Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2004, Blaðsíða 39
38 LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 2004
DV Sport
LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 2004 39
Liverpool
vill fá Jones
Liverpool hefur mikinn
áhuga á að fá Paul Jones,
markvörð welska lands-
liðsins og Southampton, til
liðs við sig en bæði Jerzy
Dudek og Chris Kirkland
eru meiddir. Þess vegna
þarf Houllier, stjóri
Liverpool, nauðsynlega á
manni með reynslu að
halda en eini heili mark-
vörður félagsins í dag er
hinn óreyndi Patrice Luzi
sem stóð sig reyndar mjög
vel gegn Chelsea. Jones er
úti í kuldanum hjá Sout-
-hampton þar sem Antti
Niemi er markvörður
númer eitt. Jones hefur ekki
leikið síðan 1. nóvember
síðastliðinn.
Kewell sendir
OLeary pillu
Ástralski vængmaðurinn
Harry Kewell opnaði sig í
gær er hann greindi frá því
að hann hefði ekki grátið er
David O 'Leary var látinn
fara frá Leeds á sínum tíma.
„Ég sá ekki mikið eftir
honum. Hann hafði komið
okkur eins langt og hann
gat og það var kominn tími
^áferskt blóð," sagði Kewell.
„Fyrst er hann tók við var
hann góður maður. Svo
breyttist eitthvað. Hann
varð annar maður. Ég átti
samtöl við hann þar sem ég
skildi ekkert hvað hann var
að fara. Hann sagði
furðulegustu hluti. Ég skildi
ekkert í honum.“ Kewell
hittir O'Leary um helgina
er Liverpool leikur við
Aston Villa.
Spurs hefur
áhuga á
Trapattoni
Forráðamenn
Tottenham játuðu í gær að
þeir hefðu áhuga á
landsliðsþjálfara ítala,
Giovanni Trapattoni.
„Giovanni er einn besti
þjálfari heims í dag,“ sagði
Daniel Levy, stjórnar-
formaður Spurs. „Við erum
virkilega spenntir að heyra
hvort hann hefur áhuga á
- -félaginu því við myndum
taka vel á móti honum."
Sport DV
„Ég hafði alltaftrú á því að Saha yrði
stjarna. Hann spilaði vel með yngri
landsliðum Frakka og allir í kringum
landsliðið sögðu að hann væri einn sá
besti sem hefði komið fram í tíu ár. Þeir
sögðu allir að hann væri betri en Anelka
því ólíkt Anelka hefur hann gaman afað
leika knattspyrnu."
Franski framherjinn Louis Saha hefur verið mikið á milli
tannanna á fdlki undanfarnar vikur enda drengurinn
eftirsóttur af stærsta knattspyrnufélagi Bretlands.
Forráðamenn Fulham hafa ekki í hyggju að sleppa honum frá
félaginu en þeim gæti þð orðið sá kostur nauðugur því Saha
hefur barist með kjafti og klóm fyrir því að fá að fara frá
félaginu. Hann segist ekki ætla að linna látum fyrr en hann fái
draum sinn uppfylltan og gangi í raðir Manchester United.
Louis Saha var ekkert sérstaklega
stórt nafn í knattspyrnuheiminum
þegar Jean Tigana keypti hann til
Fulham frá Metz fyrir rúmar 2
milljónir punda. Hann hafði lengi
verið talinn einn af efnilegri
knattspyrnumönnum Frakklands en
hafði samt aldrei náð að standa
undir væntingum hjá hinu litla liði
Metz.
í skóla með Henry og Anelka
Knattspyrnuhæfileikar Saha
komu snemma í ljós og árið 1991
komst hann síðan í hinn fræga
knattspyrnuskóla franska knatt-
spyrnusambandsins í Claire-
fontaine. Þar fékk hann almennilegt
knattspymulegt uppeldi í þrjú ár hjá
mörgum af færustu þjálfurum
Frakklands.
„Þetta var frábær þjálfun sem ég
fékk þarna og ég á allt mitt
þjálfurum skólans að þakka,“ sagði
Saha um tímann í Clairefontaine.
„Þegar við fyrst komum þangað var
okkur sagt að við kynnum ekki
fótbolta en þeir ætluðu að kenna
okkur."
