Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2004, Blaðsíða 16
76 LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 2004
Fókus DV
Hinn síungi blaðamaður Tinni
fagnar 75 ára afmæli sínu við hátíð-
lega athöfn í dag. Tinni birtist fyrst á
síðum dagblaða í Belgíu þann 10.
janúar árið 1929 en síðan þá hafa tek-
inimyndabækur og myndir um
þennan knáa fréttasnáp verið gríðar-
lega vinsælar um alla heim. Alls hafa
verið 23 bækur um ævintýri Tinna, á
meira en 50 tungumálum, verið gefn-
ar út og hafa þær selst í meira en 200
milljónum eintaka.
Þessi frægasti blaðamaður Belg-
íu fær því afmælisveislu við hæfi í
dag en afmælinu verður fangað við
hátíðlega athöfn í Brussel. Þá prýða
myndir af Tinna forsíður allra
helstu dagblaða Belgíu og opnað
verður sérstakt safn honum til heið-
urs á heimili Herges, þess sem
teiknaði Tinna á sínum tíma. Einnig
75 ára í dag Tinni og fétagarhans fagna 75 ára afmæli idag. Itilefni dagsins verða mikil hátíðahöld íheimlandi hans Belgiu og meðal annars
verður safn honum til heiður formlega opnað.
Á fullri ferð
Þrátt fyrir að vera orðinn
verða sýningar þar sem Tinni er í
aðalhlutverki opnaðar í Frakklandi
og Hollandi í dag auk þess sem
mörg af þarlendum dagblöðum
hafa fylgt fordæmi kollega sinna í
Belgíu og gefið út aukablöð um
Tinna.
Fjármálaráðherra Belgíu, Didier
Reynders, heiðraði Tinna sérstaklega í
gær og hélt ræðu honum og höfundi
hans til heiðurs. Þar kom meðal ann-
ars fram að Tinni hafí verið einhver
mikilvægasti Belgíumaður frá upphafi
og hann hafi hjálpað mikið við að
koma landinu á kortið á alþjóðlegri
vísu. Þá talaði hann einnig um hvað
Tinni hefði náð mikilli útbreiðslu á
skömmum tíma og hversu vinsæll
hann hefði verið meðal barna um
heim allan. Að ræðunni lokinni
hrópuðu viðstaddir svo þrefalt húrra
fyrir afmælisbarninu.
Ævi Tinna hefur þó ekki verið
áfallalaus því hann hefur lengi verið
sakaður um samkynhneigð og hafa
menn sett ákveðin spurningamerki
við náið samband hans við skipstjór-
ann Kolbein. Það var á sínum tíma
mikið deiluefni og var samlöndum
Tinna mikið í mun að hreinsa hetj-
una sína af þeim rógburði. En í dag
þarf Tinni að glíma við þetta vanda-
mál og þarf líklega að gera um
ókomna tíð.