Freyr

Årgang

Freyr - 01.12.1940, Side 5

Freyr - 01.12.1940, Side 5
179 FRE YR Ljósm. A. G. E. Furðu fáir vita, að tíl eru tvö líkneski af Jóni Sigurðssyni, bœði steypt eftir hinni sömu frummynd Einars Jónssonar myndhöggvara. Líkneskið á Austurvelli í Reykjavík kannast flestir við. Hitt líkneskið reistu landar i Vesturheimi. Það stendur á fögrum stað í þinghúsgarðinum í Winnipeg. Stjórn Manitoba- fylkis leyfði íslendingum að velja því stað hvar sem þeir vildu í garðinum. Er það einhver hinn mesti heiður, sem þeim hefir verið sýndur í Canada. Enginn annar þjóðflokkur, sem Manitoba byggir, á slíkt tákn sögu sinnar og þjóðernis í námunda við þinghús fylkisins og stjórnarsetur. og orðum leggur þann hita, sem brætt fær ísinn úr hjörtum mannanna. í hvert sinn er við hlustum eftir rödd hans, færumst við nær og nær hinni gæskuríku og mátt- ugu forsjón, og skynjum betur og betur vís- dóm hennar og vilja. Við fótskör meistar- ans bergjum við á uppsprettu lífsins, sem gjörir okkur andlegri, meira guðelskandi og um leið víðsýnni og frjálsari. Og á þessu hvílir ekki aðeins heill okkar í andlegum efnum, heldur og hagsæld okkar og ham- ingja í veraldlegum málum. Það er stað- reynd, að samkvæmt innræti okkar og and- legum þroska, metum við og meðhöndlum jarðargæðin. Og af þeirri lífsspeki og því trúar- og kærleikslífi, sem meistarinn uiiðlar hverjum, sem með honum lifir, spretta því lifandi og þróttmikil störf í hinum stundlegu viðfangsefnum, störf, sem eru unnin af samvizkusemi og framsýni, og þeim kærleikshug, sem hefir hag og giftu fjöldans og framtíðarinnar fyrir augum. Af þessu, meðal annars, má okkur því vera það ljóst, í hvaða stétt og stöðu sem við erum, hvílíka blessun jólin boða okkur, og þar af leiðandi meiri fögnuð en allt annað. „Réttlátum manni er gleði að gjöra það sem rétt er,“ sagði einn af spekingum fom- aldarinnar. Frelsarinn sagði: „Ég er veg- urinn, sannleikurinn og lífið,“ og „kominn til þess að þér hafið líf og nægtir“. Án sól- arinnar er lífið myrkur og kuldi, og án frelsarans er það vonlaust og villuráfandi. Nemum boðskap jólanna. Útrýmum sund- urlyndinu. Glæðum bróðurkærleikann í brjóstum okkar. Byggjum upp störfin í anda meistarans. GLEÐILEG JÓL!

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.