Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2004, Blaðsíða 34
34 LAUCARDAGUR 10. JANÚAR 2004
Fókus DV
Tölúfin ekki
Tvíhöfði er endurfæddur. Hann hefur reikað um í tvennu lagi síðustu
tvö árin eftir að Jón Gnarr ákvað að kljúfa hann, fara með sinn helm-
ing eitthvað annað og skilja Sigurjón einan eftir í útvarpinu. Nú seg-
istJón hins vegar vera búinn að finna lífið aftur og svo skemmtilega
vildi til að á sama tíma þurfti Sigurjón Kjartansson að finna nýjan
mann sér við hlið í útvarpinu. Getnaður átti sér stað og búast má við
fæðingu hins nýja Tvíhöfða um næstu mánaðamót.
Þeir Sigurjón Kjartansson og Jón Gnarr eru ein-
hverjir þekktustu grínistar landssins. Þeir höfðu
starfað saman um árabil við góðar undirtektir
landsmanna þegar Jón Gnarr álcvað skyndilega að
nóg væri komið og tími til kominn að snúa sér að
örðu. Þeir félagar ræddust ekki við í rúmt ár en hafa
nú tekið upp þráðinn á ný og verða mættir aftur
með útvarpsþátt sinn Tvíhöfða um næstu mán-
aðamót - öflugri en nokkru sinni fyrr.
Jákvæðir íbúar Nýfundnalands
Þetta eru sögulegar sættir, hvað kom til?
„Peningar, fyrst og ffemst peningar," segir
Jón Gnarr.
„Ja, það voru kannski aðallega aðstæðurnar sem
skópu þetta. Dr. Gunni, sem er búinn að vera með
mér f útvarpsþættinum Zombie á Skonrokki, þurfti frá
að hverfa vegna barneigna og feðraorlofs. Þá vildi bara
svo skemmtilega til að bankað var á dyrnar hjá mér og
þar stóð Jón Gnarr - sem var mikið gleðiefni," segir Sigur-
jón Kjartansson.
„Eg hef oft sagt frá því að það sem varð til þess að við
hættum þessu á sínum tíma var að ég týndi lífi mínu. Ég
átti líf, svo týndi ég því og nú hef fundið það aftur. Ef
maður talar á landfræðilegum nótum mætti eiginlega
segja að ég sé Nýfundnaland," segir Jón.
Og líður þér ekki betur fyrir vikið?
„Jú, miklu betur. Mér líður eins og allir jákvæðu íbúar
Nýfúndnalands sem eru búnir að þagga niður í þeim
neikvæðu."
Þeir félagar höfðu verið í samstarfi frá 1995 þegar Jón
ákvað að fara sína leið í mars 2002. Þá höfðu þeir meðal
annars verið með útvarpsþáttinn Tvíhöfða f fjölda ára
auk þess að standa að gerð sjónvarpsþátta á borð við
Fóstbræður. Hvort tveggja naut mikilla vinsælda og því
kom það nokkuð á óvart þegar samstarfinu lauk. Síðan
þá hefur Sigurjón haldið áfram í útvarpinu, lengst af
með gömlum kunningja sínum Dr. Gunna, á meðan
Jón hefur verið að fást við kvikmyndaleik, sjónvarps-
þáttagerð, listsmíðar og fleira.
„Svo er ég búinn að vera að æfa Tai kwon do en að-
allega hef ég setið heima hjá mér og gert ekki neitt
síðasta eina og háffa árið,“ segir Jón.
Hálfir menn
„Það urðu náttúrlega ákveðin hvörf í lífi
manns þegar samstarfið hætti. Við höfðum þá
náð að búa til ákveðin tengsl okkar á milli sem er einhverskon-
ar tvihöfðastandard sem hefur afltaf náðst þegar við setjumst
niður til að gera eitthvað. Hlutirnir sem við vorum síðan að
gera í sitt hvoru lagi voru ekki neitt sérstakir, án þess þó að gera
lítið úr því, og þegar aðstæðurnar voru eins og ég lýsti áðan var
bara rökrétt að endurvekja Tvíhöfða," segir Sigurjón.
Voru þið þá hálfirmenn án hvors annars?
„Já mér finnst það,“ segir Jón og heldur áfram: „Ég sé það
núna og hef heyrt útundan mér að við værum hálfir menn og
mér datt strax í hug gin og tónik. Hvorugt er neitt sérstakt út af
fyrir sig, það drekkur enginn bara tónik eða bara gin. En bland-
að saman er það Gin & tónik sem er heildstæður og heims-
frægur drykkur," segir Jón.
„Ég segi fyrir mig að þetta tímabil sem við vorum í sundur
hafi verið mjög gott að ýmsu leyti. Fyrir mig var það lærdóms-
ríkt og svo er það náttúrulega líka þannig að við séum ekki fatl-
aðir án hvors annars. Við getum alveg unnið með öðru fólki, ég
náði t.d. að koma hlutum eins og Svínasúpunni á fót og vann
mikið með Þorsteini Guðmundssyni líka. En manni finnst að
sjálfsögðu alftaf eitthvað vanta inn í heildarmyndina," segir
Sigurjón.
Ogmegum við þá eiga von á gamla góða Tvíhöfðanum aft-
ur?
„Ekkert gamli góði heldur nýr Tvíhöfði sem verður betri en
nokkru sinni fyrr. Við setjum standardinn mjög hátt," segir
Sigurjón.
„Já, ég held við séum svona Jefferson Airplane mætir Jeffer-
son Starship. Fólk getur hlustað á þessar tvær hljómsveitir til
að skilja hugmyndina. Airplane var góð hljómsveit en Starship
er miklu betri, nútímalegri hljóðfæri og aðrar áherslur. Ég held
að núna munum við ná vissum hæðum sem við náðum ekki
áður," segir Jón.
Töluðust ekki við í ár
„Það er öruggt að þetta verði betra en áður. Núna erum við
búnir að ganga í gegnum þetta tímabil sem var vissulega lær-
dómsríkt. Ef maður lítur bara yfir söguna og horfir á listamenn
í sögunni þá ganga allir í gegnum þetta. Keith og Mick, Simon
og Garfunkel, Lennon og McCartney. Þetta er „the oldest story
ever told" - tveir menn setjast niður og ná áJcveðnum hæðum í
sínu samstarfi og það er rosalega erfitt að halda úti tveggja
manna samstarfi," segir Sigurjón.
„Meira að segja Páll postuli og Pétur postuli áttu sín mó-
ment í sundur," útskýrir Jón.
„Því er mjög eðlilegt að menn sundrist og það er staðreynd
að við töluðumst ekki við í ár, þó það hafi ekki verið neinn
ágreiningur. Síðustu tvö árin vorum við líka í rauninni hættir
t