Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2004, Blaðsíða 15
IJV Fréttir
LAUGARDAGUR 10. JANÚAR 2004 15
sem slo i
Besti vinur Kalla Grétar er i hljómsveit með Kalla og telur Idol verða þeim til framdráttar.
„Ótrúlegt hvað býr Iþessum litla manni."
Kalli kynntist kærustu
sinni henni, Aðalheiði
Jónsdóttur fisk-
vinnslukonu, og flutt-
ist til Grindavíkur fyrir
fimm árum.
vinur Kalla Bjarna og er með honum
í hljómsveit. Þeir hafa komið fram á
Cactusnum í Grindavík og eru að
byggja upp hljómsveit sína.
„Við erum búnir að þekkjast í
svona fimm ár eða síðan hann ílutti
til Grindavíkur. Við eigum Kalla
Bjarna alveg. Hér er hann búinn að
festa rætur. Við erum alltaf að æfa
eitthvað saman og ég tek hann og
æfi fyrir þættina. Strömma undir og
hjálpa honum að finna rétta tónteg-
und."
Grétar segir Kalla Bjarna ótrúlega
kraftmikinn söngvara sem geti
sungið hvað sem er. „Alveg ótrúlegt
hvað býr í þessum lida manni." Þeir
félagar hafa ekki fundið nafn á
hljómsveitina og hún er enn ekki
fullskipuð. Þátttaka Kalla Bjarna
mun ekki spilla fyrir og heldur ýta
þeim áfram. Það vantar bassaleikara
en mágur Kalla Bjarna er trommari
og vinur þeirra í Reykjavík er í start-
holunum hvað hljómborðsleikinn
varðar. Grétar segir Kalla Bjarna
hafa gaman að eldri rokktónlist eins
og Led Zeppelin og Deep Purple.
Tónlistin er helsta áhugamál þeirra
félaga en þeir fást við hitt og þetta,
skjóta leirdúfur og kunna að
skemmta sér þegar svo ber undir.
Grétar hefur fulla trú á sínum manni
og telur hann muni sigra.
Keppni milli sveitarfélaga
Starfandi á hafnarvigtinni í
Grindarvík er Grétar Sigurðsson og
hann segir stemninguna ólýsanlega.
„Jahh, kærastan linnti ekki látunum
fyrr en við vorum búin að fá okkur
áskrift að Stöð 2. Það er full ástæða
til að standa með okkar manni sem
hefur staðið sig vel. Við þekkjum
hann náttúrulega - okkar maður við
sjávarsíðuna. Við viljum eiga hann
með húð og hári. Fulltrúi sjóar-
anna.“
Grétar hefur af því nokkrar
áhyggjur að Kalli Bjarni hafi gengið
Kalli Bjarni Móður hans var ráðlagt frá þvi
að ganga með hann. Sem betur fer tók hún
ekki mark á þvi.
fram af sér þegar hann tók Grease
lagið, getur eiginlega ekki ímyndað
sér að hann toppi þá frammistöðu.
Og hættulegt sé að toppa á vitlaus-
um tíma. En hann vonar að Kalli
Bjarni eigi nokkra ása uppi í
erminni.
Grétar hefur einnig nokkrar
áhyggjur af því að þetta muni leiðast
út í keppni milli landsbyggðahluta
og sveitarfélaga. Honum þykir til
dæmis einsýnt að stelpan frá Akur-
eyri hafi Norðurlandið á bak við sig.
„Ég vona bara að sá besti sigri og sá
besti er Kalli Bjarni."
Grétar ætti ekki að vanmeta
byggðastefnuna þegar Kalli Bjarni er
annars vegar því þau eru ýmis sveit-
arfélögin sem telja sig eiga hann.
Grundarfjörður gerir tilkall
Grindvíkingar sitja ekki einir að
Kalla Bjarna, öðru nær. DV talaði við
Gunnar Kristjánsson sem var kenn-
ari Kalla Bjarna og skólastjóri í 13 ár
en hann rekur nú verslun á Grund-
Svanhildur Björk Kærasta Grétars, besta
vinarKalla, segir Kalla ótrúlega músikalskan
ogað hann hafi samið fullt afgóðum lög-
um.
arfirði. Þar ríkir mikil stemmning og
fylgjast heimamenn vel með keppn-
inni. Og ekki fer á milli mála með
hverjum er haldið. Gunnar kenndi
Kalla Bjarni megnið af hans skóla-
ferli eða öll grunnskólaárin. Kalli
Bjarni gekk sem sagt í skóla á
Grundarfirði. „Við eigum stóran
hluta í honum stráknum," segir
Gunnar sem ber okkar manni afar
vel söguna. „Hann var góður nem-
andi, kurteis og duglegur. Til fyrir-
myndar í hvívetna og mjög gaman af
þessum strák. Kalli Bjarni fór svo
héðan fljótlega eftir grunnskólann.
Hann var syngjandi sí og æ sem
polli. Við nutum þess að láta hann
syngja á árshátíðum í skólanum og
svona. Hann stendur sig vel strákur-
inn. Við höldum með honum hér á
Grundarfirði öll sem eitt.“
Og víst er að önnur byggðalög
þykjast einnig eiga sitthvað í Kalla
Bjarna.
Hann er hann sjálfur
Kærasta Kalla Bjarna til fimm ára
er Aðalheiður Hulda Jónsdóttir, eða
Alla eins og hún er jafnan kölluð.
Maríanna í sjoppunni „KalliBjarnieral-
gjörgullmoli."
