Freyr

Árgangur

Freyr - 01.11.1937, Síða 7

Freyr - 01.11.1937, Síða 7
F R E Y R 165 til að lækka svo íslenzka krónu, að heilbrigt atvinnulíf gæti þróazt í landinu. Það var og er óverjandi, að löggjafinn láti það fyrst viðgangast, að slík eigna- og tekju- röskun eigi sér stað, eins og raun varö á, 'rneð tveim pennadráttum í gengisnefnd, og viðhaldi því síðan með löggjöf. — Því um það verður ekki deilt, að ef frjáls verzlun hefði verið hér á landi, til þessa dags, með erlendan gjaldeyri, að þá hefði hið litla framboð á honum en mikla eftirspum, fellt íslenzku krónuna stórlega. Því hefir verið haldið á lofti af ótrúlega mörgum, að lækkun krónunnar myndi alls ekki bæta afkomu aðalatvinnuveganna. Þetta er hin mesta fjarstæða. Slík skoðun getur ekki stafað nema af öSru’ tvennu, að hinir sömu sjái aðeins aukaatriði þessa máls og vanti alla heildarsýn, eða þá a5 þeir láti stjórnast af skammsýnum eiginhagsmunum einstaklinga, floldía eða stétta. — Ég vil spyrja þessa menn að því, hvort þeir álíti ekki að gengishækkunin 1925 hafi aukið skuldir framleiðendanna og rýrt tekjur þeirra, og ef þeir skyldu sjá, að svo hefir yeriö, þá hvers vegna gagnstæð ráðstöfun, gengislækkun, heföi nú ekki gagnstæð áhrif við gengishækkun þá, sem sé lækkun skulda og tekjuauka fyrir framleiðendurna. Þá er því haldið fram af þeim, sem (mæla gegn gengislækkun, en sjá neyð atvmnuveg- anna og vilja úr henni bæta, að hægt sé aö gera það eftir hagkvæmari leiðiun, til dæmis með ýmsnm opinberum styrkjum til atvinnu- veganna og lækkun skatta. Fjármagns til þessa sé aflað með ýmsu móti, þar á meðal gjaldi á aðflutt.um vörum. — En það virðast mér vera nokkuð miklar krókaleiðir, að taka fyrst af verði útfluttrar vöru með rangiátri gengisskráningu, en bæta svo eigendum þeirra einhvern hlut, meðal annars meö gjaldi á að- fiuttum vörum. —■ Slík til högun til viðreisn- ar atvinnuvegunum skapar nýja milliliði, sem þurfa sinn hlut, og rýra þar með þa.nn styrk. sem ætlaður kynni að vera atvinnuveginum. Auk þess má búast við því, að þessir styrkir yrðu æfinlega skornir svo við nögl, að rétt hrykki t.il að halda atvinnuveginum gangandi, en að þeir myndu aldrei geta skapað það fjárhagslega jafnvægi, setm nauðsyn er á, svo um aukningu sama atvinnuvegar geti verið að ræða, Þá ruglar slík tilhögun réttum skilningi manna á því, hvar hin eiginlega bjargræðis- uppspretta er, sem öll þjóðin lifir á, jafnvel hjá þeim stéttum, sem verðmætin færa í þjóðarbúið. Það er ranglæti á ranglæti ofan, ab skapa hjá þessum þjóðfélagsþegnum þá vanmáttartilfinningu, sem óumflýjanlega hlýtur aö vakna með því, að gera þá að slík- um styrkþegum. Það er því ekki aðeins fjárhagsleg nauð- syn, heldur og menningarleg, að lækka gengi íslenzkrar krónu til saimræmis við þarf- ir atvinnuveganna, svo að þeir gefi þeim, er þá stunda, ekki lakari afkomu en aðrar atvinnugreinar. Og taka upp nýjan verðmæl- ir, sem æfinlega sé óbreytanlegur við helztu framleiösluvörur þj óöarinnar. Þega.r fenginn er öruggur fjárhagslegur grundvöllur, — með lækkun krónunnar og nýjum verðmæli — fyrir atvinnureksturinn í landinu, má búast við því að fleiri og fleiri þegnar þjóðfélagsins óski þess að gera land- búnað, sjávarútveg eða iðnrekstur í sambandi við þessa atvinnuvegi, að æfistarfi. Nú má búast við því, að margur hver sé þess ekki umkominn að byrja slíkan atvinnurelístur af eigin ramleik, þar sem atvinna margra hefir veriö stopul og oft engin. — Þjóðarheildin hefir talið það skyldu sína að sjá þeilm far- boröa, sem ekki hefir haft aðstöðu til að vinna sér lífsframfæri. Því skyldi þá þjóðarbeildin ekki miklu fremur telja sér skylt, -— og henni ber siðferðislega skylda til þess, — að sjá svo um að þegnarnir eigi þess kost, — hver og einn, sem vinnufær er —- að geta notið krafta sinna í þjóðnýtu starfi, til öflunar

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.