Það er óhætt að segja að
þjálfararnir haft staðið við það því
útskriftarfélagar Saha voru meðal
annars Thierry Henry og Nicolas
Anelka. Þeir þrír urðu allir perluvinir
og eru víst enn þann dag í dag.
„Fjölskyldur okkar eru frá sama
svæði og því lá beint við að við
yrðum vinir. Foreldrar mínir þekktu
foreldra Henrys vel og ég gisti
stundum hjá þeim. Við þrír áttum
það til að sitja og stara út í loftið á
meðan við létum okkur dreyma um
að spila á HM,“ segir Saha og bætir
því við að hann eigi ekkert nema
sælar minningar úr knattspyrnu-
skólanum.
Mismunandi örlög
Örlög þeirra félaga voru
mismunandi er þeir útskrifuðust.
Henry fór til Monaco, Anelka til PSG
en Saha til litla Metz. Sögu Henry og
Anelka síðan þekkja allir en minna
fór fyrir Saha. Hann blómstraði með
unglingalandsliðum Frakklands en
átti erfitt uppdráttar hjá Metz.
Jean Tigana vissi aftur á móti vel
hvað bjó í Saha og það vakti mikla
athygli þegar hann pungaði út
rúmum 2 milljónum punda fyrir
hann á sínum tíma. Saha sveik ekki
því hann skoraði 27 mörk með
Fulham á sínu fyrsta tímabili og átti
stóran þátt í því að koma Fulham
upp úr 1. deildinni.
Patrick Razurel, stjórnarmaður
hjá Metz, var ekki hissa á velgengni
Saha hjá Fulham. „Ég hafði alltaf trú
á því að hann yrði stjarna. Hann
spilaði með frábærum
unglingalandsliðum Frakklands og
allir í kringum landsliðið sögðu að
hann væri einn sá besti sem hefði
komið fram í tíu ár. Þeir sögðu allir
að hann væri betri en Anelka því
ólíkt Anelka hefur hann gaman af að
leika knattspyrnu."
Fékk tækifæri með Newcastle
Saha var ekki ókunnugur á
Englandi þegar hann fór til Fulham
því í byrjun árs 1999 var hann
lánaður frá Metz til Newcastle.
Stuðningsmenn Newcastle eru
eflaust hissa á velgengni Saha því
hann sýndi lítið af þeim töktum sem
hann sýnir þessa dagana er hann var
í þeirra herbúðum. Einstaka tilþrif
litu þó dagsins ljós og greinilegt var
að hann gerði nóg til þess að heilla
Ruud Gullit, þáverandi stjóra
Newcastle, því hann bauð í hann
um sumarið.
Það sem gerðist í kjölfarið hefur
aldrei verið upplýst. Talið var að
Newcastle væri búið að ganga frá
kaupunum en þá gerðist ekkert.
Hvort Gullit snerist hugur eða hvort
Newcastle átti ekki pening hefur
aldrei verið geftð upp.
Því varð Saha að snúa aftur til
Metz þar sem hann var settur á
bekkinn rétt eins og undanfarin ár
en þjálfari liðsins kaus frekar að tefla
fram reyndum leikmönnum en
Saha.
„Hugarfarið í Frakklandi er allt
öðruvísi en í Englandi," segir
Francois Manardo hjá franska
blaðinu L'Equipe. „Við förum mjög
varlega með unga og efnilega
leikmenn. Við segjum þeim að bíða
þolinmóðum á meðan efnilegum
leikmönnum á Englandi er kastað í
djúpu laugina áður en þeir eru
dæmdir. Þess vegna má kannski
segja að Saha hafi verið fangi
franska hugarfarsins."
rætt saman síðan á miðvikudag. Ég
átti einn slakasta leik minn á
ferlinum gegn Middles-brough. Ætli
það sé tilviljun? Þrátt fyrir allan
þennan hasar mun ég leggja mig
100% fram í leikjum mínum með
Fulham. Ég virði félaga mína of
mikils til þess að leggja mig ekki
fram. Menn skulu samt átta sig á því
að ég mun gera allt sem ég get til
þess að losna héðan,“ sagði Saha
reiður.
