap 1884. Eftir það var hann nokkur ár lausa- maður, kom sér upp fénaði og sýndi að hann var búmannsefni. Árið 1888 kvæntist hann irændkonu sinni, Jónínu Egilsdóttur frá Múla I Biskupstungum, h'inni ágætustu konu, og reisti þá bú á Bjólu í Rangárvallasýslu, en 3 árum síðar flutti hann að Kirkjubæ og lieypti jörðina af Kristínu svstur sinni, þegar hún missti imann sinn, Boga heitinn Péturs- son. í Kirkjubæ bjó Gr. Th. í 33 ár, en fékk svo bú og jörð í hendur yngsta syni sínum, Boga, en flutti' með konu sinni til annars sonar síns, Egils, að Sigtúnum, sem þar hafði þá sett upp verzlun. Dvaldist hann þar við verzlunarstörf til dauðadags. Konu sína missti hann 1934 og andaðist sjálfur hálfu ööru ári síðar, í maí 1936. Á. H.

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.