Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.12.1940, Qupperneq 15

Freyr - 01.12.1940, Qupperneq 15
FRE YR 189 # Ólafur Hákonarson ríkiserfingi Noregs. Solskitl Í Skaugum Kona hans Mártha krónprinsessa og börn þeirra prinsessurnar Ragnhild og Astrid og prins Harald. — Myndin er tekin á hlaðinu á Skaugum sumarið 1939. — „Einn sinni var kóngur Þá sögu er nú hægt að segja með sanni, í æðimörgum ríkjum Norðurálfunnar. Við Islendingar erum yfirleitt ekki svo kon- ungssinnaðir, að við finnum verulega til þess eins, þótt konungar láti af völdum, en nú veltur á meiru en titlum og tign. Það er frelsi þjóðanna sem verður að lúta í lægra haldi fyrir ofbeldi og einræði. Þegar slíku fer fram, er konungur hvers þess ríkis, er fyrir óréttinum verður, sá fulltrúi þjóðar sinnar, er mestu varðar að standi vel í stöðu sinni, haldi vel á rétti þjóðarinnar og beygi sig í engu. og drottning í ríki sinu“ Einn af þeim þjóðhöfðigjum, sem hafa orðið að hörfa úr ríki sínu, er Hákon Noregskonungur. Er sú saga öllum kunn hér á landi, og það hversu trúr hann reynd- ist þjóð sinni, þegar mest á reið. Ólafiir Hákonarson ríkiserfingi Noregs dvelur með föður sínum í Englandi ásamt hinni löglegu stjórn Noregs. Kona Ólafs, Mártha krón- prinsessa, flúði með börn þeirra þrjú, fyrst til Svíþjóðar og síðar til Ameríku. Ólafur ríkiserfingi er að nokkru leyti al- inn upp við búskap. Hákon konungur faðir hans hefir um langt skeið rekið bú á Bygdö

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.