Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2004, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 10.JANÚAR2004
Fókus DV
Útrás íslenskrar myndlistar er hafin. Á síðustu árum hefur gamli Myndiistar- og handíðaskólinn útskrifað fjölda efni-
legra myndlistarmanna og hafa árgangarnir frá 1996-97 vakið sérstaka athygli. Gabríela Friðriksdóttir hefursem dæmi
vakið talsverða athygli fyrir plötuumslög sem hún hannaði fyrir Björk og listamennirnir Bjargey Ólafsdóttir og Egili Sæ-
björnsson hafa verið dugleg við að koma verkum sýnum á framfæri erlendis. DV leitaði því til nokkurra sérfræðinga á
sviði myndlistarinnar og bað þá um að nefna þá aðila sem þeir teldu að myndu mest láta að sér kveða í framtíðinni.
Margir komu til greina en eðli málsins samkvæmt voru nokkrir einstaklingar nefndir oftar en aðrir. Hér á eftir verður því
fjallað stuttlega um sjö björtustu vonarstjörnur islenskrar myndlistar að mati listasérfræðinganna.
Bjargey Ólafsdóttir
Bjargey er fædd í Reykjavík árið 1972 og þar hefur hún starfað mestan part
Hk af ferlinum. Hún útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla íslands árið 1996
og hélt síðar til frekara náms á erlendri grundu. Hún eyddi einu ári á Spáni,
nokkrum mánuðum á Bretlandi áður en hún gekk í Lista- og hönnunarhá-
skólann í Helsinki. Árið 2000 var hún svo við nám í Svíþjóð í Kvikmynda- og
ljósmyndaháskólanum í Gautaborg.
Bjargey hefur fengist við stuttmyndagerð, komið nálægt tónlist og tekið
mikinn fjölda ljósmynda. Verkin hefur hún sýnt á einkasýningum hér á landi
og í Finnlandi og á samsýningum í Bandarfkjunum, Bretlandi, Danmörku,
Frakklandi og Hollandi svo eitthvað sé nefnt. Þá var ein ljósmynda hennar
valin til þess að prýða dagatal Unicef, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, fyrir
árið 2004. Ljósmyndaverk hennar hafa einnig birst í tímaritum, s.s. norræna
myndlistar-tískutímaritinu Frotté. Bjargey hefur einnig fengist við kennslu,
verið gestakennari við LHÍ og haldið fýrirlestra í sænskum listaskólum.
Flestir þekkja Tómas iíklega sem Nóa Albínóa í
samnefndri kvikmynd eftir Dag Kára Pétursson. Hann
þótti standa sig með eindæmum vel í hlutverki Nóa
Albínóa og hefur kvikmyndin fengið gríðarlega góð
viðbrögð víða um heim. Tómas er fæddur árið 1977 og
er franskur í aðra ættina. Hann hefur lengst af búið á
íslandi en hefur nú flutt sig til Parísar þar sem hann er
að reyna fyri r sér í mynd- og leiklist.
Tómas var við nám í Cours Florent leiklistarskól-
anum í París frá 1997-98 en að því námi loknu fluttist
hann aftur hingað til lands þar sem hann lagði stund
á myndlistarnám í Listaháskóla fslands. Þaðan út-
skirfaðist hann síðstliðið vor og því má segja að
Tómas sé stíga sín fyrstu spor í heimi myndlistarinnar
um þessar mundir.
Þrátt fyrir það hefur hann verið ötull við að sýna
verk sín og skapa sér orðspor innan myndlistarheims-
ins. Hann hefur haldið tvær einkasýningar hér á landi
og tekið þátt í nokkrum samsýningum, m.a. í Finn-
landi. Nokkrir af þeim ráðgjöfum sem DV leitaði til
nefndu nafn Tómasar þegar spurt var um efnilegustu
myndlistarmennina og er því greinilegt að eftir hon-
um er tekið. Einn þeirra sagði meðal annars: „Það sem
ég hef séð frá Tómasi er mjög áhugavert og skemmti-
legt, t.d lokaverkefni hans í LHÍ, Undir stiganum. Það
kæmi mér ekki á óvart ef hann myndi ná langt í heimi
myndlistarinnar."
Ragnar Kjartansson
Flestir þekkja Ragnar líklega sem Rassa, söngvara hljómsveita á borð
við The Funerals og Trabant. Hann lítur þó fyrst og fremst á sig sem lista-
mann og ber fagfólki saman um að þar fari mikið efni í ágætis myndlistar-
mann.
Ragnar hefur haldið þrjár einkasýningar hér á landi og eina í Svíþjóð
fyrir utan að taka þátt í fjölda samsýninga víða um heim. Hann hefur
einnig látið til s£n taka í hönnun plötuumslaga en hann gerði umslag plöt-
unnar Pathetic me með hljómsveit sinni Funerals og einnig umslagið á
plötu Kanada. Tónlist og myndlist hafa alltaf skarast hjá Ragnari eins og
hann sagði sjálfur í viðtali við DV á síðasta ári: „Eftir menntaskóla ákvað ég
að fara út í myndlist en var á sama tíma í hljómsveitinni Kanada. Myndlist-
in og tónlistin hafa þess vegna alltaf verið samhliða hjá mér. Verkin m£n
eru ópera, blús og óhljóð í sambland við tillfinningaþrunga og fegurð. Það
er í raun athyglisvert hvað þessar listgreinar sækja í hvor aðra og hér á ís-
landi eru tengslin óvenju mikil.“
Ragnar á einnig sæti í stjórn Nýlistasafnsins sem hefur verið framvörð-
ur framsækinnar myndlistar á íslandi í 25 ár og aðal tenging íslands við
hinn alþjóðlega myndlistarheim. Hann mun svo halda til Basel í sumar
ásamt Gjörningaklúbbnum en ferðin er farin fyrir tilstuðlan gallerís i8 þar
sem ætlunin er að taka þátt í svokallaðri listamessu.
Tómas
Lemarquis