Freyr

Årgang

Freyr - 01.12.1940, Side 4

Freyr - 01.12.1940, Side 4
178 FRE YR 3óía6)U<3Í2t&tttð (Sftn: séva ^Dorgeit Qónsfon Jólin eru að koma, þessi fagnaðar og ljóssins hátíð, sem allir þrá og hlakka til. Og til grundvallar fyrir þessari gleði manna yfir komu jólanna liggur auðvitað margt. En það er aðallega tvennt, sem mestu máli skiptir og dýpstan fögnuð skapar í hjörtum okkar. Og þetta tvennt er birtan og ylurinn, sem jólin boða og flytja inn í líf okkar mannanna barna. Og þetta skeður í tvenns konar skilningi. Annars vegar tekur sólin að nálgast okkur með vaxandi skini og varma, og hins vegar hefir fæðing meist- arans frá Nasaret komið af stað aldahvörf- um í heimi andans með birtunni og hlýj- unni sem hvílir yfir og felst í lífi hans og boðskap. Upp af þessu hvoru tveggja sprett- ur dýrð jólanna í hugum okkar. Út frá þessu er það auðvelt fyrir okkur að skilja forfeðurna, sem að fornum sið drukku fagnaðaröl um þetta leyti ársins, og færðu Frey fórnir, ljóssins guði, sem þeir trúðu að réði yfir regni og ávexti jarðar, og sem þeir hétu á til árs og friðar. Við sjáum í þessu trúarlega hollustu og ein- kenni vorhugans, sem fagnandi þakkar og biður, þegar lagavald náttúrunnar kemur til móts við hann, fullt af fyrirheitum og eggjandi til dáða, djörfungar og fyrir- byggju. Á þetta lítum við með samúð og skilningi, sem nú lifum, og finnum í því nokkurn skyldleika við það sem í brjóstum okkar bærist, þegar jólahátíðin er í nánd. Hugur okkar er bundinn við hina hækkandi sól, sem vekur frjómögn jarðarinnar af dvala vetrarkuldans, og eykur þau og marg- faldar með áhrifum sínum. Jarðlífstilvera okkar veltur á þessu, og hamingjan er eigi lítið undir því komin, hvernig okkur tekst að hagnýta verðmætin í skauti náttúrunn- ar. í þessu sambandi gjörir gleði og eftir- vænting vart við sig hjá okkur eins og feðr- unum. En við þökkum ekki Frey, heldur úlföður fyrir þessa tilhögun og þessi gæði, og skoðum þau sem hans framréttu kær- leikshönd okkur til aðstoðar á'þroskabraut- inni. Þó er jólagleðin okkar lang dýpst og helgust í sambandi við Betlehemsundrið forðum, í sambandi við fæðingu Jesú Krists. Frá lífi hans og orðum stafar birta, sem lýst getur upp hvert hugskot, og frá lífi hans við vel minnast, er við nú höldum jól, yfir- leitt við allsnœgtir og góðan hlut miðað við það, sem víða er hjá frcendum vorum og vinum handan við nœstu höf. Öll harðstjórn elur sín eigin banamein og líður fyrr eða síðar undir lok. Harðstjór- arnir geta aldrei vœnzt þess að svo lengi daginn eða að svo bjart verði umhverfis þá, að það votti fyrir vinsemd né virðingu þeirra þjóða, sem þeir sviptu frelsi með því að rjúfa orð og eiða og með því að beita vopnum án allra saka. Því er kostur þeirra, er ókjörin og misréttið þola, að því leyti betri, að þeir geta i von og trú horft fram til þess og í kyrrþey unnið að því, að hinu myrka skammdegi, er nú grúfir yfir hag þeirra og frelsi létti af, og að framundan séu langir dagar Ijóss og lífs, sem vert sé að þrá og berjast fyrir. Við gerum okkur engar gyllivonir um það, að skammt sé að bíða betri tíma, en við trú- um því og treystum, að hörmungar þcer, sem að nú ganga yfir, séu þrátt fyrir allt, aðeins erfiður skammdegiskafli í lífi og sögu þeirra þjóða, sem að okkur eru skyld- astar og tengdastar. Senn muni þvi skamm- degi létta og um leið þeim skuggum þess, sem að hingað ná. Eftir þœr „sólstöður“ muni daginn lengja bœði fljótt og vel. Með þeim hug höldum við heilög jól, skiptumst á jólakveðjum og segjum GLEÐILEG JÓL. Á. G. E.

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.