Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2004, Blaðsíða 9
DV Fréttir
MÁNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2004 9
Strætó spring-
ur í loft upp
Yfir 60 særðust og og
minnst 7 létust er Palest-
ínumaður frá al-Aqsa
sprengdi sig í loft upp í
strætisvagni í Jerúsalem í
gær. Arafat hefur þegar for-
dæmt árásina en hún var
framin daginn áður en mál
múrsins umdeilda fer fyrir
Alþjóðadómstólinn í Haag.
Palestínsku hryðjuverka-
samtökin al-Aqsa eru talin
nátengd Hizbollah í Líban-
on og starfa þar í landi.
Stallone í
raunveruleika-
sjónvarp
Sylvester Stallone sló á
sínum tíma í gegn með
kvikmyndinni Rocky, sem
fékk m.a.
Óskarinn sem
besta nryndin,
en nú ætlar
kappinn að
framleiða og
vera gestgjafi í
boxþætti, sam-
bærilegum við
Survivor eða
aðra raunveruleikaþætti.
Þátturinn er unnin í sam-
starfi við fyrirtæki Stevens
Spielberg, Dreamworks, en
fylgst verður með boxurum
berjast og hægt að kjósa þá
leiðinlegustu út.
Rógburður
fyrír austan
Hrafnkell A. Jónsson
sendir fjórðungsblaðinu
Austurglugganum pillu á
vefsíðunni local.is um
helgina og seg-
ist engan áhuga
hafa á að tala
við blaðamenn
þess þar sem
_ fréttaflutningur
þeirra sé að
miklu leyti róg-
burður. Segir
hann þá þess
umkomna að geta fellt
dóma án þess að þurfa að
taka gagnrýni. í sama pistli
segir hann að framsóknar-
fólkið Dagný Jónsdóttur og
Birkir Jón Jónsson eigi ekki
að láta lágkúrulega blaða-
mennsku á DV varna þeim
máls og biður þau að end-
urskoða afstöðu sína gagn-
vart DV þar sem bæði séu
kosnir fulltrúar fólksins í
landinu.
Heilsufari unglinga er ábótavant, segir í nýrri breskri könnun
Unglingar heimsins í stórhættu
Meðan lífslíkur aldraðra hækka
dag frá degi og tekist hefur að fækka
ungbarnadauða til mikilla muna frá
því sem áður var glíma unglingar við
fleiri vandamál en nokkurn tíma,
vandamál sem innan tíðar verða
stórt samfélagslegt vandamál.
Þetta eru niðurstöður ítarlegrar
könnunar sem bresku læknasamtök-
in hafa látið gera og sýna svo ekki
verður um villst að líferni nútíma-
unglings er ekki öfundsvert.
Kynlíf, drykkja, fíkniefnaneysla,
reykingar og slæmt mataræði ung-
linganna í Bredandi er á góðri leið
með að gera þá að heilsuveilum fitu-
bollum sem þjást af kynsjúkdómum.
Einn af hverjum fimm unglingum
á við offituvandamál að stríða og er
skyndifæði kennt um. Sama hlutfall
unglinga glímir við þunglyndi eða
anorexíu og aðeins 15% unglings-
stúlkna borða þann skammt af ávöxt-
um og grænmeti sem mælt er með.
Reykingamönnum fjölgar og
sífellt yngra fólk reykir. Fleiri ánetjast
eiturlyfjum og allt að 15% unglinga á
aldrinum 15-16 ára nota ffkniefni í
hverjum mánuði.
Tilfellum klamydíu hjá unglings-
stúlkum fer fjölgandi en veiran getur
valdið ófrjósemi. Hlutfall unglings-
stúlkna sem verða ófrískar stendur
hins vegar í stað.
Bresku læknasamtökin kalla eftir
aðgerðum stjórnvalda hið fyrsta,
enda sé ástand unglinga verra en
áður var talið. Of litlu fé sé varið til
forvarna í skólum landsins og ekki sé
nógur stuðningur við þá sem vilja
breyta sínum lífsstíl á einhvern hátt.
