Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2004, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 10.JANÚAR 2004
Fréttir DV
Fíkniefnabrotum fjölgaði mjög á siðasta ári meðan málum í nær öllum öðrum
brotaflokkum fækkaði eða þau stóðu i stað milli áranna 2002 og 2003. Þessa aukn-
ingu fíkniefnabrota má rekja til breyttra starfshátta fiikniefnalögreglunnar
Viljaíbúðá
hálfa milljón
Fasteignamarkaður í
Bolungarvík virðist í dauf-
ara lagi ef marka má tilboð
í eina af fbúðum bæjar-
sjóðs.
Hæsta tilboð sem barst í
bæjaríbúðina er 500 þús-
und krónur. Brunabótamat
hennar er á hinn bóginn 8
milljónir króna og fast-
eignamat 2,3 milljónir.
íbúðin er 66 fermetrar í
fjölbýlishúsi sem byggt var
árið 1980.
Bæjarráð samþykkti á
síðasta fundi að gera
gagntilboð upp á 1,8 millj-
ónir króna í samræmi við
mat fasteignasala.
Fíkniefnabrot nær tvö-
faldast á þremup árum
Selja tvær
ríkisjarðir
Tvær ríkisjarðir eru
þessa dagana að komast í
hendur nýrra eigenda. Um
er að ræða eyði- og
vitajörðina Svalvoga
við utan verðan Dýra-
fjörð og býlið Sandhól
í Meðallandi í Skaft-
árhreppi.
Samkvæmt upp-
lýsingum frá Ríkis-
kaupum er verið að leggja
lokahönd á sölu jarðanna.
Sandhóll verður seldur á
6,5 milljónir króna og Sval-
vogar á 5,5 milljónir.
Vitinn í Svalvogum íylgir
ekki með í kaupunum en
þar er tæplega 60 ára íbúð-
arhús í niðurníðslu. Sand-
hóli fylgir hins vegar not-
hæft íbúðarhús og 300 fer-
metra skemma. Jörðin er
140 hektarar.
Heim í Borgarnes
Páll Sævar Brynjarsson.
„Nú liggur mér helstá að komast
heim í Borgarnes. Ég er búinn að
vera I dag á fundi á Akranesi. Bæj-
nprrrppifnn arféiögin hafa
MfakW&J veriðaðendur-
nýja með sér samstarfsamning, “
segir Páll Sævar Brynjarsson bæj-
arstjóri i Borgarbyggð.
Fíkniefnamálum fjölgaði mjög á milli ár-
anna 2002 og 2003 meðan að málum í nær
öllum öðrum brotaflokkum fækkaði eða
þau stóðu í stað. Þannig eru skráð 1.371
fíkniefnabrot á árinu 2003 á móti 994 brot-
um árið á undan og ef tekinn er samanburð-
ur við árið 2000 kemur í ljós að fíkniefnabrot
hafa nær tvöfaldast á þessu tímabili en brot-
in voru 781 talsins árið 2000. Tekið skal fram
að tölur fyrir árið 2003 eru bráðabirgðatölur.
Samkvæmt upplýsingum frá Rannveigu
Þórisdóttur félagsfræðings hjá embætti Ríkis-
lögreglustjóra varð umtalsverð fækkun á afbrot-
um í heild á milli áranna 2002 og 2003. Þannig
voru skráð rúmlega 88.000 brot á síðasta ári á
móti rétt rúmlega 99.000 brotum árið á undan.
Mest er fækkunin á um-
ferðarlagabrotum en
þeim fækkaði um rúm-
lega 9.500 á milli áranna.
Ef litið er á einstaka
brotaílokka kemur í ljós
að auðgunarbrotum
fækkaði um 1.600 eða úr
11.330 og í 9.937 í síðasta
ári. Áfengislagabrot
stóðu í stað og eru rétt
tæp 2.000 talsins bæði
árin. Brotum gegn lífi og
líkama fækkaði um 100,
voru 1.597 á síðasta ári á móti 1.654 árið á und-
an. Eignaspjöllum fækkaði einnig lítilsháttar eða
úr 4.141 í hittiðafyrra niður í 3.847 á síðasta ári.
Umtalsverð fækkun varð á skjalafals- og nytja-
stuldsbrotum. Þannig fækkaði skjalafalsbrotum
um nær helming en þau voru 298 talsins á síðasta
ári á móti 513 árið þar á undan. Nytjastuldsbrot-
um fækkaði um nær 200 en þau voru 380 talsins í
fyrra á móti 566 árið á undan.
Þórarinn Tyrfingsson
yfirlæknir á Vogi
Áhersla á götustigið
Ásgeir Karlsson yflrmaður fíkniefhalög-
reglunnar segir að aukningu á skráðum fíkni-
efnabrotum milli tveggja síðustu ára megi að
stærstum hluta rekja til breyttra starfshátta
fíkniefna- og almennu lögreglunnar. „Á síð-
asta ári lögðum við aukna áherslu á götustig-
ið, það er smásalana á götunni," segir hann.
„Þessi fjöldi mála eru því smærri mál en
fíkniefnamagnið sem við leggjum hald á
hefur ekki aukist á milli áranna."
Fram kemur í máli Ásgeirs að samhliða
þessu hefur eftirlit með götusiginu verið
stóraukið í samvinnu við almennu lögregl-
una. „Þetta er meginskýringin á þessum
málafjölda," segir hann.
„Þetta þarfekki að þýða aukin
viðskipti með fíkniefni."
Þórarinn Tyrfingsson yfirlæknir á Vogi er
sammála Ásgeiri um að aukning á fíkniefna-
brotum sé að öflum líkindum tilkomin vegna
breyttra starfshátta og rannsóknaraðferða
fíkniefnalögreglunnar. „Þetta þarf ekki að þýða
aukin viðskipti með fíkniefni. Allavega merkj-
um við hér á Vogi að ákveðin kyrrstaða hafi ríkt
í fíkniefnaheiminum hérlendis um nokkurt
skeið og það er ekkert sem bendir til að sú
staða sé að breytast," segir hann.
Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíknefnalögreglunar Beiting vopna I tenglsum við fikniefnaglæpi hefur færst ívöxt og hefur
lögregla lagt hald á fjölbreytilegt safn stórhættulegra vopna við rannsóknir þessara mála.
NOKKRIR BROTAFLOKAR:
2000 2003
Fikniefnabrot 781 1371
Áfengislagabrot 2665 1999
Skjalafals 455 298
Umferðarlagabrot 66814 64068
Heildarfjöldi afbrota 91665 88306