Freyr - 01.12.1940, Síða 7
FRE YR
181
RÆÐUSTÓLL HVANNEYRARSKÓLANS.
A fimmtíu ára afmœli Bœndaskólans á Hvanneyri vorið 1939, gáfu Borgfirðingar skólanum rœðustól
útskorinn úr eik. Á þrjár hliðar stólsins eru skornar upphleyptar myndir. Aðalmyndirnar eru þessar:
1. Maður að stinga upp með reku. 2. Sáðmað,ur. 3. Sláttumaður. Tvcer þessara mynda sjást hér að ofan,
en sáðmaðurinn á forsíðu blaðsins. Auk þess er stóllinn skreyttur skornum myndum af búfé og öðrum
húsdýrum og af búsáhöldum. Efst á framstuðlunum eru brjóstlíknesi, er sýna konu á íslemkum bún-
mgi og bónda hennar, Á framhliðinni er, auk sáðmannsins, mynd af sveitabæ, og svohljóðandi áletrun:
Bœndaskólinn á Hvanneyri 1889—1939, frá Borgfirðingum. „Akrar voru frjóvir og aldingarðar, gladdist
arður í grœnum sverði." Einkunnarorðin eru úr kvœði eftir séra Björn í Sauðlauksdal. Ríkarður Jóns-
son orti stólinn og skar hann út. Aðal hvatamenn þess, að gefa skólanum þennan merka grip, sem ekki
mun eiga sinn líka hér á landi, voru þeir Guðm. Jónsson á Hvitárbákka og Jón Hannesson í Deildartungu.