Unglingar Ekki er tekið út með sældinni að
vera unglingur í dag, hvorki i Bretlandi né hér
á landi.
Námstefna verður haldin að Hótel Nordica, Suðurlandsbraut 4 í Reykjavík
2. mars kl. 9.00-17.00
íþróttir og atvinnulíf eru í vaxandi mæli farin að læra hvort af öðru. Aðferð-
ir íþróttanna, þar sem geta einstaklinga er nýtt til hins ýtrasta, eru í vaxandi
mæli notaðar í atvinnurekstri og öfugt. Listin að hámarka frammistöðu var
þess vegna áhugavert efni sem Pareto vildi taka fyrir á ráðstefnu og leitaði til
þess sem hefur haft hvað mest áhrif á þessu sviði í heiminum í dag.
Fyrirlesari er Krish Dhanam, aðalfyrirlesari Zig Ziglar corporation, sem hefur
vakið óskipta athygli sem einn af fremstu fyrirlesurum Bandaríkjanna. Hann
hefur samið námskeiðið með Zig Ziglar.
Hverjum er námstefnan ætluð? Stjórnendum, þjálfurum, skólamönnum, markaðs- og sölumönn-
um og starfsmannastjórum.
Þeir meginþættir sem hafa áhrif á
hámarks árangur.
Það sem hvatning gerir og hvað hún gerir
ekki.
Hvernig getur þú orðið verðmeiri fyrir
atvinnureksturinn og sjálfan þig.
Hvernig er hægt að afkasta meira án þess
að vinna meira eða lengur.
Hvernig er hægt að koma í framkvæmd
mikilvægum breytingum.
• Markmið sem stórauka árangur og virkni.
• Hvernig setjum við markmið til að auka
árangur og virkni.
• Jafnvægið í áhrifaþáttunum.
• Sala á hugmyndum, þjónustu eða vöru.
• Markaðsala og traust.
• Slakir markaðs- og sölumenn eiga horuð
börn!
• Samskiptafærni.
Nemitil
Noregs
Menntamálaráðuneytið
auglýsir eftir umsóknum
íslenskra menntaskóla-
nema um
skólavist
við alþjóð
legan
mennta-
skóla í Fja
er í Noreg
Kennsla í skólanum fer
fram á ensku og útskrifast
nemendur með viðurkennt
alþjóðlegt stúdentspróf,
International Baccalaureat
Diploma (IB). íslensk
stjórnvöld eiga aðild að
rekstri skólans og býðst
skólavist fyrir einn nem-
anda. Hann þarf sjálfur að
greiða uppihaldskostnað
sem nemur um 200 þús-
und krónum, fyrir utan
ferðakostnað. Heimasíða
skólans er á slóðinni
http://www.rcn-
uwc.uwc.org og umsókn-
arfrestur rennur út 19.
Ráðstefnustjóri er Logi Ólafsson.
Tilboð á netinu til 25. febrúar kr. 14.800 ef gengið er frá bókun og greiðslu fyrir 25. febrúar.
Fyrirlesarinn Krish Dhanam er orðinn einn af fremstu fyrirlesurum Bandaríkjanna. Hann er fæddur
og uppalinn á Indlandi. Hann flutti til Bandaríkjanna 1986, hóf fyrirlestra fyrir Zig Ziglar corp. 1992
og hefur síðan notið gífulegrar velgengni sem fyrirlesari um allan heim. Hann þykir hafa einstaka
fyrirlestrartækni og fær einstaka dóma hjá áhorfendum. All nokkrir íslendingar hafa séð hann á
sviði og fær hann afburða einkunn.
Skráning og frekari upplýsingar á www.starf.is, í síma 588 4200 eða á faxi 588 9117.
Nafn: Kennitala:
Fyrirtæki:
Netfang: Sími: Gsm:
Mörg stéttarfélög styrkja þátttöku á þessari námsstefnu.
mars.