Freyr - 01.11.1937, Page 25
F R E Y R
183
Frá tilraunaráði.
Frá því var skýrt í síSasta blaöi, að sam-
þykktar hefðu verið á Búnaðarþingi í fyrra
reglur um skipun tilraunaráðs, reglur þessar
birtar í blaðinu og skýrt frá hverjir eiga sæti
í tilraunaráðinu, svo og að það hefði ákveðið
að koma saman til fyrsta fundar 23. nóvem-
ber. Þann dag kom ráðið saman og sat á
ráðstefnu er haldin var á skrifstofu búnaö-
armálastjóra, til 30. s.m. og haföi þá haldið
7 fundi. Allir meðlimir ráðsins sátu fundinn,
nema Ragnar Ásgeirsson, er um þessar mund-
ir var á heimleið úr utanlandsför.
Fundarstjóri á fundum ráðsins var Stein-
grímur Steinþórsson, en ritarar Olafur Jóns-
son og Pálmi Einarsson.
Ráðið takmarkaði viðfangsefni sitt á þess-
um fundi við eftirfarandi atriði:
1. Athugun á og tillögur um hvernig birta
slrali árangur og niðurstöður tilrauna, sem
gerðar hafa veriö hingað til og gerðar
veröa framvegis, svo að almenningi komi
að sem beztum notum.
2. Starfsfyrirkomulag þeirrar tilraunastarf-
semi, sem nú er rekin í landinu, og sam-
ræming í störfum tilraunastöðvanna, með
Bjarni Ásgeirsson flutti hinsvegar kveðjur
og ávörp af íslands hálfu í opinberum sam-
kvæsmum, er voru í sambandi við sýninguna.
Það má hiklaust segja, að þáttaka Islend-
inga í sýningunni hafi vel tekizt og sé þeim
til sóma, er þar að stóðu. Þetta hvetur til að
setja markið hátt í framtíðinni, þegar hið
sama ber aö höndum, því aö ætíð á að keppa
að því að betur takizt næst, þótt vel sé af
stað farið.
Þess er vert að geta til maklegs lofs, að hin
ísl. sýningarnefnd naut ágætrar aðstoðar Olaf
Arngrimson, listmálara í Kaupmannahöfn,
um hinn tiikomumikla útbiinað „íslenzka
homs'ins" á sýningunni.
hliðsjón af aðstöðu þeirra til tilraunastarf-
semi.
3. Framtíðarskipulag þessarar starfsemi og
sainband hennar við Atvinnudeild Háskóla
lslands.
4. Fjárþarfir starfseminnar.
Ályktanir ráðsins um þau atriði, er falla
undir töluliö 1. hér að framan, voru sem hér
segir:
Tilraunaráðiö leggur til, að árangur til-
raunanna verði birtur á eftirfarandi hátt:
1. Birtar verði helztu niðurstöður af ein-
stökum tilraunum, þegar sýnt þykir hver
hinn hagnýti árangur þeirra sé, og jafnframt
því þær ályktanir, sem af þeim má draga, til
afnota fyrir verklegar framkvæmdir.
Skýrslur þessar séu samdar í sem styztu
máli og birtar í Frey, en sérprentaðar á laus-
um tölusettum blöðum undir nafninu:
„Fregnir Búnaðarfélags Islands frá til-
raunastarfseminni í jaröræktarmáluin.“
2. Heildarskýrslur um hverja sérstalía tij-
raun, sem gefnar verði út, þegar hverri til-
raun eða t'ilraunasamstæðu er lokið, eða hefir
verið starfrækt svo lengi, að telja má að feng-
ist hafi nokkurn veginn örugg svör við þeim
spurningum, sem þar áttu að leysast.
í skýrslum þessum verði gefið ýtarlegt yf-
irlit yfir tilhögun tilraunanna, undirbúning
allan, starfrækslu og talfræðilegan. árangur
og ályktanir þær, er af tilraununum verða
dregnar.
Skýrslur þessar séu gefnar út í Búnaðar-
ritinu og jafnframt sérprentaðar. Broti Bún-
aöarritsins verði breytt í Skírnisbrot.
3. Aðalárangur allra ræktunartilrauna, sem
gerðar hafa verið í lndinu, og nú er veriö
að gera, sé dreginn saman og gefinn út í sér-
stakri skýrslu með nauðsynlegum skýringum.
Yfirlit þetta sé endurprentað t.d. á 10 ára
fresti, með þeim breytingum og viðaukum,
sem tilraunastarfsdmin gefur tilefni til á
hverjum tíma.
Skal þessi útdráttur, að því leyti sem hánn