Það vakti mikla athygli þegar hún
greip greiðu sem Kalli Bjarni þeytti
út í salinn eftir að hafa sungið Grea-
sed Lightning í þarsíðustu keppni
Idol. Ótrúleg tilviljun að greiðan
hafnaði hjá henni í allri mann-
mergðinni. Alla tekur undir með
móður sinni hvað varðar ónæðið
sem fylgt hefur. „Það er svakalegt
álag. Hér eru þrír símar og þeir eru
allir glóandi. En maður verður að
vera jákvæður og það er ekki erfitt.
Þetta er ofboðslega gaman að þessu
og góð reynsla fyrir hann.“
Alla verður eiginlega hálf hvumsa
við spurningunni: Hvernig er Kalli
Bjarni? Enda ósvífin spurning.
„Hann er bara mjög jákvæður. Hress
að eðlisfari. Duglegur sama hvað
hann gerir sér fyrir hendur. Hann er
hann sjálfur."
Landshornaflakkari
En hver er Kalli Bjarni? Hann
heitir fullu nafni Karl Bjarni Guð-
mundsson og er fæddur 6. janúar
árið 1976. Hann er því 27 ára gamall.
Á Idolvefnum kemur fram að hans
uppáhalds söngkona er Janis Joplin,
Páll Rósenkranz er hans íslenska
idol og Carma Police með Radi-
ohead er uppáhalds lagið. Ekki beint
hægt að halda því fram að þetta sé
blöðrulegur smekkur. Enda hefur líf
Kalla Bjarna kannski ekki verið
neinn dans á rósum, en einhvern
veginn afar íslenskt.
Móðir öryrki á Vopnafirði
Móðir hans Sveinbjörg Karlsdótt-
ir lenti í alvarlegu umferðarslysi
skömmu áður en hann kom undir -
varð undir strætó og önnur löpp
hennar fór alveg í mask. Henni var
ráðlagt frá því af læknum að ganga
með Kalla Bjarna ef hún vildi ein-
hvern tíma eiga von um að ná full-
um bata. En hún hunsaði það - sem
betur fer fyrir landsmenn. Hún er nú
öryrki og er búsett á Vopnafirði.
Faðir Kalla Bjarna heitir Guð-
mundur Aðalsteinn Sveinsson og
starfar sem leikmunavörður hjá
Norska ríkissjónvarpinu. Guðmund-
ur hefur verið búsettur lengi í Nor-
egi. Hann mun mæta til að fylgjast
með syni sínum komist hann í úr-
slitin. (A þessu stigi gengur DV út frá
því að svo verði.) Leiðir Guðmundar
og Sveinbjargar lágu ekki saman né
heldur fósturpabba Sveinbjargar
sem heitir Bárður. Það urðu hins
vegar foreldrar hans, fósturafi og
amma Kalla Bjarna, sem tóku hann
að sér.
Finnsk fósturamma
Fósturamma Kalla Bjarna, Elna
Bárðarson, er af finnsku bergi brotin
og dvelst á dvalarheimilinu Fella-
skjóli á Grundarfirði. Hún fylgist vel
með gengi stráksins, „Hún hringir
reglulega í Kalla og kjaftar hann þá í
kaf,“ segir Grétar vinur Kalla.
Kalli Bjarni fór til Bolungarvíkur í
9. bekk og í Breiðholtsskóla í 10.
bekk. Hann er því eiginlega þá strax
Grétar á Vigtinni Segir Grindvikinga
standa á bak við sinn mann, allirsem einn.
orðinn farandsöngvari. Eftir grunn-
skóla bjó Kalli Bjarni í Reykjavík í
nokkur ár þar sem hann leigði og
starfaði við húsaviðgerðir. Á því
tímabili var hann í hljómsveit sem
heitir Viridian Green, hljómsveit
sem lék ‘indírokk’.
Þriggja barna faðir
Móðir Kalla Bjarna fluttist til
Vopnafjarðar og þangað fór Kalli
Bjarni einnig og var með hléum í
fjögur ár. Þar kynntist hann sjó-
mennskunni og fór í Smuguna á
frystitogaranum Hágangi 2. Hann
kynntist svo kærustu sinni henni,
Aðalheiði Jónsdóttur fiskvinnslu-
konu, og fluttist til Grindavíkur fyrir
fimm árum. Þar er hann á dagróðra-
bámum Sigga Magg GK en meðan
Idol keppnin stendur yfir starfar
hann við síldarvinnslu á hjá fyrir-
tækinu Þrótti.
Kaili Bjarni á eina sex ára dóttur
frá fyrra sambandi en hún heitir Sig-
ríður Elma. Fósturdóttir hans heitir
Súsanna Margrét og er hún 7 ára
gömul. Og saman eiga þau Aðal-
heiður og Kalli Bjarni þriggja ára
gamlan dreng sem heitir Maríus
Máni.
jakob@dv.is
ÚTBOÐ
Verkfræðistofan Línuhönnun hf.,
f.h. Félagsbústaða hf.r óskar eftir
tilboðum í lokun svala, múrviðgerðir
og málun á Jórufelli 2-12, Reykjavík.
Verklok eru í síðasta lagi 31. október 2004.
Útboðsgögn fást afhent frá og með
mánudeginum 12. janúar hjá Línuhönnun hf.
á Suðurlandsbraut 4a í Reykjavík
gegn 10.000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð hjá Línuhönnun hf.
á Suðurlandsbraut 4a í Reykjavík
mánudaginn 9. febrúar 2004, kl. 14.00
að viðstöddum þeim bjóðendum
er þess óska.
V____________________________________)