Pabbi kominn í málið
Þessi ummæli hafa hleypt nýju
lífi í Manchester United sem eru
taldir vera að undirbúa nýtt tilboð í
Saha og að þessu sinni upp á tíu
milljónir punda. Faðir Saha er
stokkinn í slaginn og segist vilja
ræða við Al-Fayed um málið.
„Þessu máli er langt því frá lokið.
Louis ædar ekki að missa af stærsta
tækifæri lífs síns. Ég vil funda með
Al-Fayed hið fyrsta," segir Vincent
Saha. „Louis hefur aUtaf verið trúr
og heiðarlegur í samskiptum sínum
við Fulham og hann býst við því
sama á móti. Hann var Fulham ekki
dýr á sínum tíma og þeir ættu að vita
að þeir eru að stórgræða á honum.
Ég talaði við Louis í dag og hann er
enn ákveðinn í því að komast til
United. Við munum ekkert gefa eftir
í þessu rnáli."
henry@dv.is
Frjáls frá Metz
„Fangelsisvist" Saha hjá Metz tók
enda sumarið 2000 þegar Jean
Tigana keypti hann til Fulham. Saha
segist eiga Tigana mikið að þakka.
„Hann sagðist geta gert mig að
góðum leikmanni hérna og ég var
mjög stoltur þegar hann sagðist
vilja fá mig. Tigana er alvarlegur
Harður nagli Louis Saha er ekki bara góður
markaskorari heldur er hann lika hörkunagli.
Hann litur ekki út fyrir aðhafa mikinn
likamlegan styrk en þrátt fyrir það er hann
sterkur sem naut segja varnarmenn liða í
ensku úrvalsdeildinni sem hafa spilað gegn
honum. Hann veigrar sér heldur ekki við að
tækla mennog hér fær Callum Davidson,
leikmaður Leicester, til tevatnsins hjá Saha.
þjálfari og veitir einstaklingnum
mikla athygli. Aðalatriðið hjá mér er
samt að hann byggði upp hjá mér
sjálfstraust sem ég þurfti
nauðsynlega á að halda."
Tigana gerði Saha ekki bara að
góðum markaskorara heldur að
fjölhæfari leikmanni. Hann setti
Saha í svipaða stöðu og Thierry
Henry spilar með Arsenal og það gaf
mjög góða raun. Saha hefur einnig
leikið á kantinum þannig að hann
býður þjálfurum ýmsa
möguleika.
Nú er Tigana
horfinn á braut en
Saha hefur
haldið áfram
að bæta sig
og nú vill
hann taka
næsta
skref og
ganga í
raðir
Byrjaði hjá Newcastle Ferill Louis
Saha i Englandi byrjaði hjá Newcastle
er hann var lánaður til félagsins frá
Metz ijanúar 1999. Hann skoraöi
aðeins eitt mark i 11 leikjum með
félaginu en þrátt fyrir þaö vildi Ruud
Gullit, þáverandi stjóri Newcastle,
kaupa Saha. Ekkert varð af
kaupunum og aldrei hefur verið gefin
útskýring á því afhverju þau gengu
ekki upp.
Manchester United. Hann hefur
ekki farið leynt með þann metnað
sinn og er kominn í hár saman við
framkvæmdastjórann sinn, Chris
Coleman, en þeir hafa ekki talað
saman í nokkra daga. Coleman
hefur ekki minnsta áhuga á að missa
markaskorara sinn á miðju ti'mabili
og hefur sent Saha og Sir Alex
Ferguson, stjóra Man. Utd, skýr
skilaboð þess efnis. Álíka skilaboð
hafa einnig komið frá eiganda
Fulham, Mohammed Al-Fayed.
Ætlar til Man. Utd
Því vill Saha ekki una og
Sann ædar sér til United,
sama hvað
forráðamenn Fulham
segja. Honum fannst
það bera vott um
lélegt viðskiptanef
for-ráðamanna
Fulham að taka ekki
átta milljóna punda
tilboði United í
hann.
„Ég veit að
Coleman var ekld
ánægður með
það sem ég sagði
við hann. Hann
tjáði mér það
sjálfur. Við
' öfum ekki
LOUIS SAHA
Fæddur: Fæðingarstaður: Hæð: 8. ágúst 1978 París, Frakklandi 184 cm
Þyngd: 75 kg
Leikmannaferill: 1997-1998: 21 leikur Metz 1 mark
1998-janúar 1999: Metz
3 leikir 0 mörk
1999: 11 leikir Newcastie 1 mark
1999-2000: Metz
23 leikir 4 mörk
2000-2001: 43 leikir Fulham 27 mörk
2001-2002: Fulham
36 leikir 8 mörk
2002-2003: Fulham
17 leikir 5 mörk
2003-2004: 21 leikur Fulham 14 mörk
og Micolas Anti
Ranieri óánægður
með Crespo
Claudio Ranieri, stjóri
Chelsea, er ekki par ánægður
með argentínska framherjann
Hernan Crespo þessa dagana og
segist efast um fagmennsku
Crespos.
Ranieri neyddist til þess að
taka Crespo af velli eftir aðeins 12
mínútur í leiknum gegn
Liverpool. Crespo sagðist vera í
standi tíl þess að spila fyrir leikinn
en var það augljóslega ekki.
„Þetta er sorglegt mál með
Crespo því á þriðjudaginn gaf ég
honum frí þar sem hann var
slæmur í kálfanum. Svo talaði ég
við hann á leikdegi og þá sagðist
hann vera í lagi. Ég sagði: Sjáðu
nú til, Hernan. Ég vil ekki missa
þig í meíðsli í langan u'ma þannig
að ef þú ert ekki tilbúinn þá vil ég
ekki að þú spilir. Hann sagðist
aftur á móti vera í fínu lagi en svo
varð hann að fara af velli eftir 12
mínútur," sagði Ranieri sem efast
um stórlega uin fagmennsku
Argentínumannsins. „Gaurinn
vildi spila og sagðist vera viss um
að hann væri í lagi og svona atvik
eru óþolandi."
Veskið opið
Rontan Abramovich sagði við
Ranieri eftir tapið gegn Liverpool
að hann væri tilbúinn að opna
veskið á ný í janúar.
Heimsklassavarnarmaður er
efstur á óskalista Chelsea þessa
stundina og er nalh
Brasih'umannsins Lucio, sem
leikur með Bayer Leverkusen, oft
nefht í því sambandi.
Argentínski varnarmaðurinn
Roberto Ayala, hjá Valencia, er
einnig orðaður við Chelsea þessa
dagana.
henry@dv.is
Man. Utd kaupir
írskan miðjumann
Manchester United gekk í gær
frá samningi við hinn 22 ára
miðjumann Celtic, Liam Miller.
Hann mun ganga tíl liðs við ensku
meistarana 1. júlí næstkomandi.
„Þegar ég var ungur strákur átti
ég mér tvo drauma: Að leika fyrir
Celtic og Man. Utd," sagði Miller
eftir undirskriftina. „Það var
heiður að leika fyrir Celtic síðustu
sex ár og nú hlakka ég til að spila
fyrir Man. Utd.“
Sir Alex Ferguson, stjóri Man.
Utd, sagði að kaupin á Miller væru
í takt við þá stefnu félagsins að
kaupa unga og efnilega leikmenn.
„Við vitum vel hvað þessi
strákur getur. Hann hefur átt
frábært tímabil með Celtic. Við
sjáum hann fýrir okkur serrF''
framtíðarmann í liðinu."
MQler spilaði lítið með Celtic
framan af ferli sínum vegna
meiðsla og var hann meðal annars
lánaður til danska liðsins Aarhus
árið 2001. Hann hefur síðan tekið
miklum framförum og honum
tókst að vinna sér sæti í Celtic-
liðinu í vetur þar sem hann hefur
leikið mjög vel - bæði í skosku
deildinni og meistaradeildinni.
Miller hefur átt fast sæti í írska
U-21 árs liðinu og var nýlega
kallaður í írska A-landsliðshópinn.{
fyrsta skipti.
henry@dv.is
Nýr Cantona? Irinn Liam Miller er hér i baráttu við Eric Cantona er Celtic mætti Man. Utd ý
ágóðaleik fyrir Ryan Giggs. Miller verður i rauðu skyrtunni næsta vetur.